Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning um málið um hálfníuleytið í gærkvöldi, 8. júlí.
„Þyrla Landhelgisgæslunnar var boðuð á vettvang til þess að ferja fjarskiptabúnað á svæðið, en mjög slæmt fjarskiptasamband er á þessum slóðum. Á flugi sínu yfir svæðið fundu starfsmenn Landhelgisgæslunnar manninn og var hann tekin um borð í þyrluna,“ segir í tilkynningu.