Óttar Karlsson, varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, segir vel hafa gengið að ráða niðurlögum eldsins sem kom upp í sumarbústað um hádegið í dag eftir að slökkvilið kom á staðinn. Þrír slökkviliðsbílar voru kallaðir út vegna brunans.
„Þegar við komum þá er húsið alelda hérna, einn maður var í húsinu en var kominn út og tilkynnir. Þetta var bara slökkvistarf utan frá hjá okkur.“
Bústaðurinn er rétt fyrir ofan Gunnarshólma, skammt frá Suðurlandsvegi. Maðurinn sem var í húsinu var fluttur á bráðamóttöku vegna gruns um reykeitrun.
Óttar segir bústaðinn vera gjörónýtan.
„Þetta er fljótt að fara þegar það kemst alvöru eldur í þetta. Þetta er farið, þótt það hangi uppi.“
Rannsókn á eldsupptökum er í höndum lögreglu.