Hælisleitandi sem fékk neitun á dvalarleyfi fær að kjósa í sveitastjórnarkosningum

Mohammed Alkurd hælisleitandi frá Gaza vekur athygli á því á Facebook síðu sinni að honum hafi verið synjað um dvalarleyfi, en þrátt fyrir það er honum boðið að kjósa í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Hann furðar sig á þessu misræmi í lögum, að hann fái að taka þátt í framtíð landsins en ekki vera hluti af henni.
Mohammed var synjað um alþjóðlega vernd í apríl 2022 og staðfest með úrskurði kærunefndar útlendingamála þann 22. september 2022. Hann sótti þá um dvalarleyfi en var einnig synjað um þá umsókn og gert að yfirgefa landi í febrúar síðastliðnum.
Blaðamaður skoðaði lög um sveitastjórnarkosningar og kemur þá í ljós að lögunum var breytt árið 2021, í eldri útgáfum er skýrt kveðið á um að kosningarrétt til sveitarstjórnar á hver íslenskur ríkisborgari sem náð hefur 18 ára aldri þegar kosning fer fram og á lögheimili í sveitarfélaginu, og má skoða hér.
Uppfærðu reglurnar má þó finna inn á Ísland.is þar sem kemur fram að nú þarf einungis að vera með lögheimili á Íslandi til að taka þátt í íslenskum sveitastjórnakosningum og ekki lengur gerð krafa um ríkisborgararétt.

Mohammed segir að lokum í færslunni: „Ég get kosið í kosningunum… en ég get ekki verið áfram til að sjá niðurstöðuna. Lýðræði er fallegt… nema þegar það stoppar við rétt manns til að fá að vera áfram.“
Þegar blaðamaður skoðaði reglur Norðurlandanna þá kemur í ljós að einungis ríkisborgarar hafa kosningarrétt í þeim löndum fyrir utan samning á milli Norðurlandanna og virðist því um séríslenska reglu að ræða sem hefur verið komið í lög án aðkomu þjóðarinnar eða umræðu, og spurning hvort að stangist á við stjórnarskrá landsins.
