„Ég náttúrlega fagna þessu,“ segir Finnbjörn Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, um áform stjórnvalda um að byggja á annað þúsund íbúða í Reykjavík á næstu árum.
„Það liggur ljóst fyrir að við þurfum að fara að byggja meira af íbúðum sem henta fólki á vinnumarkaðinum,“ segir Finnbjörn.
Hann bendir á að nokkur ládeyða sé í byggingariðnaðinum. Sé byggt á réttum forsendum, sem fyrst og án lóðabrasks ættu aðgerðirnar því að vera jákvæðar.
Hluti íbúðanna er hugsaður fyrir hlutdeildarlán, stúdentaíbúðir og búseturétt meðal annars. Finnbjörn fagnar þessu sömuleiðis.
„Við höfum verið að kvarta undan því að við séum ekki að fá nógu mikið af íbúðum sem henta fólki undir meðaltekjum. Þessar íbúðir ættu að henta fyrir þann tekjuflokk.“
ASÍ og BSRB stóðu fyrir fundi fyrr í dag um húsnæðismál, meðal annars um ábyrgð sveitarfélaganna í húsnæðisuppbyggingu.
Þar kom fram að aðeins um 20 prósent af sveitarfélögum í landinu hafi sett lóðir undir almenna íbúðakerfið. „Þau bera við alls konar ástæðum fyrir því og mikið af því er samskiptaleysi milli ríkis og sveitarfélaga,“ segir Finnbjörn.
ASÍ og BSRB reka óhagnaðardrifna leigufélagið Bjarg. Finnbjörn segir að tæplega fjögur þúsund manns séu á biðlista eftir íbúðum þar. „Þannig að ef við fáum hlutdeild í þessu, segjum 300 íbúðir, þá er það mjög gott innlegg inn í þann hóp.“
Á fundinn fyrr í dag komu leigjendur frá Bjargi og lýstu reynslu sinni. „Það sem við heyrðum af þessu fólki var að það að komast í öruggt húsnæði og geta gert þetta að sínu heimili skipti sköpum fyrir fólk. Bæði þá sem eru að leigja og svo börn þeirra og fjölskyldur. Við þurfum að gera þetta fyrir fleiri.“