Fjölmargir og fjölbreyttir viðburðir eru á dagskrá í Eyjafirði um helgina.
Fyrst ber að nefna Bíladaga, sem hófust 17. júní með glæsilegri bílasýningu í Boganum. Í dag hélt dagskrá hátíðarinnar áfram með driftkeppni og í kvöld verður bílalimbó og vegasalt á svæði félagsins. Hátíðin nær síðan hámarki á laugardagskvöldið þegar hin margrómaða burn-out keppni fer fram.
Hinsegin hátíð Norðurlands eystra hófst í dag með regnbogasundi á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit og lifandi bókakaffi á bókasafni sveitarfélagsins. Hápunktur hátíðarinnar er síðan á laugardaginn þegar gleðiganga verður í Hrísey.
Grímseyingar halda upp á sólstöðuhátíð alla helgina, í tilefni af sumarsólstöðum. Hátíðin er árleg og gjarnan vel sótt, sérstaklega af erlendum ferðamönnum.
Þá hófst eitt stærsta golfmót sumarsins á Jaðarsvelli, Arctic Open. Mótið er haldið í fertugasta skipti í ár og eru keppendur frá öllum heimshornum. Mótið stendur í tvo daga og fer lokahóf þess fram á laugardaginn. Mikil eftirvænting er gjarnan meðal þátttakenda, sérstaklega að spila golf í miðnætursólinni, sem er þó ólíklegt að láti sjá sig á Akureyri í kvöld og á morgun.