„Fyrir mér ert þú ó­heiðar­legt úr­hrak“ - Vísir

„Fyrir mér ert þú ó­heiðar­legt úr­hrak“ - Vísir

„Fyrir mér ert þú ó­heiðar­legt úr­hrak“ - Vísir

Þó mönnum geti fundist sitt um þá ákvörðun Barböru að kæra Margréti, hin kærðu orð hljóta endurnýjun lífdaga í meiðyrðamálum og er viðhaldið, kemur á óvart hversu orðljót Margrét er en hún er strangtrúuð. Það kann að skýra ákvörðun Barböru.

Einstakt í íslenskri réttarfarssögu

Séu ummæli Margrétar skoðuð sérstaklega má ljóst vera að þar er ekki kristilegum kærleiksblómum fyrir að fara. Málið er reyndar einstakt í íslenskir réttarfarssögu en hér eru dómarar að fjalla um mál sem snúa að hluta til að meintu sambandi dómara. Margrét hefur, í ítarlegu viðtali við Samstöðina, talað um að hún telji málið allt sýna að réttarfar á Íslandi sé í molum.

Greint hefur verið frá niðurstöðu dómsins en Vísir fylgdist með réttarhöldunum. Margrét var dæmd til að greiða 200.000 krónur í sekt til ríkissjóðs auk þess sem henni var gert að greiða 600.780 þúsund krónur til Skúla Sveinssonar fyrrum verjanda síns og 2/3 hluta 3.887.400 króna málsvarnalaun Hilmars Garðars Þorsteinssonar verjanda síns, en einn þriðji þeirra málsvarnarlauna greiðist úr ríkissjóði.

Einstaklega heiftúðug ummæli

Vísir hefur dóminn undir höndum og er þar sérstaklega tekið til þess að Margrét setti ummælin fram í „hita leiksins“ svo vitnað sé í hana sjálfa. En í dómnum er sagt að með ummælunum hafi verið vegið gróflega og að ósekju að mannorði og og starfsheiðri Barböru Björnsdóttur héraðsdómara. 

Dómarinn segir ummælin um Barböru tilhæfulaus og till þess eins fallin að valda henni vanlíðan. Þau eigi ekki erindi við almenning en í málinu togast á tjáningarfrelsi og æra Barböru Björnsson dómara og réttur hennar til friðhelgi einkalífs.vísir/lýður valberg

„Ummælin eru tilhæfulaus, dæma sig sjálf og eru rituð af einstaklingi sem var greinilega í mikilli geðshræringu yfir sakfellingardómi Barböru, sem síðar var snúið í Landsrétti,“  segir í dómsorði. Komið hefur fram að Margrét hyggst áfrýja þessum dómi.

Ummælin einkennast af heift en þau féllu eftir að dómsmál Margrétar gegn Semu Erlu Serdoroglu, en þar var Margréti gefið að sök líflátshótun gegn Semu: „I´m gonna kill you, you fucking bich“. Margrét var dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi. Í dómnum eru ummælin gegn Barböru þau tíunduð.

  1. Fimmtudaginn 9. febrúar: „Viðbjóðslegur dómur og lauslát mella gefur sinn dóm: Nú er ég sakfelld í dag af lauslátri konu sem seldi blíðu sína til að komast í stöðu dómara, Barbara Björnsdóttir er mella […].“ „Fyrir mér er þessi dómari lauslát mella sem hefurselt sálu sína, og því verður svarað.“
  2. Föstudaginn 10. febrúar: „Dómarinn tekur ekki mark á vitnum og falsar vitnisburði sem komu skýrt fram í dómsal. Fyrir mér er þetta glæpsamleg hegðun og þarna augljóslega verið að misnota dómsvaldið til að hefna sín á borgurum, ég skulda þessari lauslátu konu ekki neitt […].“
  3. Föstudaginn 10. febrúar: „Þara er augljóslega verið að misnota ríkisvaldið dómskerfið, en þess má geta að fv. rannsóknarlögreglumaður hafði samband við mig fyrir 2. vikum síðan til að tilkynna mér það að ég myndi tapa málinu og Barbara dómari væri með í því plotti, nú hefur það komið á daginn.“ „[…] ég skulda þessu siðblinda hyski sem hagræðir dómnum eftir beiðni, ekki neitt.“

Auk þessa, en það hefur ekki komið fram, sendi Margrét Barböru einkaskilaboð í gegnum Facebook-reikning sinn: „Þú fremur á mér réttarmorð, og kærir mig fyrir að mótmæla því með sannleikann að vopni, áhugavert. Þú ert komin í naflaskoðun hvað varðar óheiðarleika þinn og lauslæti, og ef þú telur þig yfir mig hafin þá skjátlast þér, því sannleikurinn sigrar ávalt óheiðarleikann. Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak í kerfinu sem ber að svara. Vertu sæl, þangað til næst.“

Meint samband dómara flækist inn í málið

Í dómnum er málið reifað fram og til baka. Margrét gekkst greiðlega við því að hafa ritað ummælin og vísaði til þess að Barbara væri gift kona sem haldið hefði við kvæntan mann, Símon Sigvaldason yfirmann sinn og dómsstjóra í Héraðsdómi Reykjavíkur. Símon hefur síðar verið skipaður dómari við Landsrétt. Þessi væri ástæðan fyrir því að hún teldi sig í fullum rétti, hún hafi verið sakfelld af lauslátri konu sem seldi blíðu sína í skiptum fyrir stöðu dómara. 

Hún hafi selt sálu sína fyrir með umræddum dómi, yfir sér í máli gegn Semu Erlu Serdaroglu sem hafi átt upptök að rifrildi í ágúst 2018, sem Margrét síðar hlaut dóm fyrir. Margrét sagðist standa við hvert orð.

Vísað er til skýrslu sem Barbara gaf hjá lögreglu 21. september 2023 þar sem hún greindi frá því að skrif Margrétar hafi flogið víða, þau hafi verið mjög truflandi fyrir fjölskyldu sína og hana sjálfa og hún vildi ekki sitja undir slíkum óhróðri. Þess vegna hafi hún kært.

Margrét hélt því fram að samband Barböru og Símonar væri altalað. Vísað var til bréfs sem ritað hafði verið til Dómstólasýslunnar 13. júní en það ritað Sigríður Hjaltested þar sem fjölyrt er um óviðeigandi samband þeirra Barböru og Símons. Barbara hafnaði því að hafa átt í ástarsambandi við Símon Sigvaldason en Símon neitaði að svara spurningunni. Hún væri óviðeigandi.

Svokallaður Simmi grimmi

Í dómsniðurstöðu er reifað að í málinu takist á tvö sjónarmið sem eru tjáningarfrelsi ákærðu og svo sjónarmið um æruvernd og friðhelgi einkalífs Barböru Björnsdóttur. Ákæruvaldið hafni því að Facebook skrif Margrétar geti talist „liður í opinberri umræðu um mikilvæg þjóðfélagsleg málefni og eigi af þeim sökum brýnt erindi við almenning.“

Í niðurstöðum um efni máls segir að Barbara hafi verið skipuð í embætti dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur 1. apríl 2013 og kosin varadómstjóri héraðsdóms 2017. Þar hlaut hún 12 af 19 greiddum atkvæðum samdómenda sinna. Barbara kvað upp dóm í sakamáli sem ákæruvaldið höfðaði gegn Margréti vegna hótunar í garð Semu Erlu. Þetta var 9. febrúar 2023. 

Eftir að heim kom var hún að eigin sögn mjög reið og í miklu áfalli og heitt í hamsi ritaði hún eftirfarandi færslu:

„Viðbjóðslegur dómur og lauslát mella gefur sinn dóm: Nú var ég sakfelld í dag af lauslátri konu sem seldi blíðu sína til að komast í stöðu dómara, Barbara Björnsdóttir er mella sem hélt við harðgiftan mann (Símon Sigvaldason) svokallaður Simmi Grimmi eða Símon vondi, sem hefur verið uppáhald ákæruvaldsins, því hann hefur dæmt saklausa menn að óskekju fyrir ákæruvaldið. Þetta siðblinda pakk er auðsjáanlega að kalla eftir stríði sem þau munu fá, því ranglæti er eitthvað sem ég mun aldrei samþykkja, og enginn vill lenda á þeim stað.“

Ummælin rituð af afar reiðum einstaklingi

Og Margrét er ekki búin:

„Vitni staðfestu minn vitnisburð, en það var ekki tekið mark á þeim. Sema viðurkenndi meira að segja að Hákon (vitni) hafi hringt í sig til að vara hana við að ég væri á staðnum en hún sagðist hafa misst af símtalinu, Hákon sagði hins vegar að hann hefði ekki haft símann með sér umrætt kvöld og þarna er auugljóst misræmi í vitnisburði sem dómari tekur ekki mark á. 

Fyrir mér er þessi dómari lauslát mella sem selt hefur sálu sína, og því verður svarað,. Og til að undirstrika allt þá verður þessu máli að sjálfsögðu áfrýjað og Símon Sigvaldar verður ekki tekinn sem gildur því hann á í ástarsambandi við umræddan dómara (og þetta er umtalað innan dómara og lögmannastéttarinnar.) Frumskógarlögmál stjórna Íslandi miðað við þennan úrskurð, svo mikið er víst.“

Í dómnum eru reifuð fordæmi hliðstæðra mála hjá Mannréttindadómstóli Evrópu. Þá vikið að ummælunum sem beri að meta heildstætt og í því samhengi sem þau eru sett fram. Er því ekki haldið fram af hálfu Margrétar, þó hún segðist fyrir dómi vera blaðamaður, að um fréttaflutning væri að ræða. Heldur væru ummælin rituð af afar reiðum einstaklingi og við það er miðað við úrlausn málsins.

Greint er frá því að fara verði varlega í að refsa einstaklingi sem fer út fyrir þau mörk tjáningarfrelsis sem varin eru af 10. gr. MSE og 73. gr. stjórnarskrár. Dómurinn tekur mið af þessum atriðum.

#ert #fyrir #mér #óheiðarlegt #úrhrak


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262900936d/-fyrir-mer-ert-thu-oheidarlegt-urhrak-

📰 Aðrar fréttir

Fá að leggja dagsektir á fiskvinnslu í Reykjanesbæ sem neitað hefur að fara eftir kröfu um lokun
📅 25.09.2026 👁️ 0
Fá að leggja dagsektir á fiskvinnslu í Reykjanesbæ sem neitað hefur að fara eftir kröfu um lokun
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu fiskvinnslu í Reykjanesbæ um að ákvörðun heilbrigðisnefndar Suðurnesja um að leggja dagse...
Mátti þrífa harka­lega í leikskólabarn - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Mátti þrífa harka­lega í leikskólabarn - Vísir
Atvikið átti sér stað í maí 2022 þegar starfsmaðurinn hafði afskipti af drengnum vegna þess að hann kastaði sandi á útisvæði leikskólans. Foreldrar dr...
Ekki hægt að gera ráð fyrir viðvörun á undan eldgosum
📅 25.09.2026 👁️ 2
Ekki hægt að gera ráð fyrir viðvörun á undan eldgosum
Fyrstu niðurstöður endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík voru kynntar í vikunni. Búið er að meta fjölmarga þætti sem þurfa að vera fyrir hendi til a...
Sakaður um að halda stjúpsystur sinni í heljargreipum nauðgana og kynferðisofbeldis á síðasta áratug
📅 25.09.2026 👁️ 3
Sakaður um að halda stjúpsystur sinni í heljargreipum nauðgana og kynferðisofbeldis á síðasta áratug
Héraðssakóknari hefur ákært mann fyrir ítrekaðar nauðganir og kynferðisbrot gegn barni en meint brot voru framin um miðjan síðasta áratug gegn stúlku ...
Óvíst hverju fundur Trumps og Xi muni skila:„Umgjörðin virðist meiri en innihaldið“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Óvíst hverju fundur Trumps og Xi muni skila:„Umgjörðin virðist meiri en innihaldið“
„Umgjörðin virðist vera aðeins meiri en innihaldið. En það þýðir ekki að þessi fundur hafi verið tilgangslaus. Það verður auðvitað hlé á þessu tollast...
Manchester City charges: Premier League club found guilty of breaking majority of 115 financial rules
📅 25.09.2026 👁️ 2
Manchester City charges: Premier League club found guilty of breaking majority of 115 financial rules
Manchester City have been found guilty of breaking the majority of the 115 financial rules they were accused of breaching.
Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vest­manna­eyjum - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vest­manna­eyjum - Vísir
Bjargdúfur eru friðaðar en bæjaryfirvöld fengu leyfi frá umhverfisráðuneytinu til fækkunar dúfnanna og leiðbeiningar frá Náttúruverndarstofnun um fram...
Nýjar vísbendingar um að Hitler hafi drepið manneskju með eigin höndum – „Líkið var ótvírætt þegar komið í íbúðina á þeim tímapunkti“
📅 25.09.2026 👁️ 3
Nýjar vísbendingar um að Hitler hafi drepið manneskju með eigin höndum – „Líkið var ótvírætt þegar komið í íbúðina á þeim tímapunkti“
Adolf Hitler er gjarnan nefndur sem ein versta manneskja sögunnar og því til stuðnings nefnt iðnaðarmorð hans á milljónum gyðinga og annarra hópa sem ...
Dani sættir sig ekki við að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur ætli ekkert að gera vegna „villandi“ merkinga á Swiss Miss
📅 25.09.2026 👁️ 2
Dani sættir sig ekki við að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur ætli ekkert að gera vegna „villandi“ merkinga á Swiss Miss
Kæra hefur verið lögð fram til atvinnuvegaráðuneytisins vegna ákvörðunar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um að aðhafast ekki frekar vegna kvörtunar y...
Meta talið hafa blekkt notendur í Cambridge Analytica-málinu
📅 25.09.2026 👁️ 2
Meta talið hafa blekkt notendur í Cambridge Analytica-málinu
Meta talið hafa blekkt notendur í Cambridge Analytica-málinu Kvið­dóm­ur í Nýju-Mexí­kó komst að þeirri nið­ur­stöðu að Meta hefði gef­ið not­end­um v...
Bið barna eftir þjónustu hefur lengst: „Þúsundir bíða mánuðum eða árum saman“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Bið barna eftir þjónustu hefur lengst: „Þúsundir bíða mánuðum eða árum saman“
Umboðsmaður barna segir stöðuna á biðlistum barna víða hafa versnað. Þúsundir bíði mánuðum eða jafnvel árum saman eftir greiningu, meðferð og þjónustu...
Á­kærður fyrir gróf brot á barn­ungri stjúp­systur sinni - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Á­kærður fyrir gróf brot á barn­ungri stjúp­systur sinni - Vísir
Þetta kemur fram í ákæru héraðssaksóknara, sem gefin var út 2. júlí síðastliðinn. Ákæran er í fjórum liðum og er maðurinn ákærður fyrir nauðgun og kyn...
Hækkun krónutölugjalda um áramót líklega minni en fjárlög kveða á um
📅 25.09.2026 👁️ 2
Hækkun krónutölugjalda um áramót líklega minni en fjárlög kveða á um
Allar líkur eru á að hækkun krónutölugjalda um áramót verði minni en fjárlögin kveða á um. Seðlabankastjóri vill að það nái yfir allan opinbera geiran...
Segir stjórn­endur Ung­frú Ís­land hafa gert upp á milli kepp­enda - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Segir stjórn­endur Ung­frú Ís­land hafa gert upp á milli kepp­enda - Vísir
Erla Talía Einarsdóttir var átján ára þegar hún keppti í Ungfrú Ísland árið 2025. Núna ári síðar hefur hún birt TikTok-myndband um reynslu sína af kep...
„Í sumum nágrannaríkjunum eru ráðherrar reknir og ráðnir eins og au-pair stúlkur“
📅 25.09.2026 👁️ 3
„Í sumum nágrannaríkjunum eru ráðherrar reknir og ráðnir eins og au-pair stúlkur“
Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir að upphrópanir gagnvart Flokki fólksins, Ingu Sæland og Ragnari Þór Ingólfssyni vegna brotthvarfs Guðmund...
Sjald­gæfur gestur í Eyjum - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 3
Sjald­gæfur gestur í Eyjum - Vísir
Tígull greinir frá komu þessa sjaldgæfa gests. Eyjamiðillinn ræddi við Yann Kolbeinsson fuglafræðing sem sagði komum kúhegra til landsins hafa fjölgað...
Trump's plans for massive arch move ahead
📅 25.09.2026 👁️ 2
Trump's plans for massive arch move ahead
Opposition to building the 250-foot arch, and using it for military purposes, is growing with one Democrat blasting Trump's plans as "foolhardy".
Sekt fyrir að henda rusli á götur Tókýó
📅 25.09.2026 👁️ 2
Sekt fyrir að henda rusli á götur Tókýó
Borgaryfirvöld í Tókýó, höfuðborg Japans, hafa til skoðunar að grípa til hertra aðgerða til að halda borginni hreinni. Borgarstjórinn Yuriko Koike til...
Forseti býður framhaldsskólanemum til samtals
📅 25.09.2026 👁️ 2
Forseti býður framhaldsskólanemum til samtals
Að verkefninu stendur Samtal, félag til almannaheilla, í víðtæku samstarfi við ungt fólk, skóla, félagasamtök, stofnanir og stjórnvöld um allt land. S...
Fimm ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og nauðgun með járnröri
📅 25.09.2026 👁️ 3
Fimm ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og nauðgun með járnröri
Fimm menn hafa verið ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás og hótanir gegn manni í ágúst 2023. Meðal þess sem fimmmenningunum er gef...
Sjaldgæfur flækingur sást í Vestmannaeyjum
📅 25.09.2026 👁️ 3
Sjaldgæfur flækingur sást í Vestmannaeyjum
Kúhegri sást í Vestmannaeyjum í dag. Hann er sá fyrsti sinnar tegundar sem vitað er til að hafi sést þar.Tígull greindi fyrst frá.„Þeir eru fremur sja...
Leggur til að íslenska ríkið fylgi fordæmi Mamdani - „Kannski ætti það að kaupa sambærilegt magn“
📅 25.09.2026 👁️ 3
Leggur til að íslenska ríkið fylgi fordæmi Mamdani - „Kannski ætti það að kaupa sambærilegt magn“
Gunnar Smári Egilsson fjölmiðlamaður leggur til að íslenska ríkið fylgi fordæmi Zohran Mamdani borgarstjóra í New York og gefi fátækum frímiða í Þjóða...
Zelensky says Russia has widened attacks to hit Ukraine's data centres and internet providers
📅 25.09.2026 👁️ 2
Zelensky says Russia has widened attacks to hit Ukraine's data centres and internet providers
Such strikes aim to disrupt "people's ability to stay connected, study, work", says Ukraine's president.
Russia-Ukraine war: Moscow targeting 'ordinary life' with attacks on data centres, Zelensky says
📅 25.09.2026 👁️ 2
Russia-Ukraine war: Moscow targeting 'ordinary life' with attacks on data centres, Zelensky says
Such strikes aim to disrupt "people's ability to stay connected, study, work", says Ukraine's president.
Bað um á­lit lög­reglu á gæðum fíkni­efna - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 3
Bað um á­lit lög­reglu á gæðum fíkni­efna - Vísir
Að sögn lögreglu var maðurinn hræddur um að sér hefðu verið seld léleg fíknefni. Vildi hann fá lögreglu til að komast til botns í þessu. Ekki kemur fr...
Stingur upp á Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem fundarstað
📅 25.09.2026 👁️ 3
Stingur upp á Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem fundarstað
Bandarísk stjórnvöld hafa stungið upp á því að sendinefndir Rússlands og Úkraínu ræði saman í Sameinuðu arabísku furstadæmunum á næstunni. Þetta tilky...
Skriða þveraði veginn í Árneshrepp - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 3
Skriða þveraði veginn í Árneshrepp - Vísir
Hreppurinn greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum þar sem birtar eru sömuleiðis myndir af umfangi skriðunnar sem þveraði veginn. „Það er áfram m...
Breið­holts­braut lokuð allan morgun­daginn - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 3
Breið­holts­braut lokuð allan morgun­daginn - Vísir
Lokunin stendur yfir frá klukkan fimm að morgni og til klukkan 22 um kvöldið. Brautin verður lokuð við Þingtorg og Selásbraut og við nýju gatnamótin o...
Þurfa að gangast undir mannerfðafræðilega rannsókn til að leiða í ljós hvort þeir séu bræður
📅 25.09.2026 👁️ 4
Þurfa að gangast undir mannerfðafræðilega rannsókn til að leiða í ljós hvort þeir séu bræður
Rangfeðraður maður telur sig vita hver raunverulegur faðir hans er. Sá maður er þó látinn sem flækir málin. Sá rangfeðraði hefur höfðað mál til að fá ...
Breiðholtsbraut lokað á morgun
📅 25.09.2026 👁️ 4
Breiðholtsbraut lokað á morgun
Breiðholtsbraut í Reykjavík verður lokuð vegna malbikunar milli klukkan 5 og 22 á morgun, laugardag.Þetta kemur fram á heimasíðu Vegagerðarinnar.Lokað...
U2 celebrate 50th anniversary at the school where they formed
📅 25.09.2026 👁️ 3
U2 celebrate 50th anniversary at the school where they formed
The rock band go back to their roots, playing a gig in the Dublin playground where they first met.
Ný sería af The Four Seasons tekin upp í Krónunni
📅 25.09.2026 👁️ 4
Ný sería af The Four Seasons tekin upp í Krónunni
Þriðja sería af sjónvarpsþáttunum The Four Seasons er í tökum hér á landi. Einn aðalleikari þáttanna sást spóka sig í miðborg Reykjavíkur á dögunum.Sa...
Ný sería af The Four Seasons tekin upp á Íslandi: „Reykjavík og Ísland fá gríðarlega landkynningu“
📅 25.09.2026 👁️ 3
Ný sería af The Four Seasons tekin upp á Íslandi: „Reykjavík og Ísland fá gríðarlega landkynningu“
Þriðja sería af sjónvarpsþáttunum The Four Seasons er í tökum hér á landi. Framkvæmdastjóri True North segir yfir 100 manns á vegum fyrirtækisins koma...
Allt um­fram 2,8 milljarða dregið frá - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 4
Allt um­fram 2,8 milljarða dregið frá - Vísir
Birt voru drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Ríkisútvarpið í samráðsgátt fyrr í dag. Lögin eru byggð á tillögum úr fjölmiðlapakka sem ...
Olíuleki á Seltjarnarnesi
📅 25.09.2026 👁️ 4
Olíuleki á Seltjarnarnesi
Mikil olía lak á Lindarbraut og Norðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Vegfarendur voru varaði við hálku vegna þessa.María Björk Óskarsdóttir, sviðsstjó...
RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum
📅 25.09.2026 👁️ 4
RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum
RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum RÚV má fækka út­varps­stöðv­um verði ný drög að frum­varpi um RÚV sam­þykkt. Þá er stefnt...
Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 4
Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook - Vísir
Guðmundur Ingi fór ítarlega yfir aðdraganda og eftirmál afsagnar sinnar úr embætti mennta- og barnamálaráðherra í Reykjavík síðdegis. Guðmundur sagði ...
Húsbíll fauk út af - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 4
Húsbíll fauk út af - Vísir
Þetta segir Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, í samtali við Vísi. Unnið hafi verið að því í dag að fjarlægja bílinn af ve...
Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta? - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 4
Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta? - Vísir
„Svarið er nei,“ sagði Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra á Alþingi í gær, spurð hvort forystumenn ríkisstjórnarinnar hefðu ákveðið að Guðmundur...
I'm not tempted to call an early election, Andy Burnham says
📅 25.09.2026 👁️ 4
I'm not tempted to call an early election, Andy Burnham says
The prime minister told the BBC an early poll would throw the country into a "backward-looking process".
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan spilar með Guðmund Inga - Guðrún finnur samhljóm með honum vegna slakrar enskukunnáttu
📅 25.09.2026 👁️ 4
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan spilar með Guðmund Inga - Guðrún finnur samhljóm með honum vegna slakrar enskukunnáttu
Upphlaup Guðrúnar Hafsteinsdóttur á Alþingi í gær er enn eitt vindhöggið af hennar hálfu. Þó fyrrum þingmaður flokks fólksins sé svekktur yfir því að ...
Fimm karlmenn sakaðir um ógeðfelld brot – Nauðguðu manni með járnröri og sendu myndband á vini sína
📅 25.09.2026 👁️ 4
Fimm karlmenn sakaðir um ógeðfelld brot – Nauðguðu manni með járnröri og sendu myndband á vini sína
Fimm karlmenn eru ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu og hótanir vegna atvika sem áttu sér stað í ágúst árið 202...
Snorri hjólar í umfjöllun RÚV: „Það er ekki hægt að skálda þetta“
📅 25.09.2026 👁️ 4
Snorri hjólar í umfjöllun RÚV: „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, segir umfjöllun RÚV um trans teymi barna og unglinga á Landspítala hafa augljósan pólitískan tilgang og það sé ...
Þykja breytingar á samningum ekki nóg til að skapa sættir
📅 25.09.2026 👁️ 4
Þykja breytingar á samningum ekki nóg til að skapa sættir
Valgerði Rúnarsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra lækninga hjá SÁÁ, finnst áform Sjúkratrygginga og SÁÁ um að tryggja armslengd milli félagasamtakan...
Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu
📅 25.09.2026 👁️ 4
Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu
Vegurinn í Árneshrepp er lokaður vegna stórrar skriðu sem féll í Kaldbaksvík. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu á Facebook segir að vegurinn sé lokaðu...
British climber dies after falling 60m on Spanish mountainside
📅 25.09.2026 👁️ 2
British climber dies after falling 60m on Spanish mountainside
The identity of the 28-year-old man, who fell down a vertical gully to his death, is yet to be confirmed.
Why is the Pope in France?
📅 25.09.2026 👁️ 4
Why is the Pope in France?
The BBC's Hugh Schofield looks at why the visit is met with enthusiasm the Church attributes to growing spirituality among the French.
„Ef ég væri Pamela í Dallas“
📅 25.09.2026 👁️ 4
„Ef ég væri Pamela í Dallas“
„Ef ég væri Pamela í Dallas“ Sig­ríð­ur Jóns­dótt­ir skrif­ar um Svika­sög­ur eft­ir Maríu Reyn­dal, sem sýnt er í Borg­ar­leik­hús­inu. Það er ætíð f...
Aflátsbréf frá Brussel
📅 25.09.2026 👁️ 4
Aflátsbréf frá Brussel
Aflátsbréf frá Brussel Fréttin25. september 2026Evrópusambandið, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Á miðöldum gátu syndar...
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35?
📅 25.09.2026 👁️ 4
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35?
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35? Fréttin25. september 2026InnlendarLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar. Ríkisútvarpið er engin venj...