Þetta er á meðal verkefna Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá í dag.
Annars staðar í borginni, í umdæmi lögreglustöðvar tvö sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ, ók maður á barn og yfirgaf svo vettvang. Hann var stöðvaður við akstur skömmu síðar.
Lögreglumenn á lögreglustöð þrjú sem sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti fór á vettvang þar sem mannlaus bifreið hafði verið skilin eftir á gatnamótum. Hún var fjarlægð að beiðni lögreglu.