Smartland greindi frá tíðindunum.
Gurrý varð þjóðþekkt í raunveruleikaþáttunum The Biggest Loser Ísland sem hófu göngu sína árið 2014 á Skjá einum. Allar götur síðan hefur hún starfað sem þjálfari og leggur mikla áherslu á heilsusamlegan lífsstíl. Í dag starfar hún í Sporthúsinu og heldur úti vefnum gurry.is.
Sjá einnig: Frumsýnir kærastann á Tenerife
Vísir greindi frá því í apríl á síðasta ári að Gurrý væri gengin út en hún frumsýndi þáverandi kærasta sinn á miðlunum eftir að þau höfðu nutið páskanna saman á Tenerife. Það samband hefur runnið sitt skeið og Gurrý komin aftur á markaðinn.