Framsókn bætir við sig í Hafnarfirði

Framsókn bætir við sig í Hafnarfirði

Framsókn bætir við sig í Hafnarfirði

Framfaralistinn heldur meirihluta í Flóahreppi og bætir við sig einu sæti í sveitarstjórn. Hann fékk 16,77% atkvæða og 4 sveitarstjórnarmenn. T-listinn fékk 23,23%. Hann missti eitt sæti og heldur einu.

Notast er við rafræna kjörskrá í kosningum í Flóahreppi en það er eina sveitarfélag landsins þar sem slík kosning fer fram. Formaður landskjörnar segir rafræna kosningu vera framtíðina þar sem kjörskráin uppfærist í rauntíma og allt á stafrænu formi.

Haraldur Benediktsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Akranesi, og samstarfsfólk hans í A-lista Samhentrar sveitar sigruðu örugglega í Hvalfjarðarsveit. Framboðið fékk 69,1 prósent atkvæða og fimm af sjö sveitarstjórnarmönnum.

Í-listi Íbúahreyfingarinnar fékk 30,9 prósent og tvo sveitarstjórnarmenn.

Lokatölur liggja fyrir í Húnaþingi vestra. Nýtt afl er efst og fær þrjá sveitarstjórnarmenn með 37,77% atkvæða. Framsókn og aðrir framfarasinnar frá tvo með 34,19% og Sjálfstæðismenn og óháðir jafn marga með 28,04%.

Sömu listar buðu fram og í síðustu kosningum 2022.

Einhverjar sögulegustu kosningarnar í ár eru í Grindavík, þær fyrstu eftir náttúruhamfarirnar snemma á síðasta kjörtímabili. Þrír flokkar voru í framboði en tveir sem buðu fram síðast voru ekki í kjöri nú: Samfylkingin og óháðir, Rödd unga fólksins.

Þegar búið er að telja 44,6 prósent atkvæða er Framsóknarflokkurinn sá sem á mestu fylgi að fagna, með 44,1 prósent. Sjálfstæðisflokkurinn kemur þar skammt á eftir með 41,5 prósent. Báðir fá samkvæmt þessu þrjá bæjarfulltrúa, Framsókn bætir tveimur við sig og Sjálfstæðisflokkurinn einum.

Miðflokkurinn tapar stórt í þessum kosningum. Hann var stærstur síðast með 32,4 prósent og þrjá bæjarfulltrúa en fær einn bæjarfulltrúa og 14,3 prósent samkvæmt fyrstu tölum.

Sjálfstæðisflokkurinn er með 55,6% í Vestmannaeyjum þegar búið er að telja 30,42% atkvæða. Þar á eftir er Miðflokkurinn með 23,98% og svo Eyjalistinn með 20,36%

Fyrir Heimaey ákvað að bjóða ekki fram aftur en Íris Róbertsdóttir er bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins. Fyrir Heimaey fékk 36% í síðustu kosningum 2022.

Miðflokkurinn er að bjóða fram í fyrsta sinn í Vestmannaeyjum.

Samkvæmt þessu er Sjálfstæðisflokkurinn kominn með meirihluta í bæjarstjórn Vestmannaeyja í fyrsta sinn síðan kjörtímabilið 2014 til 2018. Þá fékk flokkurinn 73 prósent atkvæða sem varð Bjarna Benediktssyni, þáverandi formanni Sjálfstæðisflokksins, tilefni til að segja „fokking ótrúlegt“ í skilaboðum til Elliða Vignissonar, þáverandi bæjarstjóra og oddvita Sjálfstæðismanna í Eyjum.

D-listinn og aðrir lýðræðissinnar eru með meirihluta í bæjarstjórn Rangárþings eystra þegar búið er að telja 74 prósent atkvæða. Listinn bætir talsvert við sig milli kosninga og fer úr 43 prósentum í 55 prósent atkvæða. Þar með nær hann meirihluta í sveitarfélaginu.

Framsókn og aðrir framfarasinnar tapa einum fulltrúa en N-listinn heldur sínum.

Listi Framfarasinna heldur meirihluta sínum í Stykkishólmi og fær fleiri atkvæði en fyrir fjórum árum. Hann er nú með 60,2 prósent og fjóra bæjarfulltrúa. Íbúalistinn fær 39,8 prósent og þrjá bæjarfulltrúa.

Framsóknarmenn eru sigurvegarar kosninganna í Hafnarfirði þar sem þeir rúmlega tvöfalda fylgi sitt og fá þrjá bæjarfulltrúa í stað eins. Meirihluti þeirra og Sjálfstæðisflokksins heldur.

Búið er að telja 37,4 prósent atkvæða í Hafnarfirði.

Sjálfstæðisflokkurinn er áfram stærstur eins og í síðustu kosningum en tapar 3,5 prósentum af fylgi sínu og einum bæjarfulltrúa.

Samfylkingin tapar þó mestu og fer úr fjórum bæjarfulltrúum í tvo, missir hátt í helminginn af fylgi sínu. Viðreisn fer úr einum bæjarfulltrúa í tvo og Miðflokkurinn kemst í fyrsta sinn inn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.

Lokatölur eru komnar frá Sveitarfélaginu Skagaströnd þar sem búið er að telja rúmlega 88% atkvæða. Enginn sitjandi sveitarstjórnarfulltrúi bauð fram í þessum kosningum.

Samfylkingin og óháðir eru með 43,28% og fá tvö sæti. K-listinn Fyrir Skagaströnd fær jafnmörg með 40% fylgi. Framsókn fær 16,72% og eitt sæti.

Skagastrandarlistinn hefur verið með hreinan meirihluta frá 1994 og var sjálfkjörinn 2022. Því voru engar sveitarstjórnarkosningar á Skagaströnd 2022. Listinn hætti við að bjóða fram í ár.

Sjálfstæðisflokkurinn heldur meirihluta sínum í Árborg og gott betur því hann bætir við sig einum bæjarfulltrúa og fær sjö af ellefu fulltrúum.

Búið er að telja 45,6 prósent atkvæða.

Sjálfstæðisflokkurinn fékk 46,4 prósent atkvæða fyrir fjórum árum en er nú með 52,9 prósent.

Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin og óháðir halda sínum tveimur bæjarfulltrúum.

Viðreisn býður fram í fyrsta sinn og nær ekki inn. Hún er þó ekki langt frá því, aðeins munar átta atkvæðum á oddvita Viðreisnar og sjöunda manni Sjálfstæðisflokksins.

Áfram Árborg og VG buðu ekki fram að þessu sinni og Miðflokkurinn féll á tíma, skilaði of seint inn framboðsgögnum.

„Teningnum hefur verið kastað. Nú er þjóðin búin að segja sitt og við erum að bíða eftir því að heyra hvað hún sagði nákvæmlega,“ segir Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins.

Fjölmennt er á kosningavöku Miðflokksins á Hótel Borg þar sem fréttastofa ræddi við Snorra og liðsmenn Ungra Miðflokksmanna sem hafa verið í farabroddi í kosningabaráttu flokksins á samfélagsmiðlum.

Meirihluti Framsóknarflokksins í Borgarbyggð er fallinn. Þegar búið er að telja 51 prósent atkvæða blasir við að Framsóknarflokkurinn tapar nær helmingnum af fylgi sínu milli kosninga, fer úr 49,7 prósentum í 26,1.

Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn stærstur í Borgarbyggð með 29,7 prósent atkvæða og þrjá bæjarfulltrúa. Borgarbyggðarlistinn og Miðflokkurinn, sem hafa ekki boðið fram áður, fá um 23 prósent og tvo bæjarfulltrúa hvor.

Sjálfstæðisflokkurinn heldur stöðu sinni sem stærsti flokkurinn í Fjarðabyggð þrátt fyrir að hann tapi fylgi milli kosninga. Það fer úr 40,6 í 29,6 prósent og flokkurinn fær þrjá bæjarfulltrúa í stað fjögurra.

Búið er að telja 47 prósent atkvæða.

Samfylkingin fær næstflest atkvæði, 28,5 prósent. Hún, Framsókn og Miðflokkurinn, sem bauð ekki fram síðast, fá tvo bæjarfulltrúa hver flokkur. Framsókn tapar tíu prósentum og einum bæjarfulltrúa, samkvæmt fyrstu tölum.

Þetta er í fyrsta skipti síðan á síðustu öld sem Fjarðalistinn er ekki í framboði.

Bæjarlistinn er sjónarmun stærri en Samfylkingin á Akureyri þegar búið er að telja fjórðung atkvæða. Samfylkingin bætir þó við sig einum bæjarfulltrúa á sama tíma og Bæjarlistinn tapar einum.

Bæjarlistinn, Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn eru saman í meirihluta og með því að Bæjarlistinn tapar einum manni fellur meirihlutinn.

Akureyrarlistinn, sem er klofningsframboð úr Sjálfstæðisflokknum, kemur einum fulltrúa að, fyrrverandi varabæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

Flokkur fólksins bauð ekki fram að þessu sinni. Hann náði inn í síðustu kosningum en fulltrúar hans sögðu skilið við flokkinn.

Sjálfstæðisflokkurinn er efstur í Borgarbyggð þegar búið er að telja rúmlega helming atkvæða. Hann er með 29,68%. Fjórir listar bjóða fram í sveitarfélaginu og munurinn er ekki mikill eins og er.

Framsókn er með 26,12%, Borgarbyggðarlistinn með 22,49% og Miðflokkurinn 21,7%.

Þetta eru fyrstu sveitarstjórnarkosningarnar eftir sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps í fyrra. Framsóknarflokkurinn fékk hreinan meirihluta í Borgarbyggð í síðustu kosningum þar 2022.

Framsóknarflokkurinn hefur fengið flest atkvæði í Ísafjarðarbæ þegar búið er að telja fjórðung atkvæða.

Þarna eru miklar breytingar því Ísafjarðarlistinn, sem var í meirihluta á síðasta kjörtímabili, býður ekki fram og er það í fyrsta sinn í 20 ár. Samfylkingin og Viðreisn buðu fram í stað hans. Miðflokkurinn bauð líka fram í fyrsta skipti. Hann er samkvæmt fyrstu tölum eina framboðið sem kemur ekki manni í bæjarstjórn.

Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn bæta við sig einum bæjarfulltrúa hvor flokkur.

Búið er að telja tæpan helming atkvæða í Norðurþingi. Þar eru allnokkur tíðindi og breytingar milli kosninga.

Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að taka við af Framsóknarflokki sem stærsti flokkurinn í bæjarstjórn en báðir tapa þó atkvæðum frá því fyrir fjórum árum. Sex listar eru í framboði og allir ná inn kjörnum fulltrúa, samkvæmt fyrstu tölum.

Framsóknarflokkurinn tapar einum og Samfylkingin bætir við sig einum. Óskalistinn kemur nýr inn og fær kjörinn fulltrúa.

Samkvæmt nýjustu tölum úr Mýrdalshreppi er listi Samfélagsins með forskot á A fyrir alla. Samfélagið er með 58,13% og A fyrir alla með 41,87% þegar búið er að telja 62,61% atkvæða.

Meirihlutinn er fallinn í Reykjanesbæ ef marka fá fyrstu tölur. Sjálfstæðisflokkur er með 38 prósent atkvæða þegar tæpur þriðjungur atkvæða hefur verið talinn.

Vilhjálmur Árnason oddviti flokksins segist hafa fundið mikinn meðbyr og kveðst hlakka til fara að vinna fyrir bæjarfélagið. Vilhjálmur segir ekki enn liggja fyrir hvort hann hætti á þingi nái Sjálfstæðisflokkurinn meirihluta í bænum.

„Það á bara allt eftir að koma í ljós.Nú bara klárum við þetta kvöld og ræðum svo framtíðina hvað það varðar,“ segir Vilhjálmur.

Fyrstu tölur benda til að Samfylkingin missi mann en oddvitinn Guðný Birna Guðmundsdóttir segir nóttina unga og að enn eigi eftir að telja talsvert. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir oddviti Framsóknarflokksins tekur í sama streng.

Gunnlaugur Kárason oddviti Miðflokks fagnar því að flokkurinn sé að fá mann í bæjarstjórn. Arnar Páll Guðmundsson oddviti Viðreisnar, sem ekki næði inn manni miðað við fyrstu tölur, segir ekki alla nótt úti enn.

Búið er að telja rúmlega 60% atkvæða á Seltjarnarnesi. Hér eru nýjustu tölur.

Sjálfstæðisflokkurinn er efstur með 58,86%. Þetta stefnir í bestu niðurstöðu flokksins í sveitarfélaginu frá 2006, þegar hann fékk 67,2%.

Miðflokkurinn bauð fram á Seltjarnarnesi í fyrsta sinn líkt og sameiginlegur listi Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra.

Miðflokkurinn er með 14,54% eins og staðan er og Samfylkingin, Viðreisn og óháðir eru með 34,6%.

Búið er að telja rúmlega fjórðung atkvæða á Akranesi. Þar er Sjálfstæðisflokkurinn stærstur. Atkvæðahlutfall hans lækkar um eitt prósent frá síðustu kosningum en kjörnum fulltrúum hans fjölgar samt úr þremur í fjóra vegna dreifingar atkvæða.

Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn eru með 23 prósent hvor flokkur og tvo bæjarfulltrúa. Báðir flokkar missa einn bæjarfulltrúa.

Viðreisn bauð fram í fyrsta skipti og fær einn bæjarfulltrúa samkvæmt fyrstu tölum. Miðflokkurinn bauð fram 2018 en náði ekki inn og var ekki í framboði síðast. Hann nær ekki inn fulltrúa eins og staðan er núna.

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig miklu fylgi milli kosninga og er með 38 prósent atkvæða þegar búið er að telja tæplega þriðjung greiddra atkvæða. Hann fjölgar bæjarfulltrúum sínum úr þremur í fimm og fær samkvæmt þessu sína bestu kosningu í 20 ár.

Miðflokkurinn sem fékk 1,8 prósent fyrir fjórum árum fær nú 11,1 prósent og einn bæjarfulltrúa.

Miðað við þetta vænkast mjög vonir Vilhjálms Árnasonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins og oddvita hans í Reykjanesbæ, um að verða bæjarstjóri.

Framsókn bætir við sig fylgi og Viðreisn sem býður fram í fyrsta skipti fær fimm prósent. Samfylkingin dalar milli kosninga og missir einn bæjarfulltrúa.

Talsverðar breytingar urðu á stjórnmálalandslaginu milli kosninga. Bein leið og Píratar og óháðir bjóða ekki fram og Umbót rann saman við Sjálfstæðisflokkinn.

Fyrstu tölur kvöldsins bárust úr Svalbarðsstrandarhreppi um klukkan átta þar sem kjörsókn var rúm 78 prósent. Bjarni Þór Guðmundsson efsti maður á lista Ströndungs sagði í samtali við kosningaútvarp Rásar 2 menn þegar tekna að ræða saman og fara yfir framtíðina í sameiginlegu kosningapartýi.

Hann segist vera að ljúka öðrum verkefnum áður en hann mætir í teitið en hefur frétt að stemmningin sé góð. Allir vilji sveitarfélaginu vel og því auðvelt að ná samkomulagi.

Stóru málin eru meðal annars fráveitumál, stækkun skóla og félagslíf eldri borgara. Galdurinn að baki skjóti talningu segir Bjarni Þór einfaldan, atkvæði séu fá og smurt gengur að telja. Alls greiddu 295 af 377 kjósendum atkvæði.

Í Árneshreppi var listakosning í fyrsta sinn í mörg ár. Hér eru lokatölur þaðan.

Framtíð Árneshrepps er efst með 58,49% atkvæða og Sólstöður eru með 41,51%.

Samfylkingin og óháðir eru með flest atkvæði þegar búið er að kjósa þriðjung atkvæða í Suðurnesjabæ, 33,6 prósent og þrjá bæjarfulltrúa. D-listi og óháðir eru með jafn marga bæjarfulltrúa út á 26,8 prósent. D-listi og óháðir voru stærstir á síðasta kjörtímabili.

Framsókn og óháðir hafa fengið 22,9 prósent atkvæða og tvo bæjarfulltrúa. Miðflokkurinn er með 16,7 prósent og einn bæjarfulltrúa.

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig miklu fylgi í Kópavogi og fær 45 prósent atkvæða og meirihluta bæjarfulltrúa, samkvæmt fyrstu tölum. Ef þetta gengur eftir er Sjálfstæðisflokkurinn að fá sína bestu kosningu í Kópavogi síðan 2006.

Sjálfstæðisflokkurinn fékk 33,3 prósent atkvæða fyrir fjórum árum. Það dugði honum til fjögurra fulltrúa í bæjarstjórn. Nú skila 45 prósent honum 6 fulltrúum. Samfylkingin bætir líka við sig miklu fylgi og fer úr 8,2 prósentum í 19,3 prósent.

Viðreisn heldur sínum manni og Miðflokkurinn fær inn fulltrúa eftir að hafa ekki náð kjöri fyrir fjórum árum. Framsókn tapar einu sæti.

Í Fljótsdalshreppi var óbundin kosning. Halla Auðunardóttir fékk mest fylgi og þar á eftir var Guðni Jónsson.

  • 58 atkvæði – Halla Auðunardóttir
  • 47 atkvæði – Guðni Jónsson
  • 30 atkvæði – Þórhallur Jóhannsson
  • 28 atkvæði – Lárus Heiðarsson
  • 27 atkvæði – Helga Eyjólfsdóttir

Helgi Gíslason varð sveitarstjóri Fljótsdalshrepps 2020 en sóttist ekki eftir því að halda áfram.

Fleiri breytingar verða í sveitarfélaginu, líkt og fram kemur á vef Austurfréttar. Þar er sagt frá því að Jóhann F. Þórhallsson og Anna Jóna Árnmarsdóttir hafi beðist undan endurkjöri.

Jóhann F. Þórhallsson tók fyrst sæti árið 1998 og Anna Jóna Árnmarsdóttir var kjörin sem varamaður árið 1998 og hefur setið óslitið í sveitarstjórn síðan. Þar með er hún sá fulltrúi á Austurlandi sem hefur starfað lengst.

Úrslitin liggja fyrir í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Þar var L-listi Samvinnulistans með meirihluta á síðasta kjörtímabili og það verður engin breyting á því að þessu sinni.

L-listinn fékk 57,3 prósent atkvæða og þrjá fulltrúa. E-listi Uppbyggingar fékk 42,7 prósent atkvæða og tvo fulltrúa.

Lokatölur eru komnar úr Reykhólahrepp og Raddir okkar allra fengu mest fylgi með 71,5%.

Samfylkingin og óháðir fengu 28,45%

Kjörfundi er lokið um land allt og búið er að loka kjörstöðum. Úrslitin eru því ráðin – að því leyti að kjósendur hafa talað en nú er bara eftir að telja atkvæðin og komast að vilja þeirra.

Við segjum allar nýjustu fréttir hér á fréttavaktinni. Svo má ekki gleyma kosningavökum í sjónvarpi og á Rás 2. Horfa má á kosningavöku sjónvarps efst í þessari fréttavakt.

Búið er að telja í Ásahreppi. Þar voru engir framboðslistar og því allir í framboði.

Ísleifur Jónasson og Helga Björg Helgadóttir fengu 86 atkvæði hvort, Kristín Hreinsdóttir 72, Gréta Vilborg Guðmundsdóttir 47 og Emil Þórðarson fékk 46 atkvæði.

Mikil endurnýjun er í Strandabyggð þar sem tveir nýir listar voru í framboði, B-listi Framsóknar og óháðra og G-listi Vegvísis. Mikið gekk á á kjörtímabilinu og fimm sveitarstjórnarfulltrúar höfðu beðist lausnar um mitt kjörtímabil.

Vegvísir náði meirihluta í sveitarstjórn, fékk þrjá af fimm fulltrúum út á 49,7 prósent atkvæða.

Framsóknarmenn og óháðir með 26,0 prósent og Strandabandalagið með 24,3 prósent fengu sinn hvorn fulltrúann kosinn.

Miklar breytingar urðu í sveitarstjórn Skaftárhrepps þar sem Sjálfstæðismenn unnu meirihluta, fengu 62,2 prósent atkvæða og þrjá af fimm kjörnum fulltrúum. Ö-listi Öflugs samfélags fór úr fjórum fulltrúum í tvo og fékk 37,8 prósent atkvæða.

Fyrstu úrslit dagsins bárust úr Svalbarðsstrandarhreppi þar sem Ö-listi Ströndungs átti mestu fylgi að fagna. Hann fékk 42,0 prósent atkvæða og tvo fulltrúa kjörna. Strönd til framtíðar fékk einnig tvo fulltrúa, með 34,7 prósent.

Samstaða rak lestina með 23,3 prósent og einn kjörinn fulltrúa. Listi Samstöðu hafði vissa sérstöðu því þar voru aðeins konur á lista.

Sums staðar verða afgerandi úrslit í nótt og sums staðar verður mjótt á munum. Þetta þekkjum við frá fyrri kosninganóttum – og morgnum ef út í það er farið.

Hvert atkvæði getur skipt máli. Síðasti Þjóðarpúls Gallups fyrir kosningar í Reykjavík gaf til dæmis til kynna að mjótt væri á munum milli þriðja manns Miðflokksins og sjötta frambjóðanda á lista Samfylkingarinnar.

Sagan geymir svo mörg dæmi um spennandi kosningar.

Fyrir fjórum árum þurfti hlutkesti til að ráða úrslitum í tveimur sveitarfélögum þar sem allir voru í framboði.

Anna Jóna Árnmarsdóttir og Urður Gunnarsdóttir fengu jafn mörg atkvæði í Fljótsdalshreppi og enduðu saman í fimmta sæti. Aðeins önnur gat þó tekið sæti í fimm manna sveitarstjórn. Kastað var upp á milli þeirra og varð Anna Jóna hlutskarpari. Hún var þá komin í háttinn og frétti ekki af úrslitunum fyrr en hún vaknaði næsta dag.

Jón Ingi Jónsson og Marinó Bjarnason fengu báðir 43 atkvæði í Tálknafjarðarhreppi og varð að kasta upp á milli þeirra hvor þeirra fengi fimmta og síðasta sætið í sveitarstjórn. Jón Ingi stóð uppi sem sigurvegari.

Sjaldnast þarf tvö hlutkesti til að ráða úrslitum en sú var raunin í Langanesbyggð 2014. Bæði þurfti að kasta upp á milli Halldóru Jóh. Friðbergsdóttur, af U-lista, og Hilmu Steinarsdóttur, hjá Nýju afli, um hvort yrði í þriðja sæti í sjö manna sveitarstjórn. Afdrifaríkara var þó að hlutkesti þurfti til að skera úr um hver yrði síðasti fulltrúinn inn í hreppsstjórn. Reynir Atli Jónsson, hjá Nýju afli, reyndist hlutskarpari en Karl Ásberg Steinsson, U-lista.

2002 þurfti að kasta hlutkesti til að ráða úrslitum um hvort fjórði maður af lista Framsóknar eða annar maður Borgarbyggðarlistans næði inn. Borgarbyggðarlistinn vann hlutkestið en Framsókn kærði kosningarnar og þær voru ógiltar. Í endurtekinni kosningu náði Framsókn sínum fjórða manni á kostnað Sjálfstæðisflokksins.

Góða kvöldið og velkomin á nýja fréttavakt. Hér ætlum við að fylgjast með talningu atkvæða, segja frá úrslitum og greina það helsta sem gerist.

Kjörstöðum verður lokað klukkan tíu í kvöld. Óljóst er hvenær talningu lýkur en við verðum á vaktinni þangað til.

Að neðan má sjá fréttavaktina frá því í dag.

#bætir #framsókn #hafnarfirði #sig #við


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-05-16-framsokn-baetir-vid-sig-i-hafnarfirdi-475368

📰 Aðrar fréttir

Hægt gengur að útvega heimilislausum húsnæði
📅 18.08.2026 👁️ 0
Hægt gengur að útvega heimilislausum húsnæði
Stjórnvöld í Venesúela segja að 6.438 hafi farist í jarðskjálftunum tveimur í júní. Björgunarfólk og almenningur leitar enn látinna í rústunum. Að min...
Russia warns UK over supplying drones to Ukraine
📅 18.08.2026 👁️ 0
Russia warns UK over supplying drones to Ukraine
An MoD spokesperson responds by saying Britain stands "shoulder to shoulder" with Ukraine.
Free bus travel for disabled people in England to be extended to 24 hours a day
📅 18.08.2026 👁️ 1
Free bus travel for disabled people in England to be extended to 24 hours a day
The change, which has been welcomed by campaign groups, will come into effect in England from April.
UK weather: Thunderstorms could bring risk of flash flooding
📅 18.08.2026 👁️ 1
UK weather: Thunderstorms could bring risk of flash flooding
Heavy showers are expected over the next few days, bringing a risk of flash flooding. But there are early indications heatwave conditions could return...
„Átti ráðamenn í Brussel sig ekki á því þá er betra að láta gott heita“
📅 18.08.2026 👁️ 1
„Átti ráðamenn í Brussel sig ekki á því þá er betra að láta gott heita“
Íslendingar verða að tryggja full yfirráð yfir sjávarauðlindinni strax í upphafi mögulegra aðildarviðræðna við Evrópusambandið, að mati Guðna Th. Jóha...
Ex-workers tell of 'chaotic atmosphere' at HMP Millsike
📅 18.08.2026 👁️ 1
Ex-workers tell of 'chaotic atmosphere' at HMP Millsike
Former workers have described a "chaotic atmosphere" of under-staffing and inadequate training.
The debate over young people taking prescription drugs instead of alcohol
📅 18.08.2026 👁️ 1
The debate over young people taking prescription drugs instead of alcohol
Increasingly, young adults are taking anxiety medication to feel "drunk" at parties. But it's not a free lunch, experts warn.
Geta skotið drónum langt inn fyrir land­svæði NATO-ríkja - Vísir
📅 17.08.2026 👁️ 1
Geta skotið drónum langt inn fyrir land­svæði NATO-ríkja - Vísir
Breska stórblaðið Telegraph greinir frá þessu en rannsókn miðilsins hefur leitt í ljós hið minnsta tíu rússneskar herstöðvar með nýbyggðum skotpöllum ...
Watch: BBC breaks down Trump's latest shift on North and South Korea
📅 17.08.2026 👁️ 0
Watch: BBC breaks down Trump's latest shift on North and South Korea
Trump said the US will "substantially reduce" joint military exercises with South Korea, citing his "very good relationship" with Kim Jong Un.
Færsla vín­búðarinnar „galin“ en skemmdi ekki mið­bæinn - Vísir
📅 17.08.2026 👁️ 1
Færsla vín­búðarinnar „galin“ en skemmdi ekki mið­bæinn - Vísir
Um árabil rak ÁTVR verslun við Hólabraut á Akureyri. Í mars 2025 var henni lokað og hún færð á Norðurtorg, nyrst í bænum. Því er ÁTVR ekki lengur með ...
Skvetti úr skinnsokknum yfir fjögurra manna fjölskyldu á tónleikum kántrýstjörnu
📅 17.08.2026 👁️ 1
Skvetti úr skinnsokknum yfir fjögurra manna fjölskyldu á tónleikum kántrýstjörnu
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir að míga á fjögurra manna fjölskyldu á kántrý tónleikum í Bandaríkjunum. Slagsmál brutust út eftir a...
Brottvísun fanga atlaga að réttarríkinu eða réttlætanlegt neyðarúrræði
📅 17.08.2026 👁️ 1
Brottvísun fanga atlaga að réttarríkinu eða réttlætanlegt neyðarúrræði
Yfir 20 erlendum föngum, þar á meðal morðingja, hefur verið sleppt snemma úr íslenskum fangelsum, þeim vísað úr landi og meinuð endurkoma. Ástæðan er ...
Haraldur konungur lagður inn á spítala - Vísir
📅 17.08.2026 👁️ 1
Haraldur konungur lagður inn á spítala - Vísir
Í tilkynningu frá konungshöllinni segir að konungurinn hafi glímt við sjálfnæmisblóðleysi (no. hemolytisk anemi), en það er blóðsjúkdómur þar sem líka...
Tek mark á því að þetta sé fal­legasta hús Ís­lands - Vísir
📅 17.08.2026 👁️ 1
Tek mark á því að þetta sé fal­legasta hús Ís­lands - Vísir
Í kvöldfréttum Sýnar var farið í Húnaþing að gamla sýslumannshúsinu að Kornsá. Það var byggt árið 1879 og þykir í dag einhver mesta prýði Vatnsdals. E...
Efndir stjórnvalda vonbrigði fyrir verkalýðshreyfinguna og fyrirtækin
📅 17.08.2026 👁️ 1
Efndir stjórnvalda vonbrigði fyrir verkalýðshreyfinguna og fyrirtækin
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segjast ekki vera að kalla eftir björgunarpakka frá s...
Allt logar eftir falleinkunn á veitingastað á Vesturlandi: „Yfirgengileg frekja og yfirgangur!“
📅 17.08.2026 👁️ 1
Allt logar eftir falleinkunn á veitingastað á Vesturlandi: „Yfirgengileg frekja og yfirgangur!“
„Ekki góður staður fyrir ökumenn, ef þú ert ekki með níu manna hóp færðu ekki mat.“ Svona hljómar einnar stjörnu umsögn ökumanns sem fékk ekki frían m...
Gott að Trump hafi opnað á um­ræðuna - Vísir
📅 17.08.2026 👁️ 1
Gott að Trump hafi opnað á um­ræðuna - Vísir
Kristrún Frostadóttir fundaði í dag með yfirhershöfðingjanum Alexus Grynkewich en hann er hér á landi í tengslum við varnaræfinguna Norðurvíking. Hers...
Norway's King Harald admitted to hospital and put on sick leave
📅 17.08.2026 👁️ 1
Norway's King Harald admitted to hospital and put on sick leave
The 89-year-old - one of Europe's longest-serving monarchs - is suffering from a rare blood condition.
Álfabækur vekja athygli á Selfossi
📅 17.08.2026 👁️ 1
Álfabækur vekja athygli á Selfossi
Guðlaugur Arason, rithöfundur og listamaður, var að opna sýningu í Gallerý Listaseli í nýja miðbænum á Selfossi þar sem hann sýnir mjög óvenjuleg verk...
Halldór Jörgen Olesen: Staðhæfingar nei-sinna standast ekki – næstum 80% íbúa ESB ánægðir með aðildina
📅 17.08.2026 👁️ 1
Halldór Jörgen Olesen: Staðhæfingar nei-sinna standast ekki – næstum 80% íbúa ESB ánægðir með aðildina
Það stenst enga skoðun að allt vald færist til Brussel við aðild að Evrópusambandinu. Þvert á móti halda aðildarríki einmitt fullveldi sínu og stjórna...
And­látið virðist ekki hafa borið að með sak­næmum hætti - Vísir
📅 17.08.2026 👁️ 1
And­látið virðist ekki hafa borið að með sak­næmum hætti - Vísir
Þetta er meðal þess sem erlendir miðlar greina frá en í frétt breska ríkisútvarpsins (BBC) segir einnig að það hafi verið kunningi eða vinur leikkonun...
Leik­konan var úr­skurðuð látin á vett­vangi - Vísir
📅 17.08.2026 👁️ 1
Leik­konan var úr­skurðuð látin á vett­vangi - Vísir
Þetta er meðal þess sem erlendir miðlar greina frá en í frétt breska ríkisútvarpsins (BBC) segir einnig að það hafi verið kunningi eða vinur leikkonun...
Hotel in Costa Adeje evacuated after fire breaks out
📅 17.08.2026 👁️ 1
Hotel in Costa Adeje evacuated after fire breaks out
Emergency services have evacuated a hotel in Costa Adeje, south Tenerife, this evening after a fire reportedly broke out in the building’s garage area...
Nærri 18 þúsund greitt atkvæði – betri kjörsókn en sýslumaður bjóst við
📅 17.08.2026 👁️ 1
Nærri 18 þúsund greitt atkvæði – betri kjörsókn en sýslumaður bjóst við
Frá og með deginum í dag er hægt að greiða atkvæði utan kjörfundar í Kringlunni í Reykjavík. Þar er opið frá klukkan tólf á hádegi til lokunar. Þessi ...
Jason Arday's family 'still coming to terms' with his death as supporters attend vigil
📅 17.08.2026 👁️ 1
Jason Arday's family 'still coming to terms' with his death as supporters attend vigil
Jason Arday's family spoke of the "public cruelty" the academic faced before his death last week.
Reyna að koma í veg fyrir að nemendur noti gervigreind til að svindla
📅 17.08.2026 👁️ 1
Reyna að koma í veg fyrir að nemendur noti gervigreind til að svindla
Gervigreind spilar sífellt stærra hlutverk í lífi fólks og fleiri leita til spjallmenna til að spyrja ráða, hvort sem það er í vinnu eða einkalífinu. ...
Daniel Hannan: „Ísland ætti að vita betur en falla í gildru ESB“
📅 17.08.2026 👁️ 1
Daniel Hannan: „Ísland ætti að vita betur en falla í gildru ESB“
Daniel Hannan: „Ísland ætti að vita betur en falla í gildru ESB“ Fréttin17. ágúst 2026Erlent, Evrópusambandið, Jón MagnússonLeave a Comment Íslandsvin...
Hvað veistu um... frjálsar í­þróttir? - Vísir
📅 17.08.2026 👁️ 1
Hvað veistu um... frjálsar í­þróttir? - Vísir
Íslensku keppendurnir stóðu sig vel og setti Sigurbjörn Árni Arngrímsson sem fyrr sterkan svip á útsendingarnar með lýsingum sínum. En hvað veistu um ...
Segir hægt að ljúka aðildarviðræðum ESB og Íslands á rúmu ári - Ísland sagt varnarlaust gegn erlendum afskiptum og upplýsingaóreiðu
📅 17.08.2026 👁️ 1
Segir hægt að ljúka aðildarviðræðum ESB og Íslands á rúmu ári - Ísland sagt varnarlaust gegn erlendum afskiptum og upplýsingaóreiðu
Ónefndur heimildarmaður innan framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins tjáir franska vikuritinu L'Express að það eigi að vera vel mögulegt að ljúka aðilda...
Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir - Vísir
📅 17.08.2026 👁️ 1
Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir - Vísir
Þegar við sturtum niður, fáum okkur vatnsglas eða förum í sturtu er notkunin skráð hjá Veitum. Þegar sólmyrkvinn gekk yfir rétt fyrir klukkan sex á mi...
Fifa: Kevin Lamour leaves after criticising president Gianni Infantino
📅 17.08.2026 👁️ 1
Fifa: Kevin Lamour leaves after criticising president Gianni Infantino
A senior Fifa figure leaves football's world governing body three weeks after criticising its president Gianni Infantino.
Fifa: Kevin Lamour sacked after criticising president Gianni Infantino
📅 17.08.2026 👁️ 1
Fifa: Kevin Lamour sacked after criticising president Gianni Infantino
Senior Fifa figure Kevin Lamour is sacked football's world governing body three weeks after criticising its president Gianni Infantino.
Semja um að bandaríski herinn afvopni Gaza en óvíst með næstu skref
📅 17.08.2026 👁️ 1
Semja um að bandaríski herinn afvopni Gaza en óvíst með næstu skref
Ísraelar og Bandaríkjamenn hafa samið um að bandarískur herforingi sjái um afvopnun Hamas-samtakanna. Jared Kushner, fulltrúi Bandaríkjastjórnar í mál...
Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum - Vísir
📅 17.08.2026 👁️ 1
Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum - Vísir
Margar af helstu stjörnum tónlistarbransans hérlendis tróðu upp og fjöldi fólks steig trylltan dans við grípandi tóna. Að sjálfsögðu var uppblásinn gú...
Merki um kólnun í hagkerfi Kína
📅 17.08.2026 👁️ 1
Merki um kólnun í hagkerfi Kína
Merki eru um kólnun í hagkerfi Kína eftir eina verstu ársfjórðungsútkomu sem mælst hefur. Nýjustu tölur benda til þess að ástandið hafi ekki skánað í ...
Samstarf stjórnvalda og kennara mikilvægara en mælikvarði
📅 17.08.2026 👁️ 1
Samstarf stjórnvalda og kennara mikilvægara en mælikvarði
Formaður Félags skólastjórnenda í Reykjavík segir samstarf stjórnvalda og kennara skipta meira máli en mælikvarði. Mikilvægt sé að standa vörð um skól...
Enn ein stór­stjarnan lagði leið sína til landsins - Vísir
📅 17.08.2026 👁️ 1
Enn ein stór­stjarnan lagði leið sína til landsins - Vísir
Meðal þeirra sem hafa verið á landinu síðustu daga eru leikarinn Jason Bateman, sem snæddi á Horninu ásamt dóttur sinni, írski söngvarinn Hozier, sem ...
Nicole er fyrir norðan - Vísir
📅 17.08.2026 👁️ 1
Nicole er fyrir norðan - Vísir
Meðal þeirra sem hafa verið á landinu síðustu daga eru leikarinn Jason Bateman, sem snæddi á Horninu ásamt dóttur sinni, írski söngvarinn Hozier, sem ...
Blómleg bláberjaspretta en krækiberin láta síður á sér kræla
📅 17.08.2026 👁️ 1
Blómleg bláberjaspretta en krækiberin láta síður á sér kræla
Berjatímabilið er hafið og bláberin virðast víða spretta vel. Erfiðara getur þó reynst að krækja sér í krækiber í ár.Hver á sinn leynistaðUm miðjan ág...
Noregskonungur aftur á sjúkrahús
📅 17.08.2026 👁️ 1
Noregskonungur aftur á sjúkrahús
Haraldur Noregskonungur hefur verið lagður inn á sjúkrahús og er kominn í tveggja vikna veikindaleyfi.Haraldur, sem er 89 ára, hefur síðustu vikur ver...
Rétti tíminn fyrir stofnanda Kerecis til að einbeita sér að vöruþróun í stað reksturs
📅 17.08.2026 👁️ 1
Rétti tíminn fyrir stofnanda Kerecis til að einbeita sér að vöruþróun í stað reksturs
Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, hefur tekið við nýju hlutverki hjá móðurfyrirtækinu Coloplast. Hann verður sérstakur ráðgjafi forst...
Ræddu að láta bandarískan hershöfðingja hafa eftirlit með afvopnun Hamas
📅 17.08.2026 👁️ 1
Ræddu að láta bandarískan hershöfðingja hafa eftirlit með afvopnun Hamas
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, og Jared Kushner, tengdasonur Bandaríkjaforseta og erindreki Bandaríkjastjórnar í Mið-Austurlöndum, rædd...
Hljóð­upp­tökur, ný vín­búð og færri sturtuðu niður yfir al­myrkva - Vísir
📅 17.08.2026 👁️ 1
Hljóð­upp­tökur, ný vín­búð og færri sturtuðu niður yfir al­myrkva - Vísir
Fjallað er um málið í kvöldfréttum Sýnar á slaginu 18:30. Yfirhershöfðingi NATO segir ummæli Bandaríkjaforseta um Grænland hafa ýtt undir umræðu um mi...
Leituðu að Guðrúnu sem fór úr verslun í Skipholti án þess að borga – Það var þó ekki allt sem sýndist
📅 17.08.2026 👁️ 1
Leituðu að Guðrúnu sem fór úr verslun í Skipholti án þess að borga – Það var þó ekki allt sem sýndist
Mörgum brá í brún þegar Brá verslun í Skipholti auglýsti eftir Guðrúnu Jónsdóttur, sagði í færslunni:„Við erum búnar að vera að reyna að ná í þig án á...
Máni svarar Frosta: „Engin upplýst umræða bara bull í báðar áttir“
📅 17.08.2026 👁️ 1
Máni svarar Frosta: „Engin upplýst umræða bara bull í báðar áttir“
Fjörugar umræður hafa skapast um pistil lögmannsins Arnars Þórs Stefánssonar um hvers vegna hann ætli að kjósa nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágús...
Alls ekki ætlað sér að ógna neinum né á­reita starfs­fólkið - Vísir
📅 17.08.2026 👁️ 1
Alls ekki ætlað sér að ógna neinum né á­reita starfs­fólkið - Vísir
Fjórir ísraelskir ferðamenn gengu inn á staðinn að morgni til þann 15. ágúst en Farah Al-Qasem, sem á kaffihúsið ásamt eiginmanni sínum Diyaa Atatri, ...
Ekkert út á Dorriti að setja en frá­sögn eig­enda ekki á rökum reist - Vísir
📅 17.08.2026 👁️ 1
Ekkert út á Dorriti að setja en frá­sögn eig­enda ekki á rökum reist - Vísir
Fjórir ísraelskir ferðamenn gengu inn á staðinn að morgni til þann 15. ágúst en Farah Al-Qasem, sem á kaffihúsið ásamt eiginmanni sínum Diyaa Atatri, ...
Beiðni Trumps um endurupptöku í máli E. Jean Carroll hafnað í annað sinn
📅 17.08.2026 👁️ 1
Beiðni Trumps um endurupptöku í máli E. Jean Carroll hafnað í annað sinn
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur aftur hafnað beiðni Donald Trump um endurupptöku í máli rithöfundarins E. Jean Carrol. Trump var árið 2023 dæmdur fyri...
Kvótinn gerði allt vit­laust í Brussel - Vísir
📅 17.08.2026 👁️ 1
Kvótinn gerði allt vit­laust í Brussel - Vísir
Í fyrsta þætti Vísis að viðræðum rekur Jón þessa sögu frá sínu sjónarhorni: stjórnarmyndunina, varnagla Alþingis, umsóknarbréfið, makrílinn, óþægilega...
Allt gert til að stöðva birtinguna - Vísir
📅 17.08.2026 👁️ 1
Allt gert til að stöðva birtinguna - Vísir
Í fyrsta þætti Vísis að viðræðum rekur Jón þessa sögu frá sínu sjónarhorni: stjórnarmyndunina, varnagla Alþingis, umsóknarbréfið, makrílinn, óþægilega...