Forstjóri gervigreindarfyrirtækisins OpenAI, Sam Altman, hefur beðið íbúa í smábænum Tumbler Ridge í Bresku Kólumbíu í Kanada innilegrar afsökunar á því að hafa ekki greint lögreglu frá ChatGPT-reikningi Jesse Van Rootselaar, sem skaut átta til bana í skotárás í febrúar.
OpenAI lokaði fyrir aðgang að reikningi Rootselaar átta mánuðum fyrir skotárásina þar sem notkun reikningsins þótti benda til ofbeldisfullrar hegðunar. Fyrirtækið tilkynnti atvikið þó ekki til lögreglu, þar sem ekki var talið líklegt að Rootselaar myndi beita ofbeldi.
Íbúar Tumbler Ridge harmi slegnir
Rootselaar skaut móður sína og stjúpbróður ásamt fimm nemendum í gagnfræðaskóla og einum kennara 10. febrúar. Um 2.400 manns búa í Tumbler Ridge og skotárásin var áfall fyrir samfélagið.
Eftir árásina í Tumbler Ridge, fordæmdu stjórnvöld í Kanada OpenAI fyrir að hafa ekki tilkynnt reikning Rootselaar til lögreglu. Forsvarsmenn fyrirtækisins voru kallaðir til fundar við kanadískan ráðherra gervigreindar, Evan Solomon.
Foreldrar stúlku sem særðist alvarlega í skotárásinni ætla að fara í mál við gervigreindarfyrirtækið fyrir gáleysi.
Birti afsökunarbeiðnina á svæðisfréttavefsíðu
Altman birti opinbera afsökunarbeiðni sína á svæðisfréttavefsíðunni Tumbler RidgeLines, þar sem hann sagði að enginn ætti að þurfa að ganga í gegnum harmleik líkt og þennan. Hann baðst afsökunar á að gervigreindarfyrirtækið hafi ekki greint lögregluyfirvöldum frá reikningi Rootseelar þegar hann var bannaður í júní.
Altman sagði að þrátt fyrir að orð hans megi sín lítils þá væri afsökunarbeiðni nauðsynleg til að viðurkenna skaðann og þann mikla missi sem samfélagið hefði orðið fyrir. Hann hét því að vinna með yfirvöldum svo atvik eins og þetta endurtaki sig ekki.