Íris Edda Heimisdóttir, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi, staðfestir í samtali við blaðamann að aðgerðirnar á mánudag hafi gengið vel en hún greindi einnig frá því að eitt húsnæði sé enn innsiglað og rannsókn á málinu sé ekki lokið.
Komið að læstum dyrum
Athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson á og rekur farfuglaheimilið Ljósafosskóli Hostel og lúxusgistinguna Golden Circle Dome en samkvæmt heimildum fréttastofu var ráðist í umfangsmiklar aðgerðir á báðum stöðum síðasta mánudag, þann 17. ágúst.
Starfsfólk hafi verið flutt á brott og gestir sem áttu bókaða gistingu komið að læstum dyrum dagana á eftir. Haft var samband við Sverri sem hefur ekki viljað tjá sig um málið að svo stöddu.
Umfangsmikil vinna
Íris gat ekki greint frá því að hverra beiðni var ráðist í aðgerðirnar, einungis að þær hafi verið samstarf skattsins, ASÍ, heilbrigðiseftirlitsins og lögreglunnar sem sé kölluð til þegar um grun um lögbrot sé að ræða.
Aðgerðirnar hafi verið vinnustaðaeftirlit sem hún gat staðfest að hefði gengið vel. Vinnan sé umfangsmikil og það sé ekki hægt að staðfesta fleira í bili.
Í skriflegu svari sagði Saga Kjartansdóttir, lögfræðingur hjá vinnueftirliti ASÍ, lokunina ekki hafa verið að beiðni sambandsins.
Ertu með ábendingu eða veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hérna. Fullum trúnaði er heitið.
Sverrir hefur stundað ýmis konar viðskipti í rúman aldafjórðung en hann hefur meðal annars komið að kaupum á gulli og demöntum, stundað lánastarfsemi, veitinga- og gistihúsarekstur, starfsmannaleigu og fleira.
Í nóvember 2025 var greint frá því að hann hafi verið ákærður fyrir meiri háttar skattalagabrot með því að hafa, sem stjórnandi fjögurra félaga, ekki staðið skil á alls 59,7 milljónum króna í opinber gjöld.
Ertu með ábendingu eða veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hérna. Fullum trúnaði er heitið.