„Þeir líta á þetta sem raunhæfan möguleika sem þýðir það að hægt er að vera með gjaldtöku á öllum vegum landsins, bara ef strætó gengur þar um tvisvar á dag eða hvað það nú er. Þetta er nokkuð sem við í minnihlutanum erum algerlega á móti, hugmyndin er alveg fráleit,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður í samtali við Morgunblaðið.
Hann gagnrýnir þau áform stjórnvalda að skilgreina almenningssamgöngur sem „hjáleið“ þegar kemur að innheimtu veggjalda sem ætlunin er að rukka þá vegfarendur um sem leið eiga um samgöngumannvirki sem heyra undir hið nýstofnaða innviðafélag.
Lög um innviðafélag voru samþykkt síðla kvölds á fimmtudag en ætlunin er að það innheimti veggjöld af þeim sem leið eiga um samgöngumannvirki sem undir félagið heyra.
Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis hefur lýst þeirri skoðun sinni að við mat á gjaldtöku verði horft til þess að vegfarendum standi til boða raunhæfir valkostir til umferðar, en þar undir fellur að fyrir hendi sé gjaldfrjáls hjáleið og að tryggð sé fullnægjandi og aðgengileg þjónusta almenningssamgangna.
„Það er gert ráð fyrir því að öll þau samgönguverkefni sem innviðafélagið á að fara í hafi hjáleið, eins og t.d. þegar farið var í gerð Hvalfjarðarganga, þá var hægt að keyra hjáleið um Hvalfjörðinn. Núna liggur það fyrir að meirihlutinn hugsar sér að almenningssamgöngur séu hjáleið,“ segir Guðlaugur Þór.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.
