„Þessi litli prins mætti í heiminn þann 27.6,“ segir við mynd af drengnum sem birtist í sameiginlegri færslu Ernu og Þorleifs á Facebook um eittleytið í dag.
„Hann hefur í aðdraganda heimkomunnar flakkað um heiminn, verið í Kína, Prag, Bayreuth og nú síðast í Zurich undanfarna tvo mánuði þar sem hann gæddi sér á hljóðheimi Tannhäuser eftir Wagner - en hetjan hún móðir hans hannaði þar leikmynd allt fram á settan dag,“ skrifar Þorleifur í færslunni.
Erna Mist og Þorleifur Örn hafa verið saman síðan í upphafi árs 2024. Þau keyptu sér síðan saman hæð í Vesturbænum og eignuðust dótturina Þórhildi Nótt í byrjun árs 2025. Parið hefur jafnframt unnið mikið saman, þar á meðal að leiksýningunni Ketti á heitu blikkþaki sem Þorleifur leikstýrði og Erna gerði leikmynd og búninga.
Sjá einnig: Erna Mist og Þorleifur keyptu útsýnishæð í Vesturbænum
Síðan þá hefur parið verið mikið erlendis, Erna hélt myndlistarsýningu í Peking og Þorleifur leikstýrði Tristan og Ísold eftir Wagner í Bæjaralandi og Makbeð í Vínarborg. Nýjasta verkefni þeirra er óperan Tannhäuser eftir Wagner sem var frumsýnd 21. júní síðastliðinn í Zürich í Sviss. Þorleifur leikstýrði óperunni en Erna hannaði leikmyndina.
Settur dagur drengsins var einmitt frumsýningardagur óperunnar en hann lét bíða aðeins eftir sér og kom í heiminn sex dögum eftir frumsýningu.