Á vef lögreglunnar segir að við nánari skoðun hafi fundust kannabisplöntur í húsnæði á vegum mannsins. Ekki er tekið fram hvar á Suðurnesjum húsnæðið var að finna.
„Jafnframt fundust fjármunir sem grunur var um að væri afrakstur fíkniefnasölu og vopn. Aðilinn var þá handtekinn vegna rannsóknar málsins en látinn laus að lokinni yfirheyrslu,“ segir í tilkynningunni.