Er þetta meðal þess sem fram kemur í tilkynningu á vef Ferðamálastofu en þar segir einnig að Bandaríkjamenn hafi verið tæplega þriðjungur þeirra sem flugu af landi brott í maí. Þeir voru um fimmtíu og tvö þúsund talsins en það samsvarar 31,8 prósentum allra brottfara erlendra farþega sem fóru frá landinu í maí.
Næst fjölmennasti hópurinn eru Bretar, um tólf þúsund talsins eða 7,3 prósent af heild og því um 3,6 prósentum færri en á sama tíma í fyrra. Þá voru Þjóðverjar þriðji fjölmennasti hópurinn sem stóð að baki um tíu þúsund brottförum eða 6,1 prósent af öllum brottförum erlendra farþega í maí en jafnframt 3,6 prósentum færri en í maí í fyrra.
Brottfarir erlendra farþega frá áramótum hafa verið um sjö hundruð þrjátíu og fjögur þúsund en samkvæmt Ferðamálastofu er það svipaður fjöldi og á sama tímabili, janúar til maí, í fyrra. Íslenskir ferðalangar sem fóru héðan það sem af er liðið ári eru um tvö hundruð fjörutíu og átta þúsund. Það eru 14,5 prósentum færri en í fyrra.