Grætti nánast alla í at­höfninni - Vísir

Grætti nánast alla í at­höfninni - Vísir

Grætti nánast alla í at­höfninni - Vísir

Unnur Elísabet Gunnarsdóttir ber marga hatta og hefur komið víða við í íslensku listasenunni. Hún er leikstjóri, leikkona, dansari, fjöllistakona og nú síðast tónlistarkona en hún samdi einmitt lag til eiginmannsins og flutti á brúðkaupsdaginn. 

Glæsileg hjón. Ólöf Kristín Helgadóttir

Þorgils Helgason, sem er viðskiptastjóri hjá Samtökum iðnaðarins og veiðimaður, hafði verið að undirbúa trúlofunina í dágóða stund áður en hann fór á skeljarnar og spilaði matareitrun stórt hlutverk í biðinni.

„Við trúlofuðumst í páskafríi á Tenerife árið 2024. Ég hafði verið með hringinn á mér í nokkurn tíma en alltaf kom lítill ungur maður einhvern veginn í veg fyrir að ég gengi til verks. Síðasta kvöldið á hótelsvölunum opnaðist loksins gluggi og ég fór á skeljarnar.

Upphaflega ætlaði ég þó að biðja Unnar nokkrum árum fyrr þegar við vorum í ferðalagi um Mið-Ameríku. Þá vorum við stödd í Antigua í Gvatemala og ég hafði skipulagt göngu upp á Acatenango-eldfjallið, þar sem við áttum að gista í tjaldi og horfa á virkt eldfjall kasta eldtungum út í nóttina. Þar ætlaði ég að finna hið fullkomna augnablik.

En örlögin höfðu önnur plön. Við fengum bæði rosalega matareitrun sem lagði okkur alveg í rúmið í nokkra daga. Þegar við vorum loksins komin til heilsu var komið að næsta áfangastað og trúlofunin fór á ís, þar til Tenerife fimm árum síðar,“ segir Þorgils.

Trúlofunin hafði verið í bígerð í fimm ár.Aðsend

Blaðamaður ræddi svo nánar við Unni Elísabetu um brúðkaupið.

Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn?

Það eru tvö ár síðan hann bað mín. Við vissum strax að við vildum halda brúðkaupið í Sitges á Spáni. Við bjuggum þar þegar ég var í meistaranámi fyrir sex árum og urðum algjörlega ástfangin af þessum fallega strandbæ.

Við elskum að ferðast saman og þetta passaði okkur fullkomlega. Við bókuðum staðinn með um eins og hálfs árs fyrirvara og síðan hófst skipulagningin fyrir alvöru.

Unnur Elísabet og Þorgils bjuggu í Sitges og völdu að gifta sig þar. Þau segja brúðkaupið ástarveislu aldarinnar.Aðsend

Hvernig var brúðkaupsdagurinn?

Vá! Við erum enn þá svífandi á bleiku skýi og eiginlega hálf orðlaus. Þetta var fallegasti dagur sem við höfum upplifað.

Þetta var sannkölluð ástarveisla þar sem fólk hló og grét til skiptis. Þorgils grætti nánast alla í athöfninni. Við vildum hafa daginn mjög persónulegan og fórum með brúðarheit fyrir framan alla gestina.

Bolli Már vinur okkar gaf okkur saman af einstakri hlýju og snilld. Það voru falleg tónlistaratriði, frábær matur og afburðar cava flæddi um allt. Okkur leið smá eins og maður væri staddur í Mamma Mia.

Svo tók við besta partý lífs okkar þar sem fjögurra ára sonur okkar, Arnmundur, keyrði stemninguna í gang fyrir kvöldverðinn og setti tóninn fyrir allt kvöldið.

Börn hjónanna Milla og Arnmundur spiluðu stórt hlutverk í brúðkaupinu.Aðsend

Voruð þið með einhverja viðburði dagana í kringum brúðkaupið?

Flestir gestirnir komu út á fimmtudeginum og það var dásamlegt að rölta um bæinn og hitta öll þessi góðu og kunnuglegu andlit.

Á föstudeginum fórum við með alla í rútuferð á cava-vínekru Rovellats. Þar tók á móti gestum ískalt verðlaunafreyðivín, óáfengir drykkir og léttur matarsmakksseðill. Lifandi spænsk gítartónlist skapaði einstaka stemningu á meðan við buðum alla velkomna.

Daginn eftir brúðkaupið hittumst við svo á ströndinni í drykk og afslappaða samveru. Upphaflega átti þetta að vera stutt og létt dagskrá en endaði í löngu spjalli, hlátri og smá sötur sem stóð langt fram eftir degi. Veðrið, umhverfið og fólkið gerðu helgina fullkomna.

Mikið stuð í strandpartýinu!Aðsend

Voruð þið sammála í skipulaginu?

Já, við vorum ótrúlega samstíga í öllu ferlinu.

Hjónin eru mjög samstíga og byrjuðu ástarveisluna á boði á vínekru.Ólöf Kristín Helgadóttir

Hvað fannst ykkur mikilvægast í skipulaginu?

Að hafa gaman og dekra við gestina okkar. Við skrifuðum persónulegt bréf til allra gestanna, sem varð eitt af því skemmtilegasta við undirbúninginn. Við sátum á ótal kaffihúsum og skrifuðum kortin saman.

Við fórum líka í smakkferð til Sitges tveimur mánuðum fyrir brúðkaupið. Það var dásamleg afsökun til að fara út, smakka matinn, skipuleggja og njóta. Við lögðum mikið upp úr góðu flæði. Við slepptum til dæmis langri myndatöku og tókum aðeins um fimmtán mínútur í brúðkaupsmyndir. Okkur langaði miklu frekar að vera með gestunum okkar.

Við vildum líka að Arnmundur upplifði sig sem stóran hluta af veislunni. Þess vegna hófum við kvöldið á danspartýi fyrir hann. Hann valdi fimm lög og allir dönsuðu með honum. Þetta var eitt af skemmtilegustu augnablikum dagsins. Síðan fór hann alsæll að sofa um hálfníu, sannfærður um að partýið væri búið.

Gleðin var sannarlega við völd.Aðsend

Hvað stendur upp úr?

Það er eiginlega ómögulegt að velja. Vínekran, táraflóð Þorgils, tónlistin, atriðin, fólkið okkar, veislustjórarnir, danspartýið með Arnmundi og svo ræða Millu, sautján ára dóttur okkar, sem grætti allan salinn með fallegum og hjartnæmum orðum.

Allt við veisluna stóð upp úr að mati hjónanna.Aðsend

Sáu einhverjir um veislustjórn og voru skemmtiatriði?

Við vorum með frábæra vini okkar sem veislustjóra: Berglindi Rafnsdóttur, Ellen Margréti Bæhrenz og Sigþór Stein Ólafsson. Þau stýrðu veislunni af miklum glæsibrag. 

Það voru fjölmörg skemmtiatriði, tónlistaratriði og fyndnar ræður enda eigum við einstaklega skemmtilega vini og fjölskyldu. Ég samdi líka lag til Þorgils sem ég flutti fyrir hann við undirleik Arnmundar Ernst.

Hjónin eru samstíga og Unnur söng fyrir Þorgils við undirspil Arnmundar.Aðsend

Var eitthvað sem kom ykkur á óvart?

Hvað við og allir aðrir grétum mikið. Og kannski bara hvað þetta var ótrúlega skemmtilegt og gekk vel upp.

Gleðin skein úr eugum foreldra brúðhjónanna.Aðsend

Hvað voru margir gestir?

115 gestir.

115 gestir í miklu stuði.Ólöf Kristín Helgadóttir

Hvernig gekk að velja brúðkaupsfötin og hvaðan sóttirðu innblásturinn?

Ég fór í vinkonuferð til Barcelona og fann þar fallegt vintage-brúðarsett sem var nákvæmlega það sem ég hafði séð fyrir mér. Það var líka mjög góð afsökun til að fara í útlandaferð með vinkonunum. Við vorum í vikuferð og fundum kjólinn í fyrstu og einu búðinni sem við fórum í á síðasta deginum.

Unnur fann brúðarsettið í nytjaverslun í Barcelona.Aðsend

Varstu með fataskipti?

Já, nokkur svona til gamans. Þetta var jú þriggja daga brúðkaup. Vínekrudress, kvölddress, brúðarkjóll, danskjóll fyrir lok kvöldsins og auðvitað bikinídress fyrir stranddaginn á sunnudeginum.

Unnur rokkaði nokkur skemmtileg dress.Aðsend

Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup?

Hafið gaman. Gefið gestunum að borða og drekka um leið og athöfninni lýkur. Kyssist mikið. Verið með fólkinu ykkar, njótið augnabliksins og sleppið takinu á smáatriðunum.

Síðan er áfangastaða-brúðkaup alveg einstaklega skemmtilegt því það skapar svo þétta og góða stemmningu sem skein svo í gegn í andlitum gestanna. Við erum svo glöð að við gátum skapað þessa upplifun fyrir vini okkar og fjölskyldu.

Lykillinn að sögn Unnar er meðal annars að kyssast mikið og sleppa tökum á smáatriðum.Ólöf Kristín Helgadóttir

Hvernig er tilfinningin að lenda eftir svona veislu?

Við erum fyrst og fremst ótrúlega þakklát fyrir fólkið okkar. Við áttum okkur enn betur á því hvað við erum rík af góðum vinum og fjölskyldu. Þetta var ástarpartý aldarinnar í okkar huga.

Brúðhjónin eru algjörlega í skýjunum eftir Sitges.Aðsend
#alla #athöfninni #grætti #nánast #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262903620d/graetti-nanast-alla-i-at-hofninni

📰 Aðrar fréttir

Beta Reynis syrgir föður sinn og stendur frammi fyrir nýjum lærdómi – „Sorgin birtist ekki alltaf sem tár“
📅 02.10.2026 👁️ 0
Beta Reynis syrgir föður sinn og stendur frammi fyrir nýjum lærdómi – „Sorgin birtist ekki alltaf sem tár“
Í dag, 2. október, er afmælisdagur Reynis heitins Árnasonar, en hann lést fyrir tæplega ári síðan, þá nýorðinn 78 ára gamall. Dóttir hans, næringarfræ...
Heimir furðar sig á aðgerðaleysinu: „Þetta er svo ofboðslega ljótur og stór smánarblettur á okkur“
📅 02.10.2026 👁️ 0
Heimir furðar sig á aðgerðaleysinu: „Þetta er svo ofboðslega ljótur og stór smánarblettur á okkur“
„Það sló mig verulega að sjá í fréttum að það væru fjórtán pláss í notkun, fjórtán pláss í notkun á Vogi. Staðan á Íslandi er sú að það að eru á milli...
Heiða í veikinda­leyfi - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 0
Heiða í veikinda­leyfi - Vísir
Þetta var tilkynnt á fundi forsætisnefndar fyrr í vikunni. Þar segir að Heiða hafi skilað inn tilkynningu um veikindaleyfi ásamt læknisvottorði þar se...
„Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 0
„Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ - Vísir
Fyrsta sería af ferðaþáttunum Einni stjörnu kom út árið 2024 þar sem Dóri og Steindi flökkuðu milli ólíkra staða í leit að einnar stjörnu afþreyingu o...
Fag­fé­lögin kalla eftir heimild til að slíta kjara­samningum - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 0
Fag­fé­lögin kalla eftir heimild til að slíta kjara­samningum - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu þeirra þar sem þau fordæma viðbragðsleysi Samtaka atvinnulífsins við stöðunni.  „Tilefni fundarins er sú st...
„Þá hafi hópur manna frá sama landi sett sig í samband við hana og beitt hótunum svo hún hætti við skilnað“
📅 02.10.2026 👁️ 1
„Þá hafi hópur manna frá sama landi sett sig í samband við hana og beitt hótunum svo hún hætti við skilnað“
Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður segir barnavernd ekki hafa gripið nægilega hratt inn í mál þar sem staðfest sé að börn hafi verið vanrækt og mis...
Gengst loksins við fjöru­tíu ára gömlu ástar­ævin­týri með Turner - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Gengst loksins við fjöru­tíu ára gömlu ástar­ævin­týri með Turner - Vísir
Douglas segir frá þessu 42 ára gamla framhjáhaldi í nýrri ævisögu sinni, One Helluva Ride, sem kemur út þann 6. október næstkomandi.  Þegar kvikmyndin...
Alison Hammond has heart check-up in hospital after leaving TV's This Morning
📅 02.10.2026 👁️ 1
Alison Hammond has heart check-up in hospital after leaving TV's This Morning
The host says she is "fine" but getting checked after leaving This Morning midway through Friday's show.
Ung­lingar bundnir og skildir eftir við heimili - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Ung­lingar bundnir og skildir eftir við heimili - Vísir
Í byrjun september var drengur á unglingsaldri bundinn af öðrum ungmennum þannig að hann var ósjálfbjarga og skilinn eftir í kjallara fjölbýlishúss. S...
Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja - Vísir
Málflutningur var í aðalmeðferðinni í dag og fer héraðssaksóknari fram á 16 ár. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, settur varahéraðssaksóknari, í...
Þurfa að verja stöðuna frekar en að sækja fram
📅 02.10.2026 👁️ 1
Þurfa að verja stöðuna frekar en að sækja fram
Móðir ungs manns með downs heilkennið og einhverfugreiningu sagði frá því í Þetta helst að hún hefði áhyggjur af heilsu hans. Eftir að hann flutti að ...
Allir sau­tján frjálsir ferða sinna - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Allir sau­tján frjálsir ferða sinna - Vísir
Enginn sætir gæsluvarðhaldi vegna málsins eins og stendur. Þetta staðfestir E. Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs lögreglun...
Segir ekkert ósætti hafa verið milli sín og Harðar Arnarsonar
📅 02.10.2026 👁️ 1
Segir ekkert ósætti hafa verið milli sín og Harðar Arnarsonar
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, þvertekur fyrir að ósætti hafi verið á milli hans og Harðar Arnarsonar sem lét í gær af störfum...
Fara fram á 16 ára fangelsi yfir Georgios
📅 02.10.2026 👁️ 1
Fara fram á 16 ára fangelsi yfir Georgios
Héraðssaksóknari krefst hámarksrefsingar, eða 16 ára fangelsis, yfir Georgios Ntentes grískum manni sem er ákærður um að hafa banað portúgölskum manni...
Skipar sérstakan saksóknara vegna Cornell-málsins
📅 02.10.2026 👁️ 1
Skipar sérstakan saksóknara vegna Cornell-málsins
Kathy Hochul, ríkisstjóri New York, skipaði Letitiu James í embætti sérstaks saksóknara til að rannsaka ásakanir um að konu hefði verið nauðgað af hóp...
Bæklunarskurðlæknir með mikilvæg skilaboð til fólks á GLP-1 lyfjum
📅 02.10.2026 👁️ 1
Bæklunarskurðlæknir með mikilvæg skilaboð til fólks á GLP-1 lyfjum
Bæklunarskurðlæknirinn Brian I. Neannunu hvetur fólk til að vera meðvitað um áhættur þyngdartapslyfja á borð við Ozempic, Wegovy og Mounjaro.Hann ræði...
Varpa fram kenningum um uppsögn Harðar: „Annars eigið þið skilið að sitja uppi með sögusagnir“
📅 02.10.2026 👁️ 1
Varpa fram kenningum um uppsögn Harðar: „Annars eigið þið skilið að sitja uppi með sögusagnir“
Hörður Arnarson ákvað í gær að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar eftir 17 ár í starfi, fór hann beint í frí og ætlar svo að starfa úr októb...
Vildu forsjá barna sinna til baka og hótuðu að hætta við skilnaðinn ef þau fengju ekki sínu framgengt
📅 02.10.2026 👁️ 1
Vildu forsjá barna sinna til baka og hótuðu að hætta við skilnaðinn ef þau fengju ekki sínu framgengt
Landsréttur hefur svipt hjón forsjá fjögurra barna sinna vegna langvarandi heimilisofbeldis og óforsvaranlegra uppeldisaðstæðna. Fjölskyldan kom til Í...
Deilt um stjórnarhætti í Landsvirkjun
📅 02.10.2026 👁️ 1
Deilt um stjórnarhætti í Landsvirkjun
Deilt um stjórnarhætti í Landsvirkjun Fréttin2. október 2026Björn Bjarnason, InnlentLeave a Comment Hörður Arnarson, fv. forstjóri Landsvirkjunar. Bjö...
„Við erum ó­þolin­móð“ - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
„Við erum ó­þolin­móð“ - Vísir
Greint var frá því í sameiginlegri yfirlýsingu Hafnarfjarðar og Tækniskólans þann 14. september að samkomulag aðilanna um uppbyggingu nýs húsnæðis við...
Fjörðurinn sem var friðaður í ræðustól
📅 02.10.2026 👁️ 1
Fjörðurinn sem var friðaður í ræðustól
Fjörðurinn sem var friðaður í ræðustól Fréttin2. október 2026Aðsend grein, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Haustið kemu...
London Fire Brigade named in Met's investigation file on Grenfell
📅 02.10.2026 👁️ 1
London Fire Brigade named in Met's investigation file on Grenfell
The brigade is among 20 organisations the police have compiled evidence against since 2017.
„Drepið hana!“ – Lögreglukona elt og barin í París á meðan skólar og slökkvibíll eru brenndir
📅 02.10.2026 👁️ 1
„Drepið hana!“ – Lögreglukona elt og barin í París á meðan skólar og slökkvibíll eru brenndir
Mótmæli framhaldsskólanemenda í Frakklandi vegna kennaraskorts, yfirfullra bekkja og lélegs skólahúsnæðis hafa staðið frá 21. september, eða í tæpar t...
Disruptive passengers could be banned from multiple airlines under new UK rules
📅 02.10.2026 👁️ 1
Disruptive passengers could be banned from multiple airlines under new UK rules
Passengers who seriously disrupt flights or behave dangerously could find themselves banned from travelling with multiple airlines under new measures ...
Greens can move Labour in the right direction, says Zack Polanski
📅 02.10.2026 👁️ 1
Greens can move Labour in the right direction, says Zack Polanski
The Green leader tells his autumn conference that a vote for his party can force changes from Andy Burnham.
Ætla að breyta félagaformi Orkuveitunnar
📅 02.10.2026 👁️ 1
Ætla að breyta félagaformi Orkuveitunnar
Ætla að breyta félagaformi Orkuveitunnar Um­sögn fjár­mála- og áhættu­stýr­ing­ar­sviðs vegna fyr­ir­hug­aðra breyt­inga á fé­laga­formi Orku­veit­unn...
Minni gjaldahækkanir kosti ríkis­sjóð 2,5 milljarða - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Minni gjaldahækkanir kosti ríkis­sjóð 2,5 milljarða - Vísir
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra staðfestir að stjórnvöld séu reiðubúin að takmarka hækkanir krónutölugjalda við 2,5 prósent ef kjarasamningar h...
Þetta eru stæðin sem borgin hefur endur­heimt - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Þetta eru stæðin sem borgin hefur endur­heimt - Vísir
Málið var rætt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs á miðvikudag, þar sem kynnt voru hvílustæði, götugögn á borð við blómapotta og bílastæði í miðborgi...
Breyting á aðalskipulagi ógnar störfum í Reykjanesbæ
📅 02.10.2026 👁️ 1
Breyting á aðalskipulagi ógnar störfum í Reykjanesbæ
Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir breytingar á aðalskipulagi hafa orðið til þess að 20 manns var sagt upp hjá fiskvinnslunni Premium...
Segir á­greininginn í Lands­virkjun ekki snúast um arð­greiðslur - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Segir á­greininginn í Lands­virkjun ekki snúast um arð­greiðslur - Vísir
Hörður tilkynnti í gær að hann myndi láta af störfum eftir sautján ár sem forstjóri Landsvirkjunar. Kristín Linda Árnadóttir aðstoðarforstjóri tekur t...
Conservatives aim to be election-ready ahead of party conference
📅 02.10.2026 👁️ 1
Conservatives aim to be election-ready ahead of party conference
The party will focus on the economy and welfare, as Kemi Badenoch tells her team to prepare for a possible early election.
Best Web Hosting for UK Small Businesses in the Canaries: A 2026 Comparison
📅 02.10.2026 👁️ 1
Best Web Hosting for UK Small Businesses in the Canaries: A 2026 Comparison
Run a rental agency in Playa de las Américas or a dive school in Costa Teguise, and your website's uptime matters more than your Instagram following. ...
Magnea Björg sá strax eftir því að hafa opnað drykkinn – Sjáðu myndbandið
📅 02.10.2026 👁️ 1
Magnea Björg sá strax eftir því að hafa opnað drykkinn – Sjáðu myndbandið
Áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Magnea Björg Jónsdóttir sá heldur betur eftir því þegar hún opnaði dós af útrunnum Nocco drykk.„Búin að geyma...
I've seen nearly 500 executions - but never one like Christa Pike's
📅 02.10.2026 👁️ 1
I've seen nearly 500 executions - but never one like Christa Pike's
Texas reporter Michael Graczyk has seen botched executions in his time, but not one in which an inmate survived.
Dolly Parton sings Jolene in Welsh in recording released after her death
📅 02.10.2026 👁️ 1
Dolly Parton sings Jolene in Welsh in recording released after her death
Parton's niece Jada Star and Welsh singer Bronwen Lewis say the country artist was proud to sing in Welsh.
Þórður Snær segir þetta ástæðuna fyrir því að ríka fólkið vilji ríkisstjórnina burt
📅 02.10.2026 👁️ 1
Þórður Snær segir þetta ástæðuna fyrir því að ríka fólkið vilji ríkisstjórnina burt
Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, segir að eigið fé tekjuhæstu tíundar þjóðarinnar hafi vaxið um 92 prósent eða 2....
3.2 earthquake felt across Fuerteventura
📅 02.10.2026 👁️ 1
3.2 earthquake felt across Fuerteventura
A magnitude 3.2 earthquake was recorded off the coast of Fuerteventura early this morning (Friday) and was strong enough to be felt by people on the i...
Aug­lýsing fyrir Bleiku slaufuna frum­sýnd á Vísi og Sýn - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Aug­lýsing fyrir Bleiku slaufuna frum­sýnd á Vísi og Sýn - Vísir
Bleika slaufan er árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins í október, tileinkað baráttunni gegn krabbameini hjá konum.  Sjónvarpsauglýs...
Kanye bannað að koma fram í Rússlandi fyrir að vegsama nasisma
📅 02.10.2026 👁️ 1
Kanye bannað að koma fram í Rússlandi fyrir að vegsama nasisma
Kanye bannað að koma fram í Rússlandi fyrir að vegsama nasisma Fréttin2. október 2026Erlent, TónlistLeave a Comment Kanye West. Bandaríski rapparinn o...
Modi hefur „mjög góðar hugmyndir“ til að binda enda á átökin í Úkraínu – Pútín
📅 02.10.2026 👁️ 1
Modi hefur „mjög góðar hugmyndir“ til að binda enda á átökin í Úkraínu – Pútín
Modi hefur „mjög góðar hugmyndir“ til að binda enda á átökin í Úkraínu – Pútín Fréttin2. október 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Vladímír Pú...
Mikilvægt að halda líka aftur af kílómetragjaldinu
📅 02.10.2026 👁️ 1
Mikilvægt að halda líka aftur af kílómetragjaldinu
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness, segir að stjórnvöld verði að halda aftur af hækkunum kílómetragjal...
„Þungur vetur framundan á vinnumarkaði“
📅 02.10.2026 👁️ 1
„Þungur vetur framundan á vinnumarkaði“
181 var sagt upp í sex hópuppsögnum í september, flestum á sviði hugbúnaðar- og upplýsingatækni. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir margt benda til að...
Fékk ótrúlegar fréttir 58 ára – Heimsfrægur söngvari reyndist faðir hans
📅 02.10.2026 👁️ 1
Fékk ótrúlegar fréttir 58 ára – Heimsfrægur söngvari reyndist faðir hans
Michael Goessling hafði alla tíð vitað að hann væri ættleiddur og vissi lítið um líffræðilegan uppruna sinn. Það breyttist heldur betur þegar DNA-próf...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Frá fyrsta sæti í það tuttugasta og sjötta
📅 02.10.2026 👁️ 1
Sigvaldi Einarsson skrifar: Frá fyrsta sæti í það tuttugasta og sjötta
Alþjóðahugverkastofnunin (WIPO) birti nýsköpunarvísitölu ársins 29. september. Ísland er í 26. sæti, niður úr 24. í fyrra, og neðst Norðurlandanna: Sv...
Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut - Vísir
Þetta kemur fram í umfjöllun Variety sem hefur þetta eftir leikaranum. Cumming fer með hlutverk X-mannsins Nightcrawler í myndinni. Hann fór síðast me...
Geri málið tor­tryggi­legt að neita að svara - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Geri málið tor­tryggi­legt að neita að svara - Vísir
Frá því að Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, steig fram og skilaboð milli hans og fyrrverandi aðstoðarkonu hans vo...
„Við höfum séð mikla aukningu á því á Ís­landi“ - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
„Við höfum séð mikla aukningu á því á Ís­landi“ - Vísir
Á síðasta ári var greint frá nýju efni á vímuefnamarkaði hér á landi, efni sem kallað er 4-CMC, sem virðist nú vera búið að ná fótfestu.  Adam Erik Ba...
Kortavefurinn með meiri hraða og betra aðgengi í gegnum símtæki
📅 02.10.2026 👁️ 1
Kortavefurinn með meiri hraða og betra aðgengi í gegnum símtæki
Kortavefurinn map.is hefur verið uppfærður. Hraðinn er orðinn meiri, útlitið er frísklegra og Íslandskortið er nú sérstaklega sett upp fyrir síma. All...
Allt að 5,7% verðlækkun hjá Hyundai á Íslandi
📅 02.10.2026 👁️ 1
Allt að 5,7% verðlækkun hjá Hyundai á Íslandi
Hyundai á Íslandi lækkaði á fimmtudag verð á sex bílgerðum umboðsins og nemur lækkunin um á bilinu 3,8 - 5,7 prósenta. Verðlækkunin er mismikil eftir ...
RÚV-aktívismi og mótun umræðunnar
📅 02.10.2026 👁️ 1
RÚV-aktívismi og mótun umræðunnar
RÚV-aktívismi og mótun umræðunnar Fréttin2. október 2026Eurovision, Innlent, Páll Vilhjálmsson, RÚVLeave a Comment Diljá Ámundadóttir varaþingmaður Vi...