Eldri kona rænd í Vogahverfinu

Eldri kona var rænd í Vogahverfinu í gær. Konan hafði gert sér ferð í Hagkaup í Skeifunni og farið í hraðbankann sem staðsettur er inn í versluninni og tekið út pening. Hún hafi gengið svo áleiðis heim til sín í Álfheimana þar sem hún var króuð af fyrir utan heimili sitt af erlendu pari og þau stolið af henni debetkortinu. Dóttir konunnar greinir frá atvikinu á Facebook síðunni Langholtshverfi - 104.
Konan sem kýs að koma fram undir nafnleynd af virðingu við móður sína, segir að þjófarnir hafi náð að taka um hálfa milljón út af korti móður sinnar áður en því var lokað.
Nokkrar umræður hafa skapast undir færslunni, þar greinir annar frá því að erlendir þjófar séu einnig tíðir gestir í Kringlunni. Hann segir þrjá karla og eina konu af rúmenskum uppruna, standa við Hraðbankann og fylgjast með þegar fólk noti og reyni að afrita pin-númer með því að standa nálægt, svo sé viðkomandi eltur eins og í tilfelli konunnar og rænd meðvituð eða ómeðvituð. Hann segir þjófana í kringum fertugt.
Dóttirin segir málið nú komið á borð lögreglu en segist ekki bjartsýn á að fjármunirnir verði endurheimtir.
Lögreglan hefur hvatt fólk til að gæta fyllstu varúðar í hraðbönkum og gá að því hvort einhver fylgist með. Þá hafa fjármálasérfræðingar varað við því að fólk geymi háar upphæðir inn á kortareikningum, öruggara sé að geyma inn á bók og millifæra eftir þörfum inn á kortareikninga.


Uppfært:
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af fjórum einstaklingum vegna máls sem er til rannsóknar hjá embættinu. Eru þau vinsamlegast beðin að hafa samband við lögregluna í 444-1000. Ef einhver þekkja til fólksins eða vita hvar þau er að finna eru þau hin sömu beðin að hringja í lögregluna í síma 444 1000. Einnig má senda tölvupóst með upplýsingum í netfangið [email protected]
