Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar - Vísir

Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar - Vísir

Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar - Vísir

Brotaþoli er karlmaður á sjötugsaldri sem er upprunalega frá Palestínu en er einnig með ríkisfang í Möltu. Hann gengur inn í dómssalinn í fylgd réttargæslumanns síns og túlks.

Tveir lögreglumenn eru mættir til viðbótar við blaðamenn og aðstandendur sem fylgst hafa með málinu frá því á mánudag. Öll sætin í dómssalnum eru því upptekin. 

Líkt og hina dagana eru þeir ákærðu ekki mættir og hefðu þeir ekki mátt sitja inni í salnum á meðan brotaþoli gefur skýrslu. Allir þeir ákærðu hafa komið fyrir dómara, Andri Már Mortensen Birgisson neitaði að gefa skýrslu og Ingunn Rut Sigurðardóttir las yfirlýsingu þar sem hún játaði sekt að hluta.

Þá svöruðu Níels Pálmar Benediktsson, Halldór Logi Sigurðsson, Sigurður Gunnar Ásgeirsson og Pétur Már Mortensen Birgisson spurningum sækjenda og verjenda. 

Laminn með hnúajárni

Brotaþoli segist hafa verið sofandi þegar Andri, Ingunn, lítill maður og stór maður hafi ruðst inn heima hjá honum og hafið að lemja hann.

Stóri maðurinn, sem hann nafngreinir ekki, hafi haldið honum á meðan Ingunn og Andri hafi lamið hann í líkamann. Ingunn hafi verið með einhvers konar járn á höndunum, sem hann staðfestir seinna að hafi verið hnúajárn.

Þau hafi hent honum í jörðina og sparkað í hann, Ingunn, Andri og svokallaði stóri maðurinn.

„Eftir það settu þau eitthvað í kringum hendurnar og fætur mína og hentu mér í sturtuna,“ segir brotaþoli.

Í ákærunni er Halldóri Loga og Níelsi Pálmari gert að sök að hafa verið með Andra þetta föstudagskvöld. Níels segist hafa verið á svæðinu en ekki tekið þátt í ofbeldinu en Halldór segist aldrei hafa komið upp í Reykholt.

Hann hafi verið látinn vera í sturtunni alveg fram á mánudag, án þess að fara neitt út. Við fyrstu barsmíðarnar hafi hann orðið hálfmeðvitundarlaus. 

Brotaþolinn lýsir því að á laugardeginum hafi Pétur, Andri og Ingunn verið á svæðinu, setið á rúminu hans og verið í tölvunni. Hann vissi þó ekki hvað þau væru að gera en hafi ítrekað spurt hann um rafræn skilríki.

Sigurður Gunnar, pabbi Ingunnar og leigusali brotaþola til fjögurra ára, hefði komið og farið þessa helgi.

„Hann sagði mér; við ætlum að setja þig í bát og senda þig til Grænlands. Ég vissi ekki eða man ekki hvort það var laugardagur eða sunnudagur,“ segir brotaþoli.

Sigurður Gunnar neitaði fyrir dómara að hann hefði átt í einhverjum hótunum og hefði einungis komið tvisvar inn í íbúðina yfir helgina.

Ekkert borðað

Á mánudeginum hefði Sigurður sagt brotaþola að þau ætluðu að senda hann til Möltu. 

„Eftir það sagði Siggi: ef þú ferð ekki til Möltu þá munum við senda þennan stóra mann og hótaði hann dóttur minni,“ sagði brotaþoli.

Hann hafi verið sendur í sturtu en ekki viljað gera það fyrir framan Ingunni. Pétur hafi því staðið við hurðina á meðan. Þegar hann var búinn hafi Ingunn komið inn og farðað hann.

Hann hafi farið með Ingunni, Pétri og Andra í bíl til Reykjavíkur, þau fyrst stoppað í verslun Símans þar sem hann hafi undirritað eitthvert skjal og síðan að íbúð sem hann taldi vera heimili Andra en var ekki viss.

Þá sagði brotaþoli að hann hefði verið í bíl með Ingunni og Pétri þar til að Andri hefði snúið aftur og þau þá farið upp á Keflavíkurflugvöll. 

Þar hafi allavega Andri fylgt honum að öryggisleitinni á flugvellinum og hann síðan flogið til Frakklands og þaðan til Möltu.

„Ég tók leigubíl, gaf honum heimilisfang, fór inn og spurði dóttur mína og missti þá meðvitund. Þá fór ég á spítala.“

Aðspurður af verjanda Andra Más sagðist hann ekki hafa borðað en drukkið vatn. Hann hafi ekki talað við neinn í þær um tvær klukkustundir sem hann var á flugvellinum í París.

Þegar hann kom loks til Möltu og fór á spítala reyndist hann vera rifbeinsbrotinn og þurfti að fara í aðgerð á kjálka. Hann finni enn til í kjálkanum. 

Fingur hans hafi verið brotinn. Þegar hann svarar spurningum um fingurinn heldur hann um baugfingur á vinstri hendi.

„Þau gerðu það,“ svaraði hann aðspurður af hverju fingurinn var brotinn.

„Lögreglan spurði mig hvernig mér liði í puttanum og ég sagði að ég held að það sé Andri sem gerði þetta, sem tók í puttann til að binda hendurnar mínar.“

Þvertekur fyrir leiguskuldina

Málið hefur virst varða leiguskuld sem Sigurður taldi brotaþola hafa skuldað sér. Aðspurður af verjanda Sigurðar hvort hann hafi rætt við Sigurð eða skuldað honum leigu þvertekur brotaþoli fyrir það.

„Hvers konar spurningar eru þetta?“ spyr hann. 

Brotaþoli staðfestir að hann hafi greitt fimmtíu þúsund krónur í leigu þá mánuði sem hann bjó í íbúðinni. Hins vegar er þinglýstur leigusamningur upp á 75 þúsund krónur.

Brotaþoli segir að Sigurður hafi viljað hafa samninginn svona svo brotaþoli gæti sótt um húsaleigubætur. Þær bætur fékk hann einu sinni greiddar og segist hafa lagt inn á Sigurð. Hins vegar hafi honum verið gert að endurgreiða bæturnar þar sem hann var það tekjuhár.

Ósamræmi milli gagna og frásagnar

Talsvert ósamræmi er í frásögn brotaþola og því sem ákærðu sögðu annars vegar og hvað gögnin hafa sýnt fram á hins vegar.

Sem dæmi segir brotaþoli að Ingunn hafi komið með fyrsta föstudagskvöldið þegar ruðst var inn á heimili hans. Hins vegar hafa aðrir sagt að einungis þrír hafi verið á staðnum og hljómar af símtölum á milli Andra og Ingunnar að hún hafi ekki verið viðstödd fyrsta kvöldið

Sömuleiðis segir brotaþoli að hann hafi einu sinni áður hitt Andra en það hafi verið viku eða tveimur fyrir umrædda helgi, í apríl 2024. Þá hafi þeir einungis heilsast en aldrei rætt meinta leiguskuld.

Símtöl Andra voru spiluð fyrir dómara á mánudag og þar má heyra rödd brotaþola þar sem Andri og Sigurður tala saman. Einnig var sýnt myndband sem ungur strákur tók þar sem Andri og brotaþoli heyrast tala saman í háum rómi.

„Ég mun borga, ekki hafa áhyggjur, ég mun borga,“ heyrist að því virðist brotaþoli segja á upptökunni.

Eftir spilunina segir brotaþoli að rifjast hafi upp fyrir honum atburðurinn. Hins vegar hafi hann ekki skuldað leigu heldur borgað í seðlum nokkrum sinnum.

„Af því að ég man, ég sagði við Sigga að eitt skiptið sem ég fór með leigu tók konan hans við henni, eitt skipti gaf ég honum seðla og þá sagði Siggi okei, allt í lagi, ef þú ert með kvittun þá er það í lagi,“ sagði brotaþoli við dómara.

Brotaþoli telur einnig að þegar þau komu til Reykjavíkur á mánudeginum að þau hafi beðið fyrir utan íbúð Andra á meðan hann var þar inni.

Við skýrslutöku í gær sagði Pétur hins vegar að þau hefðu keyrt um bæði Hafnarfjörð og Kópavog á þessum tíma. Brotaþoli og Pétur hefðu einnig farið út úr bílnum, hann til að reykja og Pétur til að veipa.

Leitað til sálfræðings

„Þetta er svo erfitt, í hvert skipti sem ég rifja þetta upp ég bara.. það er ekki gott að rifja þetta upp eða muna,“ sagði brotaþoli.

Í hvert skipti sem hann komi nærri Reykholti rifjist allt upp og sé málið honum mjög hugleikið. Hann hafi leitað sér sálfræðihjálpar og nú hjálpi fólkið í kringum hann honum.

„Áverkinn verður alltaf.“

#dóttur #fór #landi #ótta #öryggi


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262923627d/for-ur-landi-af-otta-um-oryggi-dottur-sinnar

📰 Aðrar fréttir

50+: Er ég að verða heyrnar­laus eða eru allir farnir að öskra? - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 1
50+: Er ég að verða heyrnar­laus eða eru allir farnir að öskra? - Vísir
En um leið og þú stígur inn á staðinn mætir þér veggur af hljóði. Þetta er ekki bara lágvært suð af fólki að njóta lífsins; þetta er sambland af bassa...
Margrét fær ekki að áfrýja til Landsréttar
📅 04.10.2026 👁️ 1
Margrét fær ekki að áfrýja til Landsréttar
Landsréttur hefur hafnað beiðni Margrétar Friðriksdóttur um áfrýjunarleyfi vegna dóms héraðsdóms þar sem hún var fundin sek um ærumeiðingar í garð Bar...
Ógnin frá Rússum eykst: fjárfesta í herskipum, kafbátum og öflugum vopnakerfum
📅 04.10.2026 👁️ 1
Ógnin frá Rússum eykst: fjárfesta í herskipum, kafbátum og öflugum vopnakerfum
Ný herskip, kafbátar og vopnakerfi eru á meðal stórtækra fjárfestinga Rússa á norðurslóðum.Wes Streeting varnarmálaráðherra Bretlands og Tore O. Sandv...
Við erum búin að markaðsvæða íþróttastarf barna
📅 04.10.2026 👁️ 1
Við erum búin að markaðsvæða íþróttastarf barna
Kostnaður við íþróttaiðkun barna getur hlaupið á hundruðum þúsunda á ári, samkvæmt nýrri úttekt ASÍ.Tugþúsunda munur getur verið á æfingagjöldum félag...
Íslenskir og ungir menn með íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku
📅 04.10.2026 👁️ 1
Íslenskir og ungir menn með íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku
Einn af hverjum þremur karlmönnum á aldrinum 18–24 ára er ósammála því að karlar og konur eigi að njóta jafnréttis. Þetta kemur fram í skýrslu um stöð...
Meiri­hlutinn sprakk eftir fjóra mánuði - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 1
Meiri­hlutinn sprakk eftir fjóra mánuði - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu en mbl.is greindi fyrst frá. Ekki liggur fyrir hvers vegna samstarfi flokkanna hefur verið slitið en hvorki hefur ná...
Meirihlutinn sprunginn í Suðurnesjabæ
📅 04.10.2026 👁️ 1
Meirihlutinn sprunginn í Suðurnesjabæ
Meirihluti D-listans, Sjálfstæðisflokks og óháðra, og S-listans, Samfylkingar og óháðra, í Suðurnesjabæ er fallinn. Þetta staðfestir Haraldur Helgason...
Hyggst ná öllu land­svæðinu af Hútum - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 2
Hyggst ná öllu land­svæðinu af Hútum - Vísir
Þetta gerist í framhaldi af átökum sem geisað hafa undanfarna daga á milli Húta, sem eru studdir af klerkastjórninni í Íran, og alþjóðlega viðurkenndr...
New bid to save historic Fuerteventura house from demolition
📅 04.10.2026 👁️ 2
New bid to save historic Fuerteventura house from demolition
A new attempt has been launched to protect the Casa de la Cueva de la Negra in southern Fuerteventura from demolition, in the latest development in a ...
Mótmæli setja svip sinn á Frakkland: Íkveikjur, reiði og hundruð handtekin
📅 04.10.2026 👁️ 2
Mótmæli setja svip sinn á Frakkland: Íkveikjur, reiði og hundruð handtekin
Mótmæli setja svip sinn á Frakkland: Íkveikjur, reiði og hundruð handtekin Fréttin4. október 2026ErlentLeave a Comment Franska ríkisstjórnin á í erfið...
Auka næringarlæsi þjóðarinnar
📅 04.10.2026 👁️ 2
Auka næringarlæsi þjóðarinnar
Auka næringarlæsi þjóðarinnar Hjón­in Ingi Torfi Sverris­son og Linda Rakel Jóns­dótt­ir hafa gert ís­lenskt smá­for­rit sem hjálp­ar fólki að fylgj­a...
Framlengja gula viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum
📅 04.10.2026 👁️ 2
Framlengja gula viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum
Gul viðvörun vegna skriðuhættu á norðanverðum Vestfjörðum hefur verið framlengd til klukkan átta í fyrramálið þegar staðan verður endurmetin. Martina ...
Sigmundur dregur stórar ályktanir um íslenska karla í efa: „Úr hvaða hópum voru þátttakendur Íslands eiginlega valdir?“
📅 04.10.2026 👁️ 2
Sigmundur dregur stórar ályktanir um íslenska karla í efa: „Úr hvaða hópum voru þátttakendur Íslands eiginlega valdir?“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gagnrýnir harðlega umræðu um nýja norræna rannsókn á viðhorfum karla. Jafnréttisstofa bendir sjálf á að íslenska úrtakið ...
Fjórir teknir á rauðu ljósi
📅 04.10.2026 👁️ 2
Fjórir teknir á rauðu ljósi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur haft í nægu að snúast við að hafa hendur í hári ökufanta. Ökumenn hafa verið stöðvaðir fyrir ýmis brot eins og hr...
Ekki eina leiðin til að upp­fylla skuld­bindingar Ís­lands - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 2
Ekki eina leiðin til að upp­fylla skuld­bindingar Ís­lands - Vísir
Bókun 35 var tekin fyrir af Maríu Rut Kristinsdóttur, þingmanni Viðreisnar, og Snorra Mássyni, þingmanni Miðflokksins á Sprengisandi í morgun. „Mér fi...
Móðir og kennari skilur ekkert í nýja námsmatinu – „Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur“
📅 04.10.2026 👁️ 2
Móðir og kennari skilur ekkert í nýja námsmatinu – „Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur“
Ásdís Björg Gestsdóttir, kennari og móðir drengs í 10. bekk grunnskóla, segir nýtt námsmat ekki gagnast við að veita foreldrum eða nemendum leiðsögn. ...
Ráðherra leggur til leigubremsu
📅 04.10.2026 👁️ 2
Ráðherra leggur til leigubremsu
Frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra til breytinga á húsaleigulögum felur í sér að svokallaðri leigubremsu verði komið á. Formaður Samtaka leigjen...
Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 2
Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI - Vísir
„Ég er sammála nýlegum brottförnum starfsmönnum um að fyrirtækin sem þróa þessa tækni sýni alls ekki nægilega aðgát. En ég tel að við þurfum að líta d...
„Hérna færðu leyfi til að hugsa um þig“
📅 04.10.2026 👁️ 2
„Hérna færðu leyfi til að hugsa um þig“
Nadía Gunnarsdóttir lenti ung í bílslysi og meiddist illa. Stoðkerfi hennar var í lamasessi og henni var tjáð að hún geti ekki eignast börn í framtíði...
„Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 2
„Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ - Vísir
Áform um breytingar á umferðarlögum voru kynnt í samráðsgátt í síðasta mánuði. Þar er meðal rætt að taka upp hlutlæga refsiábyrgð eigenda ökutækis veg...
Sambýlismaður Gypsy Rose Blanchard talinn hafa látist vegna of stórs fíkniefnaskammts
📅 04.10.2026 👁️ 2
Sambýlismaður Gypsy Rose Blanchard talinn hafa látist vegna of stórs fíkniefnaskammts
Ken Urker, barnsfaðir og sambýlismaður Gypsy Rose Blanchard, fannst látinn 1. október, á 34 ára afmælisdaginn sinn. Hann lætur eftir sig tveggja ára d...
Christa Pike's prognosis still unclear after failed execution, lawyer says
📅 04.10.2026 👁️ 2
Christa Pike's prognosis still unclear after failed execution, lawyer says
Pike's lawyer says doctors are still trying to clear two lethal doses of pentobarbital from her body.
Kántrýstjarna storkaði Robert Kraft í húsinu hans – „Frjáls Palestína“
📅 04.10.2026 👁️ 3
Kántrýstjarna storkaði Robert Kraft í húsinu hans – „Frjáls Palestína“
Kántrýstjarnan Zach Bryan ögraði milljarðamæringnum Robert Kraft með því að klæðast bol til stuðnings Palestínu á tónleikum á leikvangi í eigu hans. K...
Fólk láti reyna á hús­ráð áður en það leiti á yfir­fulla Læknavakt - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 2
Fólk láti reyna á hús­ráð áður en það leiti á yfir­fulla Læknavakt - Vísir
„Það er búið að vera mjög mikil veikindi og kannski óvenju snemma, fyrr á ferðinni heldur en við höfum oft séð,“ segir Stefán Ari Guðmundsson, framkvæ...
Sveitar­stjórnin flytur sig um set vegna myglu - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 2
Sveitar­stjórnin flytur sig um set vegna myglu - Vísir
Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð lagði flutningana til samkvæmt nýrri fundargerð frá fundi þess 1. október. Mbl greindi fyrst frá. Í fundargerðinni...
„Nýta prjónaskapinn til að ná þessari ró í hugann“
📅 04.10.2026 👁️ 2
„Nýta prjónaskapinn til að ná þessari ró í hugann“
„Ég nota þetta mikið sjálf til að ná mínum núllpunkti í hversdeginum. Þetta er endurtekin hreyfing. Eitthvað sem maður þarf virkilega að einbeita sér ...
Fyndnustu dýralífsmyndir ársins - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 3
Fyndnustu dýralífsmyndir ársins - Vísir
Eins og hvert einasta ár sem keppnin hefur verið haldin bárust fleiri myndir til hennar en nokkru sinni áður. Að þessu sinni voru þær rúmlega tíu þúsu...
Hringdi á neyðarlínuna til þess að sleppa við að borga fyrir humarinn
📅 04.10.2026 👁️ 3
Hringdi á neyðarlínuna til þess að sleppa við að borga fyrir humarinn
Maður þá þrítugsaldri í Georgíu fylki í Bandaríkjunum hefur verið ákærður fyrir að plata bæði heilbirgðisstarfsfólk og starfsfólk veitingastaðar. Þótt...
Mímir mætti í þjóðbúningi í þingið en gert var grín að honum – „Kyssið minn mjög svo norska rass!“
📅 04.10.2026 👁️ 3
Mímir mætti í þjóðbúningi í þingið en gert var grín að honum – „Kyssið minn mjög svo norska rass!“
Mímir Kristjánsson, hinn hálfíslenski þingmaður, mætti í þjóðbúningi á norska stórþingið. Sökuðu hægri menn hann um að hafa mætt í hrekkjavökubúning.„...
Green Party members back 'Zionism is racism' conference motion
📅 04.10.2026 👁️ 3
Green Party members back 'Zionism is racism' conference motion
The vote has caused divisions among figures at the top of the party at its conference in Brighton.
Röð skjálfta ekki á­hyggju­efni út af fyrir sig - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 3
Röð skjálfta ekki á­hyggju­efni út af fyrir sig - Vísir
„Árið 1968 var stór skjálfti á svæðinu, um sex að stærð, og svo aftur árið 1929, svipaðri stærð, sem fannst vel. Þannig að við erum svona að bíða efti...
Gera þurfi breytingar á þing­sköpum til að efla virðingu og traust - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 3
Gera þurfi breytingar á þing­sköpum til að efla virðingu og traust - Vísir
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að á Íslandi tali þingmenn meira en sést á öðrum þingum og lýsir því sem ákveðnu samhæfingarvandamáli en...
Segir Bandaríkin vilja koma á nýjum viðræðum við Rússa
📅 04.10.2026 👁️ 3
Segir Bandaríkin vilja koma á nýjum viðræðum við Rússa
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti sagði í færslu á samfélagsmiðlum í dag að Bandaríkin væru tilbúin að hafa milligöngu um að hefja aftur viðræður mill...
Gerðu á­rás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 3
Gerðu á­rás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti - Vísir
Brúin liggur yfir Dnipro-ána og markar árásin á hana fjórða daginn þar sem Rússar hafa gert árásir á brýr Kænugarðs. Þúsundir íbúa aka yfir brúna dag ...
US Marine arrested over murder of woman in Okinawa, Japan
📅 04.10.2026 👁️ 2
US Marine arrested over murder of woman in Okinawa, Japan
Japan's government lodged a formal protest with the US, demanding that military officials take action.
UPDATE: Water supplies still disrupted in Yaiza and Teguise after island-wide blackout
📅 04.10.2026 👁️ 3
UPDATE: Water supplies still disrupted in Yaiza and Teguise after island-wide blackout
Water supplies are gradually returning to normal across Lanzarote today following the major power failure that brought the island's electricity system...
Watch: What we know about Russian strikes on Kyiv bridges
📅 04.10.2026 👁️ 2
Watch: What we know about Russian strikes on Kyiv bridges
BBC Ukraine correspondent Dan Johnson is near Kyiv's Northern Bridge, which has been hit for the second day in a row.
Yemen government announces major operation to retake Houthi territory
📅 04.10.2026 👁️ 2
Yemen government announces major operation to retake Houthi territory
The Yemeni president's announcement comes amid an exchange of strikes between the Houthis and the Saudi-led coalition.
„Það skal enginn snerta verkfallsvopn verkalýðshreyfingarinnar“
📅 04.10.2026 👁️ 4
„Það skal enginn snerta verkfallsvopn verkalýðshreyfingarinnar“
„Ég bara segi: Það skal enginn snerta verkfallsvopn verkalýðshreyfingarinnar,“ segir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, framkvæmdastjóri BSRB, í þættinum ...
Mennirnir sem létust voru feðgar - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 4
Mennirnir sem létust voru feðgar - Vísir
Norska ríkisútvarpið (NRK) greinir frá. Maður á þrítugsaldri er í haldi lögreglu grunaður um morð. Mennirnir þrír voru hluti af sama veiðihópi og voru...
British Museum announces changes to ease Bayeux Tapestry queues
📅 04.10.2026 👁️ 4
British Museum announces changes to ease Bayeux Tapestry queues
Measures include extended opening hours, as well as an audio guide and additional seating for visitors.
Arnarnesvegur opnar loks á morgun - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 4
Arnarnesvegur opnar loks á morgun - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar. Búast megi við einhverjum umferðartöfum og eru ökumenn beðnir um að aka með sérstakri gát og sýn...
Fresta kaupum á byssu sem greinir skaðleg efni – bíða svara frá Geislavörnum ríkisins
📅 04.10.2026 👁️ 5
Fresta kaupum á byssu sem greinir skaðleg efni – bíða svara frá Geislavörnum ríkisins
Kaup Umhverfis- og orkustofnunar á byssu sem skimar fyrir skaðlegum efnum hafa tafist vegna óvissu um áhrif röntgengeisla sem byssan gefur frá sér við...
Yfir fimm þúsund hand­teknir í frönsku stúdentamótmælunum - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 4
Yfir fimm þúsund hand­teknir í frönsku stúdentamótmælunum - Vísir
Édourard Geffray, menntamálaráðherra Frakka, segir að á milli fjögur og fimm hundruð menntaskólum verði lokað á morgun vegna mótmælanna. Nú þegar hafa...
I'm a classic old school Conservative, says Kemi Badenoch
📅 04.10.2026 👁️ 3
I'm a classic old school Conservative, says Kemi Badenoch
The Tory leader seeks to echo Margaret Thatcher as she sets out her guiding political principles.
„Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 4
„Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ - Vísir
Rússar hafa framkvæmt ítrekaðar drónaárásir gegn íbúum og þá hafa myndbönd frá svæðinu sýnt íbúa flýja fótgangandi og á hjólum til að reyna að finna æ...
Skjálfti upp á 3,4 - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 4
Skjálfti upp á 3,4 - Vísir
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands reið skjálftinn yfir klukkan sextán mínútur yfir tólf og var 3,4 að stærð. Skjálftinn var á milli Hamarsin...
Starfsfólkið á frægum bar vildi ekki afgreiða Meghan Markle – „Fólki líkar ekki við hana“
📅 04.10.2026 👁️ 4
Starfsfólkið á frægum bar vildi ekki afgreiða Meghan Markle – „Fólki líkar ekki við hana“
Starfsfólk á verðlaunuðum bar í Bretlandi neitaði að afgreiða Meghan Markle, hertogaynjuna af Sussex, á dögunum. Ástæðan er sú að því líkaði ekki við ...
Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði
📅 04.10.2026 👁️ 3
Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði
Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði Arnþrúður Karlsdóttir Mynd: RÚV/Skjáskot Rekstur Útvarps Sögu batnaði verulega á síðasta ári og nam hagnaður félagsins ...
„Bátarnir munu stöðvast og flugvélarnar fara af stað“ – Lowe boðar fjöldabrottvísanir
📅 04.10.2026 👁️ 4
„Bátarnir munu stöðvast og flugvélarnar fara af stað“ – Lowe boðar fjöldabrottvísanir
Rupert Lowe, leiðtogi breska stjórnmálaflokksins Restore Britain, boðar umfangsmiklar fjöldabrottvísanir verði flokkur hans við völd í Bretlandi. Í ný...