Getur Samfylkingin hlaupist frá verkum sínum með svo einföldum hætti?

Jón Magnússon skrifar:
Til umhugsunar
Hvernig stendur á því að Samfylkingin treystir ekki borgarstjóranum sínum til að leiða lista flokksins í Reykjavík?
Hvernig stendur á því að Samfylkingin fékk óreyndan mann með stjórnmálalega forsögu í Sjálfstæðisflokknum til að leiða listann og sá hamast við að þykjast ekkert vita um óstjórn Samfylkingarinnar sl. 15 ár.
Getur Samfylkingin hlaupist frá verkum sínum með svo einföldum hætti?
Lóðarskorturinn. Ítrekuð skipulagsslys. Slæm meðferð á fjármunum borgarinnar sbr. t.d. bragginn. Umferðaröngþveiti hvern einasta dag. Alvarlegur skortur á dagheimilum. Skuldsetning til frambúðar vegna hælisleitenda.
Síðast en ekki síst að gefa gróðapungum í Reykjavík milljarða á milljarða ofan með gjafagerningi um lóðir undir bensínstöðvar. Kreditkortamisferli borgarstjóra er e.t.v. einn billjónasti af því sem Dagur B. stóð fyrir að gefa auðmönnum í bensínstöðvagerningnum.
Hvernig er hægt að greiða Samfylkingunni atkvæði eftir þessa óstjórn. En þetta er bara hluti af því sem telja mætti upp. Samfylkingin hefur dæmt sig úr leik vegna langvarandi óstjórnar í málefnum Reykvíkinga.