Langanesbyggð fékk Björn Ingimarsson, fyrrum sveitarstjóra Múlaþings, til þess að gera óháða úttekt á rekstri sveitarfélagsins. Björn gerði áður sambærilega úttekt á Vopnafjarðarhreppi.
Niðurstöðurnar eru ágætar segir nýr sveitarstjóri, Jón Hrói Finnsson, en ef ekkert verður gert verður halli á rekstri sveitarfélagsins á næstu árum.
„Niðurstöðurnar benda til þess að það gæti orðið halli á rekstri sveitarfélagsins eftir svona tvö til þrjú ár ef við gerum ekkert í málinu. Það kemur meðal annars til út af því að það falla niður sameiningarframlög sem sveitarfélagið hefur þegið í dag. Sveitarfélagið stendur líka frammi fyrir umtalsverðum framkvæmdum og viðhaldi sem þarf að ráðast í.“
Vilja ekki skerða þjónustu
Jákvæð rekstrarniðurstaða hefur verið hjá sveitarfélaginu Langanesbyggð undanfarin ár. Jón segir ekki ákveðið hvað verði gert til að bregðast við niðurstöðunni, enda hafi hún bara nýlega verið kynnt sveitarstjórninni. Verið sé að skoða málin en tækifæri sveitarfélaga til þess að auka tekjur sínar séu ekki mikil.
„Það er mjög líklegt að við þurfum að forgangsraða framkvæmdum eitthvað og kannski dreifa þeim yfir tíma. En við vonumst til að við þurfum ekki að hreyfa mikið við þjónustu við íbúa sveitarfélagsins; það verður í forgangi að gera það sem minnst. Vonandi getum við unnið að þessu í góðu samráði við bæði starfsmenn og íbúa.“