Það var þétt dagskrá hjá forsetahjónunum í dag á öðrum degi opinberrar heimsóknar í Eistlandi. Halla Tómasdóttir forseti ávarpaði meðal annars eistneska þingið. Bæði forseti landsins og forsætisráðherra minntust á þátt Íslands í sjálfstæðisbaráttu Eista.
Það var á þessum degi, 20. ágúst, árið 1991, sem Eistland lýsti yfir sjálfstæði á ný eftir fall Sovétríkjanna. Í ræðu sinni fyrr í dag þakkaði Kristen Michal, forsætisráðherra Eistlands, Íslendingum fyrir að hafa verið fyrstir þjóða til þess að viðurkenna nýfengið sjálfstæði.
„Við höfum ekki fetað þessa braut ein. Við höfum átt góða vini, marga góða vini, og þá metum við mikils. En á úrslitastundu fyrir 35 árum voru það Íslendingar sem tóku fyrsta skrefið og studdu okkur. Önnur lönd fylgdu á eftir þeirri hugrökku ákvörðun Íslendinga um að viðurkenna Eistland. Ég er innilega ánægður að forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, sé hér með okkur 20. ágúst. Á sögulegum tímum skiptir hugrekki máli. Hugrekkið til að vera fyrst. Og þessa minnist Eistland með þakklæti,“ sagði Michal.
Alar Karis, forseti Eistlands, þakkaði Íslandi einnig í ávarpi sínu á eistneska þinginu „Takk Ísland fyrir að hafa haft hugrekki til þess að styðja Eistland. Eistar munu aldrei gleyma ávkörðun ykkar frá árunum 1990 og 1991, þegar þið stóðuð staðfastlega með Eystrasaltsþjóðunum. Þess vegna hefur torgið við utanríkisráðuneyti okkar í miðborg Tallinn borið nafnið Íslandstorg í næstum 30 ár,“ sagði Karis.
Forsetahjónin hafa fengið hlýjar móttökur í Eistlandi og á því var engin breyting þegar Halla ávarpaði eistneska þingið. Í ræðu sinni minntist hún á áskoranir á tímum gervigreindar ásamt mikilvægi þess að ræða saman og leitast við að skilja hvort annað þótt við séum ósammála.
„Frelsi erfist aldrei sjálfkrafa. Það þarf að endurnýja, kynslóð fram af kynslóð, af hugrekki á óvissutímum, með samtali fremur en sundrung og von í stað uppgjafar,“ sagði forsetinn.