Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hjá slökkviliðinu var töluverður eldur við komuna í Laugardalinn. Slökkviliðsmenn á einum bíl mættu á vettvang auk sjúkrabíla en engin slys urðu á fólki.
Árrisulir gestir líkamsræktarstöðvarinnar Hreyfingar í Glæsibæ urðu vitni að eldsvoðanum í morgun og sendu fréttastofu myndband sem sjá má að neðan. Rútan stendur á plani nærri fimm smáhýsum fyrir heimilislausa.
Ekkert liggur fyrir um eldsupptök.