Flugmaður Icelandair, sem flaug með flugstjóranum sem flaug lágflug yfir Vestmannaeyjum, flýgur ekki á meðan verið er að rannsaka atvikið. Þetta herma heimildir fréttastofu. Flugstjórinn var að fljúga sitt hinsta flug er atvikið átti sér stað og hefur látið af störfum.
Arnar Már Magnússon, flugrekstrarstjóri hjá Icelandair, segir rannsókn á málum sem þessum taka á bilinu 4-6 vikur. Gögn úr flugrita vélarinnar liggja fyrir en Arnar Már vildi ekki tjá sig um hve lágt flugvélin flaug yfir bænum, fyrr en rannsókn málsins lýkur. Guðni Sigurðsson upplýsingafulltrúi Icelandair segir flugfélagið ekki tjá sig um málið fyrr en rannsókn lýkur.
Málið er á borði lögreglu og Samgöngustofu. Þórhildur Elín Elínardóttir, almannatengill hjá Samgöngustofu, segir stofnunina enn afla gagna um atvikið og því liggi niðurstöður rannsóknar ekki fyrir.
Hún sagði Samgöngustofu ekki tjá sig um mál sem varði einstaklinga. Stofnunin hefði ekki heimildir til að skikka starfsmenn fyrirtækja í leyfi en hefði heimildir til þess að svipta flugmenn leyfi ef í ljós kemur að viðkomandi hafi brotið reglur í starfi.