Halla Tómasdóttir forseti ferðast um Suðurland ásamt Birni Skúlasyni, manni sínum, í dag.
Forsetahjónin heimsækja leikskólann á Laugalandi en 30 ára afmæli hans er tilefni ferðarinnar. Þau hyggjast einnig heimsækja Laugalandsskóla, hjúkrunarheimilið Lund og Hellana á Hellu. Ferðinni lýkur svo í Hellisheiðarvirkjun þar sem 80 ára borsögu Jarðborana og Ræktunarsambands Flóa og Skeiða verður minnst.