Fyrst ræðir Kristján við Ólaf Þ. Harðarson prófessor emeritus við Háskóla Íslands og Vilborgu Ásu Guðjónsdóttur alþjóðastjórnmálafræðing. Já- og nei-hreyfingarnar eru hnífjafnar, hvað mun ráða úrslitum, hvað hefur markað baráttuna og hvernig raðast atkvæðin eftir flokkslínum og öðrum breytum í kosningum?
Síðan verður samband atvinnulífsins og Evrópu rætt. Gréta María Grétarsdóttir verkfræðingur og stjórnarkona í Já til að sjá og Bjarnheiður Hallsdóttir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar koma og ræða andstöðu atvinnulífsins við nánara samband við Brussel.
Síðast en ekki síst kemur Jón Baldvin Hannibalsson í hljóðverið og ræðir fortíð og framtíð Íslands í Evrópu.