Átök brutust út þegar fjöldi íbúa safnaðist saman við sjúkrahús í ástralska bænum Alice Springs þar sem læknar gerðu að sárum Jefferson Lewis, sem grunaður er um að hafa myrt fimm ára stúlku af ættum frumbyggja.
Tveir lögreglumenn, tveir ökumenn sjúkrabíls og slökkviliðsmaður meiddust í átökunum og kveikt var í nokkrum farartækjum. Stúlkan hvarf frá heimili sínu í byggð frumbyggja seint á laugardagskvöld og þá hófst umfangsmikil leit á jörðu niðri og úr þyrlum, sem vakti mikla athygli og áhyggjur um gervalla Ástralíu.
Hún fannst örend um fimm kílómetra þaðan sem hún sást seinast á lífi, skammt fyrir utan Alice Springs.
Lögreglustjórinn Martin Dole sagði alla hafa vonað að öðruvísi hefði farið, dauði stúlkunnar væri mikið áfall. Nokkrum klukkustundum eftir að líkið fannst tilkynnti lögregla að Lewis hefði verið handtekinn grunaður um ódæðið eftir að hann gaf sig fram í heimabyggð stúlkunnar.
Þar var gengið í skrokk á honum þar til lögregla kom honum meðvitundarlausum á brott og á sjúkrahús. Þar söfnuðust hundruð saman, kröfðust hefndar og reyndu að komast inn að sögn lögreglustjórans. Lewis er nú í varðhaldi og verður ákærður fyrir morðið á næstu dögum.