Svo virðist sem Balendra Shah, forsætisráðherra Nepals, hafi haft betur í baráttu við þingið um hvort hann mætti vera með sólgleraugu þegar hann kemur fyrir þing landsins á morgun.
Sólgleraugun eru eitt helstu einkenna Balendra Shah sem varð forsætisráðherra Nepals fyrr á þessu ári. Shah hefur skartað þeim jafnt innandyra sem utan.
Dol Prasad Aryal, forseti þingsins, setti sig upp á móti því fyrr í þessum mánuði að Shah mætti í þingsal með sólgleraugun. Þingforsetinn taldi það ekki sæma virðingu þingsins.
Í dag greindi embættismaður þingsins frá því að forsætisnefndin hefði fengið læknisvottorð þess efnis að forsætisráðherrann yrði að nota sólgleraugu heilsu sinnar vegna. Því hefði verið ákveðið að Shah mætti vera með sólgleraugu í þingsal ef það væri læknisfræðilega nauðsynlegt í skærri birtu.
Sólgleraugun og svartur alklæðnaður hafa orðið nokkurs konar einkenni forsætisráðherrans sem hefur mætt þannig klæddur á hina ýmsu viðburði, formlega jafnt sem óformlega. Vinsældir hans eru slíkar að búðir hafa tekið upp á því að selja Balen-sólgleraugu, kennd við fornafn hans.
Balendra Shah var rappari og verkfræðingur áður en hann hóf afskipti af stjórnmálum fyrir fjórum árum. Hann var mjög áberandi í mótmælum gegn þáverandi stjórnvöldum á síðasta ári.