Það eina sem þurfti að gera til þess að vera í pottinum var að vera áskrifandi Blökastsins.
Útsendingunni er nú lokið. Ef nafnið þitt var dregið þá færðu símtal í vikunni og gjöfina afhenta í kjölfarið.
„Við getum ekki beðið. Þetta er orðið árlegt hjá okkur að gefa yfir 50 pakka í byrjun sumarsins. Fólk þarf bara að vera áskrifandi að Blökastinu og þau geta verið dregin út,“ sagði Auddi fyrir útsendinguna.
Gjafirnar voru mjög fjölbreyttar en í gegnum tíðina hefur verið allt frá ullarsokkum yfir í flugferðir í pottinum.
Fréttin hefur verið uppfærð.