Eldur kviknaði í bíl í bílakjallara í Bryggjuhverfi í Grafarvogi í nótt. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk útkall skömmu eftir klukkan eitt og var einn dælubíll sendur á vettvang.
Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, segir að tveir dælubílar til viðbótar hafi verið sendi á staðinn í kjölfarið til að ráða niðurlögum eldsins og tryggja að eldurinn dreifði sér ekki í aðra bíla.
Engin hætta er talin á ferð og ekki þurfti ekki að rýma blokkina fyrir ofan bílakjallarann. Eldsupptök eru ókunn og ekki liggur fyrir hvort bíllinn sem kviknaði í sé rafmagnsbíll eða af annarri bílategund.