Síðdegis var haft eftir ónafngreindum embættismanni í Hvíta húsinu að helstu atriði í samningnum væru að Íranar hættu kjarnorkuáætlun sinni og eyddu öllum kjarnorkuefnum sínum. Þá yrði engum frystingum íranskra fjármuna aflétt fyrr en þeir sýndu í verki að þeir stæðu við samninginn.
Embættismaðurinn sagði jafnframt að framvinda samningsins byggðist á því hvernig Íranar stæðu sig í að fylgja honum.
Íranski ríkisfjölmiðillinn IRNA birti í morgun drög að friðarsamkomulagi milli Írans og Bandaríkjanna. Samkvæmt þeim fengu Íranar flest sem þeir báðu um.
Drögin fólu í sér að öllum stríðsátökum lyki, þ.á.m. stríðinu í Líbanon sem geisar milli Ísraels og Hezbollah-samtakanna, og að Hormússund yrði opnað að nýju. Þá yrði meðal annars frystingu á 24 milljarða eignum Írans aflétt og 60 daga frestur gefinn til að semja um kjarnorkuáætlun Írana.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hélt hins vegar fram að drögin væru ekki sannleikanum samkvæm. Atriðin í þeim tengdust ekkert skilmálunum sem þegar væri búið að samþykkja.
Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans, segir að Bandaríkin og Íran hafi samþykkt lokaútgáfu friðarsamnings sín á milli. Friður hafi aldrei verið eins nálægt því að nást og nú.
„Pakistan á í nánu samstarfi við báðar fylkingar um næstu skref,“ skrifaði Sharif á X. Ríkið hefur komið að sáttaumleitununum um margra mánaða skeið.
Velkomin á þessa fréttavakt. Hér verður sagt frá nýjustu vendingum í friðarumleitunum milli Bandaríkjanna og Írans.
Síðustu daga og vikur hafa verið fluttar ósamhljóða fréttir af mögulegu vopnahléi og sáttum. Nú segir forsætisráðherra Pakistans að samkomulag liggi fyrir.