Íbúðin er á annarri hæð í húsi sem var byggt árið 1956 og gengið er inn í sameiginlegt anddyri að aftan.
Eignin telur alls níu herbergi, sjö í aðalíbúðinni og tvö í aukaíbúð, þá fylgja tvö einkabílastæði íbúðinni á lóð fyrir framan bílskúrinn og einnig eru bílastæði við gafl hússins sem tilheyra íbúum þess.
„Búið er að endurnýja íbúðina með fallegum innréttingum frá HTH, fiskibeinsparketi og flísum á hluta af gólfi. Einstaklega stór og björt rými einkenna íbúðina með góðum gluggum í þrjár áttir,“ segir í lýsing íbúðarnnar á fasteignavef Vísis.
Aðalíbúðin samanstendur af forstofu, samliggjandi setustofu, borðstofu og eldhúsi, aukastofurými, baðherbergi og fimm svefnherbergjum.
Aukaíbúðin samanstendur af forstofu, alrými með eldhúsi og borðstofu, baðherbergi og svefnherbergi. Geymsla fyrir eignina er í hluta bílskúrsins og þvottaherbergi er í sameign á jarðhæð.