Íbúi í Langholtshverfi skrifar aðvörunarorð í Facebook hópinn Langholtshverfi – 104 eftir að móðir hennar var, að hennar sögn, rænd eftir ferð í hraðbanka í Hagkaup, Skeifunni. Fréttin.is sagði fyrst frá.
Samkvæmt færslunni tók konan út pening í hraðbankanum í Skeifunni áður en hún hélt heim til sín í Álfheimana. Þar hafi erlent par króað hana af fyrir utan heimili hennar og stolið af henni debetkorti.
Að sögn aðstandandans virðist ljóst að fylgst hafi verið með konunni við hraðbankann og að gerendurnir hafi komist yfir PIN númerið hennar. Þeim tókst að taka út hátt í 500 þúsund krónur af reikningi hennar áður en tókst að loka kortinu.
„Greinilegt að það var fylgst með henni hjá hraðbankanum,“ skrifaði aðstandandinn í færslunni.
Málið hefur verið tilkynnt til lögreglu og segir fjölskyldan að unnið sé að því að afla myndefnis úr öryggismyndavélum hraðbankans.
Í athugasemdum við færsluna lýstu fjölmargir yfir áhyggjum af öryggi við hraðbanka og hvetja fólk til að hylja takkaborðið vel þegar PIN númer eru slegin inn.
Ein kona sagði frá sambærilegri reynslu þar sem korti hennar var stolið og meira en milljón krónur teknar út. Hún sagðist þó hafa fengið fjárhæðina endurgreidda frá bankanum að frádreginni sjálfsábyrgð.
Aðrir bentu á að þörf væri á betri skjólum eða hliðarveggjum við hraðbanka svo óviðkomandi geti síður fylgst með þegar fólk slær inn PIN númer sín.
Lögreglan lýsir eftir fólki sem passar við lýsinguna
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu auglýsir eftir upplýsingum um fólk sem virðist passa við lýsinguna og virðist sem myndirnar séu teknar nálægt svæðinu sem atvikið er sagt hafa gerst.
Lögreglan vildi þó hvorki staðfesta né neita hvort um sömu einstaklinga sé að ræða.
