Faðir rannsakaður vegna andláts 20 daga gamals barns

Lögregluyfirvöld á Kanaríeyjunni Lanzarote rannsaka nú andlát tuttugu daga gamals nýbura eftir að foreldrar barnsins leituðu hjálpar þegar það hætti að anda.
Atvikið átti sér stað 12. apríl þegar foreldrar barnsins fóru með það á heilsugæslu í bænum Tinajo eftir að hafa áttað sig á því að barnið var ekki að anda. Heilsugæslustöðin var þá lokuð og var því óskað eftir aðstoð frá bæjarlögreglu.
Lögreglumenn hófu endurlífgunartilraunir á barninu þar til sjúkrabifreið kom á vettvang. Við flutning barnsins á sjúkrahús í Arrecife héldu sjúkraflutningamenn áfram endurlífgun.
Vegna alvarlegs ástands barnsins var það síðar flutt með þyrlu á sjúkrahús á Gran Canaria, þar sem sérhæft læknateymi tók við meðferð þess. Þrátt fyrir umfangsmiklar tilraunir til að bjarga lífi barnsins lést það skömmu síðar.
Spænskir fjölmiðlar greindu frá því upphaflega að barnið hafi lifað af.
Lögreglan hefur staðfest að rannsókn sé hafin á málinu og að karlmaður sé til rannsóknar í tengslum við andlát barnsins. Ekki hefur verið greint frá því hvort ákærur verði lagðar fram og hafa yfirvöld ekki birt frekari upplýsingar á meðan rannsókn stendur yfir.