Um er að ræða einbýlishús byggt árið 1964 með sex svefnherbergjum, fjórum baðherbergjum, stórri og bjartri borð- og setustofu, saunu, rúmgóðum bílskúr, sólríkum palli, heitum potti og aukaíbúð.
Aðalhæð hússins einkennist af opnu og björtu rými sem samanstendur af stofu og borðstofu, eldhúsi með tveimur ofnum, þvottahúsi, baðherbergi og anddyri. Þá er innangengt í 48 fermetra bílskúr. Á efri hæðinni er hjónaherbergi með sérbaðherbergi, fjögur svefnherbergi til viðbótar, baðherbergi og þaksvalir.
Húsið er staðsett aftarlega á lóð sem gefur gott næði og með eigninni fylgir 61,9 fermetra aukaíbúð með sérinngangi sem nýtist vel til útleigu eða fyrir stóra fjölskyldu. Við húsið er grasflöt og sólríkur pall sem vísar til suðurs og svo er skjólsælt svæði fyrir aftan húsið með heitum potti og geymslu.
Nánar má lesa um eignina á fasteignavef Vísis og hér að neðan má sjá myndir af henni.