Silfra bar sigur úr býtum í flokknum: „Það besta af því besta“ á heimsvísu og í undirflokknum: „Einu sinni á líftíðinni“. Um þann undirflokk segir að umræddar upplifanir séu ólíkar öllu öðru og um sé að ræða þær allra bestu upplifanir sem notendur Trip Advisor veita einkunnir.
Í tilkynningu frá Icelandia, móðurfélagi DIVE, segir að þetta sé æðsti heiður sem Tripadvisor veitir.
Silfra fékk á undanförnum tólf mánuðum rúmlega fimm þúsund umfjallanir á vefnum og er með fullt hús stiga. Í umsögnum er oft minnst á tærleika vatnsins, þá einstöku tilfinningu að fljóta á milli heimsálfa og þá persónulegu þjónustu sem fólk upplifði alla ferðina.
Í öðru sæti er kanóferð í Wales og í því þriðja er fjögurra daga ferð til Machu Picchu í Perú.
„Þessi viðurkenning er okkur ótrúlega mikilvæg því hún kemur beint frá gestum okkar,“ sagði Björn Ragnarsson, forstjóri Icelandia, í áðurnefndri tilkynningu.
„Teymið okkar leggur metnað sinn í að veita örugga, persónulega og ógleymanlega upplifun í einu magnaðasta náttúruundri jarðar. Að ferðin skuli vera valin sú besta í heimi er heiður sem við deilum með hverjum einasta leiðsögumanni og þeim fjölmörgu gestum sem hafa treyst okkur fyrir því að gera Íslandsferðina sína ógleymanlega.“