Fá hjálp foreldra til að kaupa íbúð
Greiðslubyrði og fasteignaverð eru sögulega há og langflestir kaupa fyrstu íbúð með aðstoð foreldra sinna eða annarra ættingja, samkvæmt könnun meðal fasteignasala.
Fasteignasalar svara því til í 80% tilfella að fyrstu kaupendur fasteigna fái aðstoð foreldra sinna eða annarra ættingja, samkvæmt vísbendingum úr rannsókn Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS).
Tölurnar eru fengnar úr spurningakönnunum meðal fasteignasala sem HMS hefur sent út frá því í júní í fyrra og birtir í nýrri mánaðarskýrslu sinni í dag. Ein spurninganna er hvaða fjármögnunarleið fyrstu kaupendur hafi farið í viðskiptum sem fasteignasalarnir hafa séð um. Á meðan 23% hafa tekið hlutdeildarlán, sem er nýlegt úrræði stjórnvalda, hafa 79% fengið „aðstoð frá foreldrum og ættingjum“. Svipað hlutfall, eða 80%, nota eigið fé. Þá segja 73% fasteignasala að lánastofnun hafi komið til með fjármögnun við fyrstu kaup í viðskiptum sem þeir hafa séð um.
Aðferðafræði HMS er háð þeim annmörkum að um viðhorfskönnun er að ræða í gegnum Félag fasteignasala, sem telur 330 félagsmenn, og svarhlutfallið var 21%. Því er ekki um beinar upplýsingar um fjármögnun að ræða. …