Aðstoðarmaður hennar, Ingileif Friðriksdóttir, var samferða Þorgerði fyrstu kílómetrana en varð svo að játa sig sigraða og leyfa þeirri síðarnefndu að taka fram úr sér.
„Skemmst frá því að segja að Þorgerður er tekin fram úr mér,“ segir Ingileif meðal annars í myndbandsfærslu sem hún deildi ásamt Þorgerði á Facebook eftir hlaupið en hún bætti svo við „sjáumst bara í markinu gamla mín.“
Þorgerði, sem er um þrjátíu árum eldri en Ingileif, leið „hrikalega vel“ að loknu hlaupinu en hún sagði það besta við daginn hafa verið að sjá alla sem mættu á hliðarlínu hlaupaleiðarinnar og hvöttu hlaupara til dáða.
Þá væri líka svo frábært að sjá öll mismunandi málefnin sem fólk hljóp til styrktar. Í sinni færslu sagði hún svo:
„Vá hvað það var gaman að hlaupa 10 km í fyrsta sinn í Reykjavíkurmaraþoninu! Þvílík gleði og kraftur,“ og óskaði hinum hlaupurunum til hamingju með daginn.