Á Íslandi eru vel yfir hundrað tegundir af mýflugum en þær eru tiltölulega fáar sem bíta.
Þetta segir Gísli Már Gíslason, pöddusérfræðingur við Háskóla Íslands, í samtali við mbl.is. Langt sé síðan landinn fór að verða var við bitmý, einkum við ár og læki, en lúsmý sé aftur á móti farið að láta á sér kræla í meira mæli víða um land.
„Það eru sjö tegundir af lúsmýi á Íslandi. Ein þeirra bítur spendýr. Það er þessi nýja tegund sem fannst fyrst hér á landi fyrir ellefu árum og getur verið óþolandi næturgestur,“ segir Gísli.
Reyna að útrýma henni svo hún breiðist ekki út
Gísli segir moskítóflugurnar tvær sem fundist hafa hér á landi ekkert hafa verið að angra fólk hingað til. Ekki sé heldur vitað hvernig tegundinni, sem fannst í Kjósinni og á Mógilsá, reiðir af.
„Ég yrði ekkert hissa ef hún væri búin að koma sér fyrir hérna. Ef hún hefur lifað af þarf hún líklega að lifa innandyra á veturna, þar sem lítið fer fyrir henni. Við munum væntanlega vita það í lok mánaðarins ef þær fara að sjást aftur, til dæmis í Kjósinni. Hún gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum,“ segir hann og nefnir jafnframt aðra moskítótegund á Suðurlandi sem lifði af veturinn og fannst í hesthúsi.
„Þar er verið að reyna að útrýma henni svo hún breiðist ekki út, en ég veit ekki hvernig það mun fara.“