Öldruð kona féll fram af svölum á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi í Reykjavík á sunnudaginn og lést.
Vísir greinir frá en þar er haft eftir Grétari Stefánssyni, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni á lögreglustöð fjögur, sem sinnir verkefnum í Grafarvogi, að andlátið sé rannsakað sem slys og málið sé komið inn á borð miðlægrar rannsóknardeildar lögreglu.
Forstjóri Eirar segir um hörmulegt slys að ræða og segir lögreglu og viðbragðsaðila strax hafa verið kallaða til.
Eybjörg Hauksdóttir, forstjóri hjúkrunarheimilisins, segir í samtali við Vísi að verið sé að fara yfir verkferla og meta hvort hægt verði að grípa til frekari öryggisráðstafana.