Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir þungt hljóð við samningaborðið í deilu flugmanna og Icelandair en fundi á milli þeirra lauk á þriðja tímanum í dag.
Hann segir menn ræða alla aðra hluti en launaliðinn.
„Þetta er mjög þungt og erfitt samtal sem sér ekki til lands með en við reynum að halda áfram,“ segir Ástráður.
Að sögn hans sjá menn ástæðu til að halda áfram fundarsetu. „En það væri ofrausn að halda því fram að það gangi rosalega vel,“ segir Ástráður.
Spurður hvort hiti væri á fundum þá vill Ástráður ekki tjá sig um það.
„Það eru alls kyns þættir til umræðu sem koma launaliðnum ekkert við,“ segir Ástráður.
Fundað verður klukkan 10 í fyrramálið að nýju.