Lee Jae Myung forseti Suður-Kóreu segir að gripið verði til „frekari ráðstafana“ biðjist úkraínskir ráðamenn ekki opinberlega afsökunar á því sem hann kallar einhliða uppljóstrun um flutning norðurkóreskra stríðsfanga til Suður-Kóreu.
Forsetinn sagði í færslu á X þetta verða afleiðingarnar héldu Úkraínumenn áfram að horfa fram hjá staðreyndum málsins. Hann tíundaði þó ekki hverjar aðgerðirnar yrðu.
Lee sakaði úkraínska ráðamenn einnig um að láta líta svo út að hann væri ósannindamaður. Málið varðaði virðingu Lýðveldisins Kóreu og þjóðarinnar allrar, sem ekki væri hægt að líta fram hjá.
Lee forseti vitnaði í viðtal við úkraínska utanríkisráðherrann Andrii Sybiha sem sagði málið fremur diplómatískan misskilning en áfall í samskiptum ríkjanna. Hann sagði Suður-Kóreu mikilvægan samherja og kvaðst vonast til að árangursríkt samstarf ríkjanna héldi áfram.
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti greindi frá flutningi fanganna í ræðu á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í síðustu viku og nefndi sérstaklega hve erfitt hefði verið að ná þeim lifandi.
Skömmu síðar lýsti Lee furðu sinni á uppljóstrun Zelenskys enda væri ítrasta leynd eina leiðin til að tryggja öryggi ættingja mannanna í Norður-Kóreu. Forsetinn krafðist þess strax að Úkraínumenn bæðust afsökunar.