ESB lamar netviðskipti með umbúðareglum

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Evrópskir fjölmiðlar segja frá nýrri tilskipun ESB sem lamar netverslun lítilla- og meðalstórra fyrirtækja yfir landamæri ESB-ríkja. Tilskipunin er 124 blaðsíður og tók gildi 12. ágúst. Samkvæmt tilskipuninni bera netverslanir ábyrgð á umbúðum vörunnar eftir að varan er komin til kaupanda. Netverslunum gert að koma sér upp fulltrúa í viðtökulandi vörunnar og skal sá svara fyrir hvort umbúðir rati í endurvinnslu.
Die Welt segir að nú þegar hafi mörg hundruð lítil og meðalstór fyrirtæki í löndum ESB hætt að senda vörur sínar yfir landamæri ESB-ríkjanna 27. Þýska útgáfan útskýrir í annarri frétt tilurð tilskipunarinnar. Framkvæmdastjórn ESB lagði tilskipunina fram árið 2022, Evrópuþingið samþykkti hana og síðar ráðherraráðið. Yfirlýst markmið er að umbúðatilskipunin dragi úr loftslagsvá og sóun.
Megintilgangur stofnunar Efnahagsbandalags Evrópu, sem síðar varð ESB, var að auðvelda viðskipti milli Evrópulanda. Umbúðatilskipunin gengur í þveröfuga átt. EU-Observer segir að tilskipunin muni ganga af litlum bókaútgáfum dauðum, en þær treysta á netverslun fremur en bókabúðir. Risar í netverslun eins og Amazon þurfa ekki að hafa áhyggjur.
Samband þýskra netverslana segir tilskipunina lama viðskipti milli ESB-landa. Ekkert tillit sé tekið til smæðar margra netverslana. Krafa ESB er að sendi netverslun eina sendingu yfir landamæri ESB-ríkja verði netverslunin að koma sér upp fulltrúa í viðtökulandinu er standi skil á umbúðum vörunnar og tryggi að þær fari í endurvinnslu.
Die Welt spyr í fyrirsögn hver beri ábyrgð á ,,skrímslavæðingu skrifræðisins". Fátt er um svör í Brussel.