Fuglafræðingur sem aðstoðaði lögregluna á Austurlandi við greiningu ríflega 100 eggja sem erlent par hugðist flytja af landi brott segir litla von um að eggin myndu klekjast. Fólkið hafi líklega ætlað sér að halda fuglunum lifandi hjá sér.
Lögreglan á Austurlandi handtók í síðustu viku par sem var á leið úr landi með Norrænu, með fimm lifandi hrossagauksunga og og rúmlega hundrað egg frá villtum íslenskum fuglum, sumum alfriðuðum.
Eggin voru geymd í sérútbúnum hitatöskum og fundust við leit tollgæslu og lögreglu. Fuglategundirnar voru meðal annars lundi, rjúpa, heiðlóa, spói, æðarfugl, lómur, hrossagaukur, rita og önd.
Hálfdán Helgi Helgason, fuglavistfræðingur hjá náttúrustofu Austurlands og náttúrufræðistofnun, var gestur í Síðdegisútvarpi Rásar tvö í dag. Hann aðstoðaði lögreglu við að greina eggin. Hálfdán segir nær ómögulegt að koma ungum á legg þegar egg finnast í ástandi sem þessu.
„Þegar eggin finnast eru fimm ungar klaktir, hrossagauksungar. Við gegnumlýsum eggin og þau sem voru í hitatöskunni voru komið nokkuð vel á veg í þroska,“ segir Hálfdán.
„En það er bara þannig að svona egg eiga afskaplega litla von um að klekjast. Jafnvel þó að svo væri að koma ungum eins og lómsungum eða rituungum eða slíku á legg, það er hægara sagt en gert og eiginlega ekki hægt.“
Hálfdán segir fólkið að öllum líkindum vera erlenda safnara sem vilji reyna að halda fuglunum lifandi hjá sér.
„Þetta er áhugamál hjá mjög sérhæfðum hópi að halda villtar tegundir. Þetta er svo sem eitthvað sem hefur gengið í gegnum aldirnar að menn hafa verið með svona andagarða og ýmislegt og þetta er kannski nýjasta útfærslan af því að halda aðrar villtar tegundir eins og lunda.“