Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ - Vísir

Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ - Vísir

Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ - Vísir

Að hitta fyrir ungan pilt frá Filippseyjum, sem er brosmildur, bjartsýnn, jákvæður, finnst Ísland æðislegt, segir sjálfstraust skipta lykilmáli, talar líka fyrir þakklæti, bendir á forréttindi fólks á Íslandi miðað við víða annars staðar og jafnvel það hvað við getum lært af öðrum þjóðum er….

… tja; eiginlega hressilega skemmtileg saga.

Enda magnað að tala við Xian. Sem starfar sem dansari hjá Dansskóla World Class, er að byrja í fjölbrautarskóla í haust, hefur hlotið verðlaun Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur fyrir góða íslensku og þrátt fyrir að vera aðeins 16 ára, hefur hann ferðast til um fimmtíu landa!

Í dag kynnumst við Xian Carl.

Xian hefur á sínum 16 árum ferðast meira en margir ná á heilli ævi. Því hann hefur nú þegar ferðast til 50 landa; allt vegna útsjónarsemi foreldra hans sem eru dugleg að spara og skipuleggja ferðir fjölskyldunnar, allt að tvö ár fram í tímann.

Ferðast um allan heim

Xian er fæddur árið 2010 á Filippseyjum. Nafnið hans er borið fram Sí-an má segja og þar sem Xian var aðeins þriggja ára þegar hann flutti til Íslands talar hann auðvitað jafn góða íslensku og við flest hin.

„Ég var þriggja mánaða þegar mamma flutti til Íslands,“ segir Xian og bætir við:

„Síðan kom hún til baka og sótti mig og pabba.“

Móðir Xian heitir Mae Ann Doressa Gabiana, faðir hans er Jose Angelo Gabiana og árið 2015 fæddist litla systir hans, Zuri Alexandra Bibit Gabiana.

Zuri fæddist með veikt hjarta þótt það sé í lagi í dag. En veikindin voru mikið áfall fyrir mömmu og pabba. 

Tilhugsunin um að hún gæti átt stutta ævi leiddi til þess að foreldrar mínir urðu ákveðnir í að við myndum ferðast sem víðast og upplifa sem mest.“

Sem skýrir út ótrúlega mögnuð ferðalögin sem fjölskyldan hefur farið í og við heyrum meira um á eftir.

Móðir Xian er hjúkrunarfræðingur en faðir hans starfar á hjúkrunarheimilinu Eir. Xian segir þau ótrúlega dugleg að vinna og allt sitt uppeldi hafi hann heyrt að mikilvægt sé að spara og leggja fyrir því sem fólk vill gera eða kaupa.

„Við erum búin að ferðast um allan heim og upplifa ótrúlega hluti,“ segir Xian og nefnir sem dæmi hversu magnað það hefði verið að ríða um á úlfalda í eyðimörkinni í Marokkó og keyra síðan þar um á fjórhjóli líka.

„Við erum nánast búin með alla Evrópu en síðan er gaman að segja frá því að við erum líka nánast búin að heimsækja alla Disney og Universal staðina í heiminum,“ segir Xian og brosir.

Í Kaliforníu, Singapore, París, Japan…

„Við eigum eftir Disneygarðana í Kína, ætlum þangað næst en höfum farið í alla hina og fólk hváir oft hissa þegar ég segi því frá því.“

En hvernig ætli fjölskyldan fari að þessu?

Xian hefur dansað í Skaupinu, kynningarmyndböndum og tónlistarmyndböndum en hann segir fáa stráka fara í dans. Vonandi séu jafnvel einhverjir strákar sem lesi þetta viðtal og hugsi þá með sér: Ég ætla að prófa líka!

Að þora að segja Já

Xian er einstaklega jákvæður. Notar oft orðið þakklæti og talar líka um að stundum sé eins og fólk fatti ekki hversu gott það hefur það á Íslandi.

„Við vorum í Los Angeles fyrir stuttu. Þar sá maður mikið af heimilislausu fólki á götunum. Að sjá svona mikið af heimilislausu fólki á Íslandi er eitthvað sem við þekkjum ekki.“

Útskýringin á því hvers vegna fjölskyldan flutti til Íslands snýst einmitt um lífsgæði.

„Mamma vildi bjartari framtíð fyrir mig miðað við þau tækifæri sem bjóðast á Filippseyjum,“ útskýrir Xian en hann segir samkeppni oft mikla þar, ekki allir nái að mennta sig en fólk leggi mikið á sig til þess að geta gert það og reyna þannig að auðga líf sitt.

Xian er rosalega flott fyrirmynd en hann segist lengi hafa verið svo feiminn að hann varla þorði að tala. Það snerist við í 5. eða 6.bekk; þá kom sjálfstraustið og frekar að vandamálið væri að fá hann til að tala minna!Vísir/Anton Brink

Fyrstu minningarnar á Íslandi eru af leikskólanum.

„Ég var á leikskólanum úti á Granda þar sem amma var búin að vinna í tuttugu ár. Þar eignaðist ég góða vini en framan af ævinni var ég mjög feiminn og sagði nánast aldrei orð,“ segir Xian en skellir síðan upp úr og bætir við:

Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk. 

Þá allt í einu fann ég sjálfstraustið, fór að tala og staðan snerist við: 

Nú var farið að skamma mig fyrir að tala of mikið!“

Xian segist telja að feimnin hafi að mestu leyti snúist um það í æsku að hann einhvern veginn fann að hann væri öðruvísi en aðrir krakkar.

„En það var ekki bara vegna þess að ég lít öðruvísi út. Heldur líka vegna þess að ég hef aldrei verið þessi dæmigerða steríótýpa. Um tíma átti ég bara stelpuvinkonur. Á öðrum tíma bara strákavini. Ég spilaði aldrei fótbolta en fór síðan í dansinn, sem strákar gera síður.“

Að þora að segja Já við tækifærum var eitthvað sem Xian lærði snemma.

„Monika vinkona mín plataði mig í prufutíma hjá Dansstúdíói World Class. Ég var nú varla að þora að fara út á dansgólfið þar. Var eini strákurinn og fannst stelpurnar vera góðar sem þarna voru. Hugsaði með mér: Ég kann ekkert að dansa.“

Xian segir að hvatningin sem hann fékk frá danskennaranum sínum hafi virkað eins og hálfgerð sjálfstraustssprauta.

„Hún sá eitthvað í mér og gaf mér tækifæri til að skína. Síðan tók ég þátt í kynningarmyndbandi fyrir bílasýningu, ég hef dansað í Skaupinu og um daginn var ég að dansa í tónlistarmyndbandi fyrir Eyþór Wöhler.“

Xian segir hvatninguna frá danskennaranum sínum hafa virkað eins og sjálfstraustsprauta. Enda hefur hann nú komið fram víða og sér jafnvel fyrir sér að dansa eitthvað erlendis í framtíðinni. Miklu skipti að þora að segja Já við tækifærum.

Blandaðar hefðir

En hvernig ætli það sé að alast upp á íslensku heimili þar sem menningarheimur foreldranna og bakgrunnur er allt öðruvísi?

„Við reynum að prófa allar íslenskar hefðir og venjur. Til dæmis að vera með íslensku jólasveinana þrettán,“ segir Xian einlægur.

Xian er kaþólskur eins og flestir á Filippseyjum og fermdist því fyrr en krakkar gera almennt í þjóðkirkjunni.

„Ég myndi segja að venjurnar heima hjá okkur væru svolítið allt í bland. Sumt frá Filippseyjum en sumt frá Íslandi. Við borðum til dæmis hamborgarahrygg á aðfangadag, íslenskara getur það nú vart orðið!“

Heldur þú að Íslendingar gætu lært meira af fólki sem flytur hingað frá öðrum menningarheimum?

„Já, eflaust,“ svarar Xian einlægur en bætir við.

„Ég veit alveg að hér er líka fólk sem er ekki að aðlagast íslensku samfélagi nógu mikið. Talar til dæmis bara ensku og reynir ekki að læra tungumálið og fleira.“

Á hans heimili eru áherslurnar allt aðrar.

„Ég var fljótur að læra íslensku sem barn því ég vissi, þótt lítill væri, að ég vildi læra íslenskuna. Og ef ég horfi á íslenskt samfélag og síðan það sem ég læri og sé hjá foreldrum mínum, myndi ég til dæmis tala um hversu mikil seigla er í mömmu og pabba. 

Þau ekki aðeins vinna mikið, heldur leggja þau fyrir, eru skipulögð og hafa tryggt það að við systkinin erum búin að ferðast um allan heim.“

Heima hjá Xian er skemmtileg blanda af íslenskum og filippsískum hefðum en þegar litla systir hans fæddist með veikt hjarta, ákváðu foreldrarnir að leggja alla áherslu á að saman myndi fjölskyldan ná að ferðast sem víðast og upplifa sem mest.

Sérðu fyrir þér að búa á Íslandi í framtíðinni?

„Nei, ég sé fyrir mér að búa erlendis og þreifa fyrir mér með einhver tækifæri þar, en síðan kannski að búa aftur hér síðar,“ segir Xian.

Næstu misserin munu þó fyrst og fremst ganga út á að fara í skóla og klára stúdentinn. Það hvað tekur við eftir það kemur í ljós.

„Ég er líka rosalega þakklátur fyrir tækifærin til að skína í dansinum. Kannski mun ég starfa við eitthvað danstengt.“

Xian lýsir daglegu lífi hjá sér þó bara svipuðu og gengur og gerist; skóli, vinna, dansinn og allt hitt.

„Ég er auðvitað bara eins og hver annar. Fer oft í Kringluna og eyði peningunum mínum í óþarfa, þrátt fyrir að vera alinn upp við útsjónarsemi og sparnað hér heima og svo framvegis,“ segir Xian og brosir.

Xian segir marga ekki átta sig á því hversu gott líf býðst á Íslandi miða við víða annars staðar. Sjálfur sér hann þó fyrir sér að búa jafnvel erlendis í framtíðinni, en snúa síðan aftur til Íslands. Vísir/Anton Brink

Áhugamálin eru ýmis til viðbótar við dansinn.

„Ég hef mikinn áhuga á tísku og sjálfstjáningu – hvernig maður getur staðið út úr hópnum en samt fundið sinn stað innan hans.“

Að hafa trú á sinni eigin getu segir Xian vera lykilatriði. Sjálfstraust skipti öllu máli.

Og líka þakklæti.

„Ég er rosalega þakklátur mömmu og pabba fyrir allt sem þau hafa gert fyrir mig. Og að hafa alist upp á Íslandi, hér erum við svo sannarlega að alast upp við góðar aðstæður miðað við til dæmis jafnaldra okkar á svæðum eins og Gaza,“ segir Xian.

En hvað með rasisma eða fordóma, til dæmis gagnvart útlitinu?

„Auðvitað hef ég heyrt ýmislegt í gegnum tíðina. En aldrei neitt alvarlegt og ég hef aldrei tekið það til mín. Veit þó að sumir hafa heyrt ljóta hluti um sig sagt.“

Hvernig hefur þér tekist að taka þetta ekki nærri þér?

„Ég veit það ekki,“ svarar Xian einlægur.

Ég hef bara aldrei tekið því eitthvað persónulega til mín ef einhver sem ég þekki ekki er að segja ljóta hluti um mig tengda svona málum. 

Enda segir það miklu meira um þann sem talar en mig.“

#allt #breyttist #engin #stereótýpa #það


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262920980d/engin-stereotypa-thad-breyttist-allt-thegar-eg-var-i-fimmta-eda-sjotta-bekk-

📰 Aðrar fréttir

Reglur um dvalar­leyfi þrengdar og filipps­eyskar au-pair úr sögunni - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Reglur um dvalar­leyfi þrengdar og filipps­eyskar au-pair úr sögunni - Vísir
Þetta er meðal þess sem kemur fram í drögum að frumvarpi til breytinga á útlendingalögum. Þar eru lagðar fram breytingar sem ætlað er að veita þolendu...
Ódýrt vímuefni ryður sér til rúms – „Ein lítil mistök geta endað í dái eða dauða“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ódýrt vímuefni ryður sér til rúms – „Ein lítil mistök geta endað í dái eða dauða“
Sérfræðingar í Bretlandi hafa áhyggjur af ört vaxandi notkun smjörsýru, eða GHB, meðal ungs fólks. Efnið, sem áður var einkum tengt ákveðnum hópum í n...
Skora á stjórnvöld að falla frá áformum um hækkun virðisaukaskatts á baðlón
📅 01.10.2026 👁️ 1
Skora á stjórnvöld að falla frá áformum um hækkun virðisaukaskatts á baðlón
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps í uppsveitum Árnessýslu mótmælir fyrirhuguðum hækkunum stjórnvalda á virðisaukaskatti á aðgang að baðlónum harðlega. Hú...
Leggur til að þing­menn verði 85 í stað 63 - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Leggur til að þing­menn verði 85 í stað 63 - Vísir
Starfshópur á vegum dómsmálaráðuneytisins lagði nýlega til breytingar á kjördæmaskipan landsins en að fjöldi þingmanna yrði sá sami. Samkvæmt tillögum...
Réttarhöld framundan yfir manni sem ákærður er fyrir að nauðga konu og hrinda henni fram af stigapalli
📅 01.10.2026 👁️ 1
Réttarhöld framundan yfir manni sem ákærður er fyrir að nauðga konu og hrinda henni fram af stigapalli
Maður er ákærður fyrir nauðgun, frelsissviptingu og sérstaklega hættulega líkamsárás gagnvart konu. Atvik málsins urðu frá laugardegi til sunnudags ei...
What's gone wrong at Nike? How the world's sportswear giant lost its mojo
📅 01.10.2026 👁️ 1
What's gone wrong at Nike? How the world's sportswear giant lost its mojo
Several self-inflicted mistakes have cost the biggest sportswear brand on the planet in recent years.
Skref í rétta átt en óvíst hvort kjarasamningar haldi
📅 01.10.2026 👁️ 1
Skref í rétta átt en óvíst hvort kjarasamningar haldi
Formenn Samtaka atvinnulífsins og ASÍ eru sammála um að skilaboð forsætisráðherra séu skref í rétta átt og hjálpi til við samningaborðið. Forsætisráðh...
Boðar breytingu á veitingu dvalarleyfa
📅 01.10.2026 👁️ 1
Boðar breytingu á veitingu dvalarleyfa
Til stendur að hætta útgáfu dvalarleyfa til fólks utan EES sem kemur til Íslands í vistráðningu, það er sem au-pair. Markmiðið er að koma í veg fyrir ...
Celebrity Traitors: Chaos, coffins and ‘Claudiapatra’ steal the show
📅 01.10.2026 👁️ 1
Celebrity Traitors: Chaos, coffins and ‘Claudiapatra’ steal the show
There is paranoia, confusion and a battle to survive among the celebrities as they fight for survival.
„Strákar eigi bara ekki að gráta og tala um tilfinningar sínar“
📅 01.10.2026 👁️ 1
„Strákar eigi bara ekki að gráta og tala um tilfinningar sínar“
Andleg heilsa er eitt af stærstu umræðuefnum unglingsáranna og mikilvægt að tala um erfiðu hlutina. Þetta segja ungmenni sem tóku þátt í setningu Forv...
Svara loks sögusögnum um umboðsmanninn Magnús: „Við höfum bara alltaf haft gaman af þessari vitleysu“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Svara loks sögusögnum um umboðsmanninn Magnús: „Við höfum bara alltaf haft gaman af þessari vitleysu“
Hljómsveitin Á móti sól fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir og ætlar að halda upp á tímamótin með stórtónleikum í Háskólabíói í október, en í nýjum ...
Hvað veistu um... Mean Girls? - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hvað veistu um... Mean Girls? - Vísir
Myndin fjallar um stúlku, sem leikin er af Lindsay Lohan, sem byrjar í bandarískum menntaskóla eftir að hafa alist upp á erlendri grundu. Í skólanum k...
Hörður hættir vegna ágreinings
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hörður hættir vegna ágreinings
Ástæða þess að Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar er ágreiningur um stjórnarhætti. RÚV greinir frá þessu. H...
Margt eftir og stöðugt verið að uppfæra til að tryggja búsetu
📅 01.10.2026 👁️ 1
Margt eftir og stöðugt verið að uppfæra til að tryggja búsetu
Mikil vinna var lögð í fyrstu niðurstöður endurskoðaðs áhættumats í Grindavík sem birt var í síðustu viku. Skarphéðinn Berg Steinarsson verkefnisstjór...
Skipti engu hvort um­mælin hafi verið sett fram í kald­hæðni - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Skipti engu hvort um­mælin hafi verið sett fram í kald­hæðni - Vísir
Nú hefur hefur dómur Landsréttar í málinu verið birtur en greint var frá því á Vísi í dag að Landsréttur hefði dæmt ummæli fimmtugrar konu í garð Ingó...
Ágreiningur um stjórnarhætti ástæða þess að Hörður hættir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ágreiningur um stjórnarhætti ástæða þess að Hörður hættir
Ástæða þess að Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar er ágreiningur um stjórnarhætti.Hörður greindi frá ákvörð...
Írani grunaður um að skipu­leggja hryðju­verk við Fairford - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Írani grunaður um að skipu­leggja hryðju­verk við Fairford - Vísir
Þetta hefur breska ríkisútvarpið eftir hryðjuverkadeild lögreglunnar á Bretlandi en þar segir að 27 ára karlmaður sem sé bæði með breskt og íranskt rí...
Írani grunaður um að skipu­leggja hryðju­verk - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Írani grunaður um að skipu­leggja hryðju­verk - Vísir
Þetta hefur breska ríkisútvarpið eftir hryðjuverkadeild lögreglunnar á Bretlandi en þar segir að 27 ára karlmaður sem sé bæði með breskt og íranskt rí...
Össur segir Hannes stunda skipulagt einelti að hætti MAGA: „Þetta er hreint rugl“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Össur segir Hannes stunda skipulagt einelti að hætti MAGA: „Þetta er hreint rugl“
Össur Skarphéðinsson, fyrrum ráðherra, segir Hannes Hólmstein Gissurarson, prófessor emeritus, vera forsprakka að einelti gagnvart Þorgerði Katrínu Gu...
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna í heimsókn til Íslands
📅 01.10.2026 👁️ 1
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna í heimsókn til Íslands
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur þegið boð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um heimsókn til Íslands og kemur til ...
Ófremdarástand vegna mótmæla ungmenna í Frakklandi
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ófremdarástand vegna mótmæla ungmenna í Frakklandi
Framhaldsskólanemar í Frakklandi hafa komið saman víða um landið í dag til að mótmæla yfirfullum kennslustofum, skorti á kennurum, slæmu ástandi skóla...
Burnham warned Rosebank oil field could breach West Bank sanctions
📅 01.10.2026 👁️ 1
Burnham warned Rosebank oil field could breach West Bank sanctions
Campaigners and Green Party leader Zack Polanski raise concerns about Rosebank's ties to an Israeli firm.
Samtalið mikilvægt á umbrotatímum
📅 01.10.2026 👁️ 1
Samtalið mikilvægt á umbrotatímum
Það eru nú einhverjir mestu umbrotatímar í seinni tíð og því tímabært að hefja samtal um hvernig samfélagi við viljum búa í. Þetta segir forseti Íslan...
Putin warns West that Russia is ready to use every weapon to protect Kaliningrad
📅 01.10.2026 👁️ 1
Putin warns West that Russia is ready to use every weapon to protect Kaliningrad
Vladimir Putin insists Moscow is "not threatening anyone" and merely responding to statements by Western leaders.
Marco Rubio á leið til Ís­lands - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Marco Rubio á leið til Ís­lands - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu en þar er haft eftir Þorgerði að það sé mikið ánægjuefni að Rubio hafi þegið heimboðið „sem...
Pálína sakfelld fyrir meiðyrði gegn Ingó Veðurguð
📅 01.10.2026 👁️ 1
Pálína sakfelld fyrir meiðyrði gegn Ingó Veðurguð
Landsréttur hefur dæmt ummæli Pálínu Helgu Þórarinsdóttur, sem birtust sem athugasemd á Facebook við deilingu á frétt af Vísir.is, 22. mars 2022, dauð...
„Dapur­legt pólitískt út­spil hjá odd­vita Sam­fylkingar“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
„Dapur­legt pólitískt út­spil hjá odd­vita Sam­fylkingar“ - Vísir
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar greindi frá því í færslu í morgun að útboð Kópavogsbæjar vegna byggingar stúku við Kórinn hefði verið dæm...
Starfsfólk dýraathvarfs í uppnámi – Maður krafðist þess að fá að hafa samfarir við dýrin
📅 01.10.2026 👁️ 1
Starfsfólk dýraathvarfs í uppnámi – Maður krafðist þess að fá að hafa samfarir við dýrin
Truflaður maður mætti í dýraathvarf í Sviss og krafðist þess að fá geit til þess að borða. Þegar hann fékk neitun vildi hann fá næði til þess að eðlas...
Skipa hóp sem fær umboð til að semja um byggingu Tækniskóla í Reykjavík
📅 01.10.2026 👁️ 1
Skipa hóp sem fær umboð til að semja um byggingu Tækniskóla í Reykjavík
Borgarráð hefur samþykkt að skipa viðræðuhóp sem fær umboð til að semja við Tækniskólann um uppbyggingu nýs skóla í Reykjavík.Í fundargerð borgarráðs ...
Ekki búið að finna nýjan lög­reglu­stjóra hátt í hálfu ári síðar - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ekki búið að finna nýjan lög­reglu­stjóra hátt í hálfu ári síðar - Vísir
Lítil hreyfing var á ráðningarferlinu í sumar en nú er búið að skipa hæfnisnefnd sem mun meta hæfi þeirra sex einstaklinga sem sóttu um stöðuna í júní...
Konu gert að greiða Ingó miskabætur vegna ærumeiðandi ummæla
📅 01.10.2026 👁️ 1
Konu gert að greiða Ingó miskabætur vegna ærumeiðandi ummæla
Landsréttur hefur snúið við dómi héraðsdóms og gert konu að greiða Ingólfi Þórarinssyni, betur þekktum sem Ingó Veðurguð, miskabætur vegna ummæla sem ...
UK in talks with EU partners to release strategic fuel reserves if needed, BBC understands
📅 01.10.2026 👁️ 1
UK in talks with EU partners to release strategic fuel reserves if needed, BBC understands
President Donald Trump has threatened to ban diesel exports in a bid to ease prices in the US.
UK in talks with EU partners over fuel reserves after Trump diesel threat
📅 01.10.2026 👁️ 1
UK in talks with EU partners over fuel reserves after Trump diesel threat
President Donald Trump has threatened to ban diesel exports in a bid to ease prices in the US.
Ungt fólk kalli eftir samtali og stuðningi fullorðinna
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ungt fólk kalli eftir samtali og stuðningi fullorðinna
Samtal og samkennd er yfirskrift forvarnardagsins sem er í dag. Í ár er sjónum beint sérstaklega að nemendum í 9. bekk grunnskóla og öllum nemendum í ...
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna væntanlegur til Íslands
📅 01.10.2026 👁️ 1
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna væntanlegur til Íslands
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er væntanlegur til Íslands í næstu viku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneyti Íslands. ...
Al­var­lega slasaður eftir fall af svölum - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Al­var­lega slasaður eftir fall af svölum - Vísir
Rúv greindi fyrst frá en Ari Magnús Benediktsson, framkvæmdastjóri Nestaks, segir við Vísi að starfmaðurinn hafi fallið við vinnu á þriðjudagsmorgni o...
28 sagt upp hjá Klettabæ
📅 01.10.2026 👁️ 1
28 sagt upp hjá Klettabæ
28 starfsmönnum Klettabæjar var sagt upp störfum í vikunni. Jóhanna M. Fleckenstein, framkvæmdastjóri og annar af tveimur eigendum Klettabæjar, segir ...
Örn Bárður Jónsson skrifar: Á hvaða leið er heimurinn?
📅 01.10.2026 👁️ 1
Örn Bárður Jónsson skrifar: Á hvaða leið er heimurinn?
Merkilegt hefur verið að upplifa viðbrögð við grein sem ég ritaði nýlega og birti í DV og tel mjög upplýsandi um áhrif íslam í heiminum. Greinin ber y...
Aftaka klúðrast en hvað gerist svo? – Örlög nokkurra dauðadæmdra fanga sem lifðu af aftöku sína
📅 01.10.2026 👁️ 1
Aftaka klúðrast en hvað gerist svo? – Örlög nokkurra dauðadæmdra fanga sem lifðu af aftöku sína
Margir eru í losti eftir að hafa lesið um misheppnaða aftöku morðingjans Christu Pike í morgun. Eftir tvo skammta af banvænum lyfjum sló hjartað enn þ...
Hótaði að senda menn á eftir stjúpsyni sínum
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hótaði að senda menn á eftir stjúpsyni sínum
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að maður sem ákærður er fyrir brot í nánu sambandi víki út dómsal á meðan brotaþoli ber vi...
Stephanie Hegarty: What happened in the failed execution of Christa Pike?
📅 01.10.2026 👁️ 1
Stephanie Hegarty: What happened in the failed execution of Christa Pike?
The BBC's Stephanie Hegarty looks at why two attempts to execute the US convicted murderer by lethal injection failed.
Dual UK-Iranian national arrested over RAF Fairford incident
📅 01.10.2026 👁️ 1
Dual UK-Iranian national arrested over RAF Fairford incident
The 27-year-old man was arrested in Westminster, London, counter-terror police say.
Á­rekstur við Hamra­borg - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Á­rekstur við Hamra­borg - Vísir
Þetta staðfestir Friðrik Theódórsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Einn sjúkrabíll var sendur á vettvang og tækjabíll en var bei...
Engin að­stoð við próf­töku og litaðar nú­meraplötur - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Engin að­stoð við próf­töku og litaðar nú­meraplötur - Vísir
Reglugerðarbreytingin er sögð liður í heildarendurskoðun á lagaumhverfi fyrir leigubifreiðaþjónustu samkvæmt tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Markmi...
Slasaðist alvarlega í vinnuslysi í Neskaupstað
📅 01.10.2026 👁️ 1
Slasaðist alvarlega í vinnuslysi í Neskaupstað
Starfsmaður verktakafyrirtækisins Nestaks slasaðist alvarlega í vinnuslysi á þriðjudag. Starfsmaðurinn, sem er karl á fertugsaldri, var fluttur á sjúk...
Skriðuviðvörun til morguns
📅 01.10.2026 👁️ 1
Skriðuviðvörun til morguns
„Við fengum nokkrar tilkynningar um aurskriður á Austfjörðum en ekkert alvarlegt sem olli tjóni eða lokaði vegum. En það er mjög mikið vatn á ferðinni...
Fires break out at French schools as students protest nationwide
📅 01.10.2026 👁️ 1
Fires break out at French schools as students protest nationwide
The French government holds a crisis meeting as demonstrations grow and become violent in places.
Norð­menn gerðu símaat í Tré­virki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Norð­menn gerðu símaat í Tré­virki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ - Vísir
Útvarpsmenn í þættinum Sentralbordet på NRK á norksa ríkisútvarpinu hringja reglulega símaöt innanlands og til útlanda og hringdu nýverið símaat í ísl...
Fjölmiðlar uppskera vantraustið sem þeir sá sjálfir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Fjölmiðlar uppskera vantraustið sem þeir sá sjálfir
Rétt eins og á Íslandi eru blaðamenn ekki hlutlausir í Noregi. Sama gerist á Íslandi og það þarf ekki að leita langt til að finna slíka blaðamenn og f...
Upp­ör­vandi fréttir fyrir Demó­krata - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Upp­ör­vandi fréttir fyrir Demó­krata - Vísir
Kosið verður þann 3. nóvember en nú þegar hafa að minnsta kosti 700 þúsund kosið í allavega þrjátíu ríkjum. Gögn segja svipaða sögu og kannanir hafa g...