Fjöldi athugasemda með mjög svipuðu orðalagi á bjagaðri íslensku hafa sprottið upp undir Facebook færslu Alfreðs Tulinius um Vélfag og Viðreisn síðustu daga. Eðli og orðalag athugasemdanna hafa vakið spurningar um hvort um geti verið að ræða ákaflega undarlega tilviljun eða skipulagða árás svokallaðra botta“ en bottar eru sjálfvirk forrit sem pósta fjölda færslna eða í þessu tilviki athugasemda.
Alfreð gagnrýndi Viðreisn og formann flokksins, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, vegna máls Vélfags á Akureyri. Hann sakaði stjórnvöld meðal annars um að hafa eyðilagt 35 manna hátæknifyrirtæki og hvatti Akureyringa til að hafna Viðreisn í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Undarlegar athugasemdir
Fljótlega eftir að færslan fór í loftið fóru tugir athugasemda að birtast undir færslunni. Athugasemdirnar komu frá ólíkum reikningum sem þó notuðu sambærilegt orðalag, sömu þemu og mjög svipaða framsetningu. Auk þess sem flestir virðast eiga það sameiginlegt að vera glænýir aðgangar og ekki vera virkir utan þess að setja athugasemdir undir færslu Alfreðs.
Í skjáskotum má sjá að margir reikninganna vísa til „Svisslendingsins“ sem raunverulegs stjórnanda Vélfags og halda því fram að Alfreð sé aðeins „strengjabrúða“ eða „maríónetta“.
Þar virðist verið að vísa til svissneska fjárfestisins Ivan Kaufmann sem íslensk stjórnvöld hafa sakað um að vera lepp fyrir rússneska aðila.
Á grundvelli þeirra ásakana gripu stjórnvöld til refsiaðgerða gegn Vélfagi, sem leiddi meðal annars til þess að fyrirtækið missti aðgang að bankakerfum og viðskiptasamböndum.
Alltaf sama mynstrið
Meðal skilaboða sem birtust ítrekað undir færslunni voru:
„Alfreð hlýðir. Ráðherrann stjórnar.“
„Svisslendingurinn ræður öllu.“
„Ráðherrann okkar bjargaði Íslandi.“
„Við viljum ekki stríð.“
„Refsiaðgerðir ESB eru öryggið okkar.“
Athygli vekur að í mörgum tilfellum birtu sömu aðgangar tvær athugasemdir í röð með nær eins uppbyggingu. Fyrri athugasemdin beindist að Alfreð sjálfum en sú seinni varði eða lofaði Þorgerði Katrínu.
Í sumum tilfellum birtust til dæmis skilaboðin:
„Alfreð hlýðir. Ráðherrann stjórnar.“
„Ráðherrann okkar hlýðir ekki öðrum, bara lögum og samvisku.“
Þá má einnig sjá að fjölmargir reikninganna nota sömu lykilorð og þemu, meðal annars um „frið“, „ESB“, „Rússland“, „svissneska peninga“ og „erlend áhrif“, þrátt fyrir að upprunalega færsla Alfreðs hafi fyrst og fremst snúist um Vélfag og sveitarstjórnarmál á Akureyri.
Ekki liggur fyrir hver stendur að baki athugasemdunum undir færslu Alfreðs né hvort um skipulagða herferð sé að ræða.
Fyrir neðan eru nokkur af þessum undarlegu athugasemdum.

