Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

falsad4
Mynd úr alvöru fasteignaauglýsingu

Greinileg aukning hefur orðið á notkun falsaðra ljósmynda í fasteignaauglýsingum hér á landi, þar sem gervigreind er notuð til að breyta raunverulegum ljósmyndum af eignum eða skapa nýja ásýnd þeirra.

Mannlíf hefur fylgst ítarlega með fasteignaauglýsingum undanfarna 18 mánuði og á þeim tíma hefur þróunin verið hröð. Við upphaf tímabilsins var afar fágætt að sjá falsaðar ljósmyndir sem gerðar höfðu verið með gervigreind en nú birtast slíkar myndir reglulega í nýjum fasteignaauglýsingum, jafnvel oft í hverri viku.

Hér er ekki átt við hefðbundnar tölvuteikningar sem sýna hvernig óbyggt eða óklárað húsnæði gæti litið út þegar framkvæmdum lýkur. Um er að ræða ljósmyndir af raunverulegum og fullbyggðum fasteignum sem hefur verið breytt með gervigreind þannig að það sem birtist á myndinni er að hluta til ekki til staðar í eigninni.

Í sumum tilfellum er húsgögnum og öðrum lausamunum bætt inn á ljósmyndir af tómum rýmum. Í öðrum tilfellum ganga breytingarnar lengra og geta náð til hluta fasteignarinnar sjálfrar, svo sem gólfefna eða fastar innréttingar. Þannig verður til ljósmynd sem byggir á raunverulegu rými en sýnir ekki að öllu leyti raunverulegt ástand þess.

Miklar umræður sköpuðust á samfélagsmiðlum í september um siðferði slíkrar myndbirtingar eftir að fasteignasalan Pálsson notaðist við tvær falsaðar ljósmyndir sem unnar höfðu verið með gervigreind. Hvergi kom fram í auglýsingunni að myndirnar hefðu verið falsaðar eða þeim breytt með þessum hætti.

„Það er til að sýna fram á að hlutir komist fyrir inn í henni, hún er tóm og tilbúin til afhendingar,“ sagði Edwin Árnason, fasteignasali hjá Pálsson, við Mannlíf í fyrra þegar hann var spurður hvers vegna þessi leið hefði verið farin.

„Þetta er fallegra en hafa þær tómar, þetta er ekki flókið.“

Aðspurður hvort honum þætti notkun falsaðra ljósmynda með þessum hætti geta verið blekkjandi sagði Edwin svo ekki vera.

„Við höfum öll okkar skoðanir á þessum hlutum. Mér finnst það ekki. Ég myndi ekki nota orðin „að blekkja“. Fólk er ekki að kaupa húsgögn, fólk er að kaupa íbúð. Það er bara verið að sýna möguleikann á rýminu.“

Mannlíf benti þá á að parket sem fylgdi íbúðinni virtist einnig vera í mun betra ástandi á fölsuðu ljósmyndinni en á raunverulegum myndum af eigninni.

„Það sést á hinum myndunum að parketið er ekki stórglæsilegt og einnig sést þetta þegar fólk kemur og skoðar. Það gera sér allir grein fyrir því sem koma og skoða eignina að parketið var ekki í lagi þannig að í allavega þetta skipti slapp það.“

Auðunn kallaði þetta pínu scam

Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson vakti einnig athygli á notkun falsaðra ljósmynda þegar hann seldi íbúð sína við Leifsgötu 10 í janúar.

Þá höfðu verið teknar ljósmyndir af íbúðinni en gervigreind síðan notuð til þess að breyta þeim og bæta meðal annars húsgögnum og öðrum munum inn í rýmin. Útkoman voru þannig myndir sem litu út eins og ljósmyndir af íbúðinni þótt hluti þess sem sást á þeim hefði aldrei verið fyrir framan myndavélina.

„Ég er að selja íbúð mína að Leifsgötu 10 og það er búið að taka þessar fallegu myndir af íbúðinni, nema hvað það er alveg pínu „scam“,“ sagði Auðunn.

„Það er lenskan núna í fasteignasölu að maður taki bara fallegar ljósmyndir af íbúðinni tómri, svo er notuð gervigreind til að teikna inn húsgögn og ég skil það alveg smá. Það gefur aðeins skýrari hvernig það væri að búa í íbúðinni en maður sjái bara einhver tóm herbergi en ég veit það ekki. Þetta er alveg pínu forvitnileg þróun.“

Auðunn spurði fylgjendur sína í kjölfarið hvort þeim þætti þetta vera svindl eða hvort slík notkun gervigreindar væri í góðu lagi.

Mannlíf ræddi einnig við Grétar Jónasson, framkvæmdastjóra Félags fasteignasala, sem sagði notkun slíkra mynda kalla á ítarlega umræðu, bæði út frá lögum og siðareglum, enda byði tæknin upp á mikla möguleika til að breyta ljósmyndum.

Til stóð að taka málið fyrir á stjórnarfundi Félags fasteignasala en Grétar svaraði ekki fyrirspurnum Mannlífs þegar leitað var eftir upplýsingum um niðurstöðu þeirrar umræðu.

Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, hefur jafnframt sagt það mat samtakanna að taka verði fram þegar myndir sem birtast í fasteignaauglýsingum eru gerðar með gervigreind.

Mannlíf hefur síðan rætt við nokkra seljendur fasteigna þar sem falsaðar ljósmyndir hafa verið notaðar. Flestir þeirra segja hugmyndina hafa komið frá fasteignasölunum sjálfum og benda meðal annars á að erfiðara sé að selja fasteignir nú en áður.

Málið er jafnframt umdeilt innan fasteignasölustéttarinnar. Mannlíf ræddi við þrjá fasteignasala sem ekki vildu koma fram undir nafni. Sumir þeirra telja að notkun falsaðra ljósmynda geti grafið undan trausti til fasteignasala en aðrir telja verið að gera úlfalda úr mýflugu.

Getur ýtt kaupendum frá

Henry Alexander Henrysson, siðfræðingur og doktor í heimspeki, segir erfitt að fella almennan siðferðilegan dóm yfir notkun gervigreindar enda sé tæknin þegar samofin hversdagslegri notkun fólks á tölvum og snjalltækjum en öðru máli geti hins vegar gegnt þegar farið er sérstaklega inn í forrit skapandi gervigreindar og tæknin látin skapa eða breyta efni fyrir notandann.

Þegar kemur að fasteignaauglýsingum segir Henry hægt að færa ákveðin rök fyrir því að nota tæknina til þess að sýna mögulega nýtingu rýmis. Til dæmis þurfi þá ekki að flytja húsgögn á milli staða eingöngu til þess að mynda eign.

Mörkin séu hins vegar skýr þegar farið er að breyta fasteigninni sjálfri á myndinni.

„Til dæmis væri ámælisvert að láta rými stækka eða breyta lögun þess í myndvinnslunni. Eitt er að færa til og breyta um lausamuni, það er annað að ljúga til um eðli og gerð húsnæðisins.“

Henry bendir á að ljósmyndarar hafi lengi getað notað tækni sína til að láta rými virðast stærri en þau raunverulega eru. Gervigreind megi hins vegar ekki verða til þess að breyta fasteigninni sjálfri.

„Góðir ljósmyndarar hafa í gegnum tíðina getað látið rými virðast stærri en þau eru. Tæknin má ekki gera rýmin stærri en þau eru.“

Þá þurfi sá sem notar tæknina sjálfur að bera ábyrgð á niðurstöðunni.

„Forritin eru auðvitað gervigreind og búa ekki yfir neins konar dómgreind. Sá sem nýtir sér þau getur ekki búist við að allt sé leyfilegt sem þau kasta út úr sér.“

Henry telur líklegt að gervigreindarbreyttar ljósmyndir verði meira áberandi í fasteignaauglýsingum til skamms tíma en að fasteignasölustéttin muni að lokum þurfa að móta sér skýrari siðferðileg viðmið.

Kaupendur muni einnig hafa áhrif á hversu langt fasteignasalar geti gengið.

„Mögulega verður einhver toppur núna á næstunni meðan jafnvægi er náð, en mig grunar að eftirspurnin eftir skapandi myndvinnslu komi ekki frá kaupendum – enda ekki þeim í vil.“

Hann telur jafnframt að fasteignasalar geti tekið ákveðna áhættu með því að birta falsaðar ljósmyndir af eignum sem þeir hafa til sölu.

„Að lokum verður það svo að fasteignasalar eru jafnvel að taka áhættu og gætu mögulega ýtt væntanlegum kaupendum frá sér með því að bjóða upp á þessar myndir,“ segir Henry að lokum.

#algengar #falsaðar #fasteignaauglýsingum #ljósmyndir #orðnar


Upprunaleg slóð:
https://mannlif.is/greinar/falsadar-ljosmyndir-ordnar-algengar-i-fasteignaauglysingum/

📰 Aðrar fréttir

Ímam gagnrýnir umfjöllun mbl um Usmani: „Hvers vegna þurfa allir múslimar að svara?“
📅 05.11.2026 👁️ 0
Ímam gagnrýnir umfjöllun mbl um Usmani: „Hvers vegna þurfa allir múslimar að svara?“
  Mansoor Ahmad Malik, ímam og forstöðumaður Samfélags Ahmadiyya-múslima á Íslandi, gagnrýnir hlutverk mbl og blaðamannsins Stefáns E. Stefánssonar í ...
Hvað veistu um... Múmínálfana? - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 0
Hvað veistu um... Múmínálfana? - Vísir
Sögurnar gerast í Múmíndal, þar sem fjölskyldan býr í bláa múmínhúsinu og tekur jafnan vel á móti gestum. Múmínálfarnir hafa lifað góðu lífi í bókum, ...
Þau bjóða upp á fyrsta Bókakonfekt vetrarins
📅 05.11.2026 👁️ 0
Þau bjóða upp á fyrsta Bókakonfekt vetrarins
Bókakonfekt Forlagsins hefst í kvöld, fimmtudaginn 5. nóvember kl. 20 í bókabúð Forlagsins á Fiskislóð 39 og í streymi sem sjá má hér fyrir neðan.Bóka...
Systkini deildu um arf eftir að faðir þeirra hafði freistað þess að gera soninn arflausan
📅 05.11.2026 👁️ 0
Systkini deildu um arf eftir að faðir þeirra hafði freistað þess að gera soninn arflausan
Erfðadeilur systkina enduðu fyrir Landsrétti eftir að faðir þeirra hafði reynt að gera son sinn arflausan.
Búnir að stafla þýfinu þegar eig­andinn kom heim - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 0
Búnir að stafla þýfinu þegar eig­andinn kom heim - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglu í dag. Þar segir að frá fimm í morgun til fimm í dag hafi 121 mál verið skráð í kerfi lögreglunna...
Ítrekaðar athugasemdir frá Vinnueftirlitinu og íbúar orðnir langþreyttir
📅 05.11.2026 👁️ 0
Ítrekaðar athugasemdir frá Vinnueftirlitinu og íbúar orðnir langþreyttir
Vinnueftirlitið hefur gert ítrekaðar athugasemdir við frágang á byggingu hótelturnsins við Skúlagötu. Götur hafa verið lokaðar kringum byggingarstaðin...
California Gov Newsom commutes death sentences for all 548 people on death row
📅 05.11.2026 👁️ 0
California Gov Newsom commutes death sentences for all 548 people on death row
California has historically had the largest population of death row inmates in the US.
Golfarar njóta nóvemberblíðunnar
📅 05.11.2026 👁️ 0
Golfarar njóta nóvemberblíðunnar
Fyrstu vikur vetrar hafa verið nokkuð mildar víða um land. Norðlendingar njóta góðs af tíðinni og sinna bústörfum utandyra eða spila golf í blíðunni. ...
Rekstrargrundvelli Landbúnaðarháskólans ógnað
📅 05.11.2026 👁️ 0
Rekstrargrundvelli Landbúnaðarháskólans ógnað
Samkvæmt nýjum tillögum stendur framlag háskólaráðuneytisins aðeins undir 45 af hundraði áætlaðs rekstrarkostnaðar Landbúnaðarháskóla Íslands á móti t...
Vilja stytta lánstímann í 25 ár en mæta andstöðu úr ýmsum áttum
📅 05.11.2026 👁️ 0
Vilja stytta lánstímann í 25 ár en mæta andstöðu úr ýmsum áttum
Í stefnuyfirlýsingu núverandi ríkisstjórnar er rætt um að draga þurfi úr vægi verðtryggingar og í húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar sem var kynntur fyr...
Melania Trump calls for lasting Ukraine truce as she hosts Russian and Ukrainian officials
📅 05.11.2026 👁️ 0
Melania Trump calls for lasting Ukraine truce as she hosts Russian and Ukrainian officials
The US first lady was credited by all for playing a key though unspecified role in the ceasefire.
Þau hlutu Hönnunarverðlaun Ís­lands - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 0
Þau hlutu Hönnunarverðlaun Ís­lands - Vísir
Hönnunarverðlaun Íslands voru veitt í þrettánda skipti í veislusalnum Grósku. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum í samstarfi við ...
Meirihluti á framfærsluaðstoð borgarinnar með erlent ríkisfang
📅 05.11.2026 👁️ 1
Meirihluti á framfærsluaðstoð borgarinnar með erlent ríkisfang
Rúm 63% þeirra sem voru á framfærsluaðstoð Reykjavíkurborgar á síðasta ári eru með erlent ríkisfang.Þar af eru flestir Úkraínumenn. Þar á eftir koma P...
Sagði af sér rétt áður en hann var á­kærður fyrir embættisbrot - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 0
Sagði af sér rétt áður en hann var á­kærður fyrir embættisbrot - Vísir
Bankinn, sem heitir Ueno Bank, hefur fryst sparnað milljóna íbúa Paragvæ og í kjölfarið hafa fjölmargir mótmælt á götum landsins. Samkvæmt Reuters hef...
Aug­ljós­lega að undir­búa forsetaframboð - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Aug­ljós­lega að undir­búa forsetaframboð - Vísir
J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna birti langa yfirlýsingu á samfélagsmiðlinum X þar sem hann sagði Íransstríðið vera ástæðu þess að Repúblikanar tö...
Opnar sig um það hryllilega sem Playboy-kóngurinn vildi að hún gerði með tvíburasystur sinni
📅 05.11.2026 👁️ 1
Opnar sig um það hryllilega sem Playboy-kóngurinn vildi að hún gerði með tvíburasystur sinni
Tvíburasysturnar Karissa Shannon og Kristina bjuggu í tvö ár í Playboy-setrinu með stofnanda vörumerkisins, Hugh Hefner. Á þessum tíma reyndi Hefner í...
Brá sér á klósettið á Hvolsvelli – Þegar hann kom til baka var bíllinn horfinn
📅 05.11.2026 👁️ 1
Brá sér á klósettið á Hvolsvelli – Þegar hann kom til baka var bíllinn horfinn
Karlmanni, sem skrapp á salerni á bensínstöð á Hvolfsvelli, brá í brún þegar hann kom aftur út en þá hafði ferðafélagi hans ekið burt á bílnum hans. S...
Þrjátíu ár frá slysinu sem hafði afdrifaríkar afleiðingar fyrir Guðmund Inga
📅 05.11.2026 👁️ 1
Þrjátíu ár frá slysinu sem hafði afdrifaríkar afleiðingar fyrir Guðmund Inga
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður utan flokka, rifjaði upp alvarlegt umferðarslys sem hann lenti í fyrir nákvæmlega 30 áru...
Verktaki sem Kópavogsbær krefur um milljarða er í greiðslustöðvun
📅 05.11.2026 👁️ 1
Verktaki sem Kópavogsbær krefur um milljarða er í greiðslustöðvun
Kópa­vogs­bær sækir full­ar heimt­ur vegna van­efnda verk­taka við bygg­ingu Barna­skóla Kárs­ness. Svona hljóðaði yfirskrift fréttatilkynningar frá K...
Forsetinn segir af sér
📅 05.11.2026 👁️ 1
Forsetinn segir af sér
Forseti Paragvæ, Santiago Pena, hefur tilkynnt að hann segi af sér. Þetta gerir hann eftir að seðlabanki landsins tók stærsta banka landsins yfir. Um ...
Sprengjuhótun í tölvupósti til Hörpu
📅 05.11.2026 👁️ 1
Sprengjuhótun í tölvupósti til Hörpu
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa fékk sprengjuhótun í tölvupósti í dag. Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, staðfesti það í samtali við frétt...
British man with Ebola in DR Congo arrives in UK for treatment
📅 05.11.2026 👁️ 1
British man with Ebola in DR Congo arrives in UK for treatment
The UK government says there are "well-established procedures for dealing with cases like this" and the risk to the public remains low.
Henry Nowak's killer has sentence increased to 25 years
📅 05.11.2026 👁️ 1
Henry Nowak's killer has sentence increased to 25 years
Judges ruled Vickrum Digwa's original term was unduly lenient and refused his bid to have it cut.
Má búast við að matvælaverð hækki á næstunni
📅 05.11.2026 👁️ 1
Má búast við að matvælaverð hækki á næstunni
Veðurfyrirbærið El Niño gæti valdið verulegum truflunum á landbúnaðarframleiðslu á næstu mánuðum. Þetta gæti orðið til þess að matvælaverð hækki til m...
Þorgerður Katrín styður Daða Má
📅 05.11.2026 👁️ 1
Þorgerður Katrín styður Daða Má
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar lýsti á Alþingi í dag yfir fullum stuðningi við Daða Má Kristófersson fjármála...
Táragasi beitt í Lyon - hundruð þúsunda mótmæla í Frakklandi
📅 05.11.2026 👁️ 1
Táragasi beitt í Lyon - hundruð þúsunda mótmæla í Frakklandi
Fjöldamótmæli voru boðuð í yfir 70 borgum í Frakklandi í dag. Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu í nokkrum borgum.Verkalýðsfélagið CGT, sem er...
Russell Brand found guilty of rape and sexual assault
📅 05.11.2026 👁️ 1
Russell Brand found guilty of rape and sexual assault
Brand is told to expect a prison sentence "of some length" and faces more rape allegations, it can now be reported.
Inga máluð eins og dýr­lingur á kaffi­stofu kennara - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Inga máluð eins og dýr­lingur á kaffi­stofu kennara - Vísir
Það kann að minna á einræðisríki að ráðherra sé sýndur í guðatölu. Og helgimyndadýrkun er heldur ekki leyfð undir lúterskri trú þjóðkirkjunnar. Engu a...
Fasteignafélagið Heimar hagnast umfram verðlag
📅 05.11.2026 👁️ 1
Fasteignafélagið Heimar hagnast umfram verðlag
Fasteignafélagið Heimar hagnast umfram verðlag Stefnt er að arðr­greiðslum til eig­enda fast­eigna­fé­lags­ins sem leigir meðal ann­ars hús­næði til h...
Dave fyrrum bassaleikari Wham kemur fram á Íslandi: „George bjó yfir ótrúlegum tónlistarhæfileikum“
📅 05.11.2026 👁️ 1
Dave fyrrum bassaleikari Wham kemur fram á Íslandi: „George bjó yfir ótrúlegum tónlistarhæfileikum“
Dave West fyrrum bassaleikari Wham! kemur fram á tónleikunum Celebrating George Michael sem fara fram í Hofi 20. nóvember og Hörpu kvöldið eftir 21. n...
Tuttugu og sex á fjár­hags­að­stoð nær allan ára­tuginn - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Tuttugu og sex á fjár­hags­að­stoð nær allan ára­tuginn - Vísir
Þetta kemur fram í greiningu velferðarsviðs á fjárhagsaðstoð á árunum 2016 til 2025 sem kynnt var í velferðarráði í gær. Hún var unnin að beiðni endur...
Jódís og Sverrir takast á um líflátshótanirnar: „Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa“
📅 05.11.2026 👁️ 1
Jódís og Sverrir takast á um líflátshótanirnar: „Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa“
Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingkona Vinstri grænna, svarar Sverri Helgasyni fullum hálsi í nýrri Facebook-færslu. „Ég nenni ekki að hlusta á þenna...
Þau þrjú verja Ís­land gegn ESA - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Þau þrjú verja Ís­land gegn ESA - Vísir
Þrír lögmenn hafa verið fengnir til að annast undirbúning málsvarnar Íslands vegna málshöfðunar Eftirlitsstofnunar EFTA gegn íslenska ríkinu vegn óful...
Stakk einn við Réttar­holts­skóla og barði annan í Mjóddinni - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Stakk einn við Réttar­holts­skóla og barði annan í Mjóddinni - Vísir
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur yfir unga manninum segir að hann hafi verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás aðfaranótt þriðjudags í septe...
Barst sprengjuhótun frá kunnug­legu net­fangi - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Barst sprengjuhótun frá kunnug­legu net­fangi - Vísir
Ómar Mehmet Annisius, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, segir að Isavia hafi borist hótun í dag.  Hótunin hafi verið metin ótrúverðug af lögreg...
Shares in Musk's SpaceX plunge as tech and AI stocks fall
📅 05.11.2026 👁️ 0
Shares in Musk's SpaceX plunge as tech and AI stocks fall
The market has been reacting to possible tougher scrutiny of data centre construction and the AI industry following the US mid-terms
Telja hótun sem beindist að Keflavíkurflugvelli ekki tengjast hótunum erlendis
📅 05.11.2026 👁️ 1
Telja hótun sem beindist að Keflavíkurflugvelli ekki tengjast hótunum erlendis
Ómar Mehmet Annisius aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum segir ekki talið að sprengjuhótun sem beindist gegn Keflavíkurflugvelli í dag tengist hót...
ESB hyggst kenna börnum á gervigreind
📅 05.11.2026 👁️ 1
ESB hyggst kenna börnum á gervigreind
ESB hyggst kenna börnum á gervigreind Fram­kvæmda­stjórn ESB stefnir að því að inn­leiða vottun í gervi­greind­ar­læsi fyrir 15 ára nem­endur skóla­ár...
Hyggjast flýta frumkvæðisrannsókn á samskiptum fjármálaráðherra og Landsvirkjunar
📅 05.11.2026 👁️ 1
Hyggjast flýta frumkvæðisrannsókn á samskiptum fjármálaráðherra og Landsvirkjunar
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd samþykkti í morgun að hefja frumkvæðisrannsókn á samskiptum fjármálaráðherra og Landsvirkjunar. Daði Már Kristóferss...
Leikstjóri einnar umdeildustu kvikmyndar sögunnar látinn
📅 05.11.2026 👁️ 1
Leikstjóri einnar umdeildustu kvikmyndar sögunnar látinn
Hinn umdeildi ítalski leikstjóri Tinto Brass lést í gær, 4. nóvember, 93 ára að aldri. Brass var í upphafi þekktur fyrir listrænar kvikmyndir en í sei...
Metropolitan Police release Russell Brand interview footage
📅 05.11.2026 👁️ 1
Metropolitan Police release Russell Brand interview footage
Brand was found guilty of one count of rape and three sexual assaults at Southwark Crown Court.
Russell Brand sakfelldur fyrir nauðgun - „Óhjákvæmilega langur fangelsisdómur“
📅 05.11.2026 👁️ 2
Russell Brand sakfelldur fyrir nauðgun - „Óhjákvæmilega langur fangelsisdómur“
Russell Brand, breski uppistandarinn og aktívistinn, hefur verið dæmdur fyrir nauðgun og kynferðisbrot. Lengd dómsins verður uppkveðin á mánudag.Bresk...
„Karma kamelljón“ gleður Ísraela
📅 05.11.2026 👁️ 1
„Karma kamelljón“ gleður Ísraela
„Karma kamelljón“ gleður Ísraela Boy George hélt tón­leika fyrir fullu húsi í Tel Avív þrátt fyrir kröfur um menn­ing­ar­snið­göngu á Ísrael. Þegar Bo...
63 pró­sent á fram­færslu­að­stoð með er­lent ríkis­fang - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 2
63 pró­sent á fram­færslu­að­stoð með er­lent ríkis­fang - Vísir
Þetta kemur fram í greiningu velferðarsviðs sem kynnt var í velferðarráði í gær. Úkraínskir ríkisborgarar voru fjölmennastir meðal erlendra ríkisborga...
Sprengjuhótun sem beindist að Keflavíkurflugvelli barst í tölvupósti
📅 05.11.2026 👁️ 1
Sprengjuhótun sem beindist að Keflavíkurflugvelli barst í tölvupósti
Sprengjuhótun barst Keflavíkurflugvelli í tölvupósti í dag. Lögregla mat hana ótrúverðuga. Hótun með sama hætti barst í síðasta mánuði að sögn upplýsi...
Five arrested for forcing women into prostitution in Tenerife
📅 05.11.2026 👁️ 2
Five arrested for forcing women into prostitution in Tenerife
Five people have been arrested in Tenerife after police uncovered an alleged network forcing women into prostitution to repay imposed debts of up to €...
Söguleg úrslit en varla kúvending strax
📅 05.11.2026 👁️ 1
Söguleg úrslit en varla kúvending strax
Demókratar náðu meirihluta bæði í öldungadeild og fulltrúadeild bandaríska þingsins í kosningum 3. nóvember. Það er algengt að flokkur sitjandi forset...
Russell Brand sakfelldur fyrir nauðgun
📅 05.11.2026 👁️ 1
Russell Brand sakfelldur fyrir nauðgun
Breski grínistinn Russell Brand var sakfelldur fyrir nauðgun og kynferðisofbeldi fyrir dómi í dag. Réttarhöld yfir honum hafa staðið síðan 12. október...
Hafi neytt konu til munnmaka í bíl - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Hafi neytt konu til munnmaka í bíl - Vísir
Í ákæru á hendur manninum, sem þingfest var fyrir luktum dyrum í Héraðsdómi Reykjaness í morgun, segir að maðurinn hafi að kvöldi fimmtudags í júlí ár...
More women likely to come forward, says detective who led Russell Brand investigation
📅 05.11.2026 👁️ 3
More women likely to come forward, says detective who led Russell Brand investigation
Det Supt Andy Furphy said he hoped other potential victims would gain "courage" and "confidence" from the guilty verdicts.