Starfsfólk Reykjavíkurborgar hefur ítrekað gert athugasemdir við notkun Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra á innkaupakorti sem hún hefur til umráða í störfum sínum. Heiða hefur notað kortið fyrir 753 þúsund krónur síðan hún tók við embætti í febrúar í fyrra.
23 skriflegar athugasemdir og fleiri munnlegar
Starfsfólk á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara hefur gert 23 skriflegar athugasemdir við notkun Heiðu á kortinu. Þetta kemur fram í skriflegu svari Reykjavíkurborgar við fyrirspurn fréttastofu.
Þar undir eru athugasemdir um skil á kvittunum, óskir um nánari skýringar á færslum og leiðbeiningar um rétta notkun innkaupakortsins. Starfsfólk hefur auk þess gert munnlegar athugasemdir við notkunina og veitt borgarstjóra leiðbeiningar um notkun á kortinu og reglur. Þá hefur bókhaldsskrifstofa fjármála- og áhættustýringarsviðs einnig gert athugasemdir við óskýrar upplýsingar á kvittunum eða skort á þeim.
Segist tvisvar hafa endurgreitt reikning
Strangar reglur eru um skil á reikningum í tengslum við notkun innkaupakorta Reykjavíkurborgar og samkvæmt þeim er ekki heimilt að kaupa áfengi nema að fenginni sérstakri heimild.
Heiða Björg sagði í samtali við fréttastofu í gær að heimild hafi legið fyrir áfengiskaupum í þau skipti sem þau voru gerð. Mjög strangar reglur gildi um bókhald borgarinnar.
Hæstu greiðslur Heiðu Bjargar með innkaupakortinu eru vegna flugferðar, 300 þúsund krónur. Það segist Heiða hafa verið vegna verkfalla hjá Finnair þegar hún var í opinberri heimsókn í Japan með Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands.
Hún hafi þurft að bóka flugið um með skömmum fyrirvara og um miðja nótt og verið leiðbeint að gera það með þessum hætti.