Meirihluti Alþingis samþykkti fjármálaáætlun til ársins 2031. Samkvæmt henni á að reka ríkissjóð með afgangi á næsta ári, í fyrsta skipti síðan 2018. Stjórnarandstaðan segir útilokað að það markmið standist.
31 þingmaður meirihlutans greiddi atkvæði með tillögunni en 20 þingmenn stjórnarandstöðu voru á rauða takkanum.
Fjölmargir þingmenn stjórnarandstöðunnar tóku til máls um atkvæðagreiðsluna og voru sammála um að áætlunin væri ótæk. Síðan hún hafi verið lögð fram sé spáð minni hagvexti og meira atvinnuleysi. Því blasi við að forsendur að baki áætluninni séu brostnar.
Um það er ekki deilt í nefndaráliti meirihlutans. Þvert á móti er viðurkennt að forsendur séu breyttar en ekki voru gerðar tillögur um breytingar þar sem ekki liggur fyrir heildstætt mat á öllum þeim breytingum sem orðið hafa. Hins vegar sé brýnt að gera grein fyrir þeim breytingum í fjárlagafrumvarpi næsta árs.
„Vart pappírsins virði“
„Það er algerlega ljóst að ríkisstjórnin er búin að kasta hér inn hann klæðinu og ég veit ekki hvernig í ósköpunum við eigum að geta farið í það að ræða hér fjárlög næsta árs sem byggja á fjármálaáætlun sem er röng,“ sagði Stefán Vagn Stefánsson, varaformaður Framsóknarflokksins, við atkvæðagreiðsluna. Hann lagði fram breytingartillögu um að áætluninni yrði vísað aftur til ríkisstjórnar en hún var felld.
Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins sagði að réttast hefði verið að uppfæra áætlunina og ræða hana í sérstökum þingstubbi í ágúst. „Við hljótum að gera þá lágmarkskröfu að fjármálaáætlun sé raunhæf og að hún sé trúverðug. En þessi áætlun sem hér er verið að leggja upp byggist ekki á traustum grunni og hún er vart pappírsins virði.“
Dagur B. Eggertsson, varaformaður fjárlaganefndar, sagði að í fjármálaáætlun fælist aðhald en einnig væri verið að bæta verulega í útgjöld til heilbrigðismála. „Það er auðvitað öllum ljóst að átak við fjölgun hjúkrunarrýma er ekki bara mikilvægt hjúkrunarrýmanna vegna heldur vegna allrar þjónustukeðju heilbrigðiskerfisins og áherslu á heilbrigðisþjónustu um allt land líka.“
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra, sagði stjórnarandstöðuna reyna að afvegaleiða umræðuna. „Og beina sjónum frá þeirri staðreynd að ríkisstjórn undir forystu Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins er loksins að takast það sem Sjálfstæðisflokknum með allt sitt tal um ábyrga hagstjórn tókst ekki hérna á síðustu átta árum, að leggja fram fjármálaáætlun um hallalaus fjárlög.“