Enginn var handtekinn þegar lögregla fylgdist með samkomu í félagsheimili Vítisengla í Auðbrekku í Kópavogi frá því fyrir klukkan sex í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var hún með viðbúnað til um klukkan eitt í nótt.
Götum við félagsheimilið var lokað, allir sem komu voru beðnir um skilríki og leitað á þeim. Eggvopn fannst á einum gestanna og ætluð fíkniefni á öðrum. Það var afgreitt með skýrslutöku á staðnum.
Lögreglan hefur áður haft mikinn viðbúnað þegar Hells Angels hafa verið með samkomur. Það gerðist í tvígang í september. Þá sagði fulltrúi lögreglu að full ástæða væri fyrir slíkum viðbúnaði þar sem samtökin stunduðu skipulagða brotastarfsemi.