Ástæðan fyrir því að verð eru hærri á nýjum kjúklingastað í Krónunni Lindum, Tjikký, en á staðnum sem var þar áður, Rotisserie, er sögð sú að hráefnisverð á kjúklingi hefur hækkað mjög mikið.
„Við hækkum í raun bara af illri nauðsyn út af því að við erum að kaupa þetta hráefni dýrara með hverju árinu,“ segir Einar Þór Einarsson, framkvæmdastjóri Icelandic Food Company, dótturfyrirtækis Krónunnar sem rekur Tjikký.
Krónan í Lindum opnaði nýverið aftur eftir endurbætur og samhliða því opnaði kjúklingastaðurinn Tjikký inni í versluninni.
Staðurinn minnir um margt á kjúklingastaðinn sem var þar áður, Rotisserie, og er vöruframboð mjög sambærilegt enda er staðurinn rekinn af sama fyrirtæki, Icelandic Food Company, og byggir nýi staðurinn á þeim gamla.
Enginn snúningssteinn lengur
Nokkur umræða hefur skapast um Tjikký á Facebook-hópnum Matartips! en þar sagðist fólk til að mynda sakna Rotisserie og kvartaði meðal annars yfir því að verð á heilum kjúklingi væri töluvert hærra á Tjikký en þar.
Einar Þór segir ástæðuna fyrir því að ákveðið hafi verið að ráðast í breytingar á staðnum einfaldlega vera að ekki hafi lengur verið boðið upp á hefðbundinn Rotisserie-kjúkling, sem eldaður er á snúningsteini, á staðnum.
„Krónan í Lindum var að fara í endurbætur og við hugsuðum með okkur: Það er mikil sala í kjúklingi þarna og greinilegt að fólkið þarna í kring elskar að kaupa þennan kjúkling. Þannig að við vildum halda áfram en undir öðrum formerkjum, út af því að þetta er í rauninni ekki lengur eldað á snúningsteini eins og þetta var hérna áður fyrr.“
Kjúklingur ekki það sama og kjúklingur
En er það rétt að verð á kjúklingi sé hærra á Tjikký en Rotisserie?
„Það hefur verið bara smá hækkun á kjúklingi því að hráefnisverð á kjúklingi hefur hækkað mjög mikið, eins og maður sér bara í verslunum, í Bónus eða Krónunni.“
Á Matartips! hafa einhverjir bent á að 3890 kr. kjúklingurinn á Tjikkí sé mun dýrari en heill grillaður kjúklingur í t.d. Prís, Nettó eða Hagkaup þar sem hann kostar í kringum tvö þúsund krónur. Einar segir hins vegar að um sé að ræða allt aðra vöru.
„Við erum með aðeins annan undirbúning á kjúklingi hjá okkur. Hann er til að mynda stærri og er sérútbúinn fyrir okkur. Þannig að við höfum frekar verið að horfa til staða eins og Hanans eða BK kjúklings,“ segir hann og bætir við:
„Við sjáum það líka bara í verðlagningu hjá okkur að kjúklingur er orðinn mjög dýr vara og ekki lengur eins ódýr og hérna í gamla daga.“
Eruð þið ekki að auka álagningu á nýja staðnum?
„Nei, það er engin aukaálagning. Við höfum ekkert verið að setja neitt aukalega á þetta nema bara til að svara kostnaði og rekstri staðarins.“
